Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Síða 4
Samherji hættir skreiðarverkun Samherji hefur ákveðið að hætta allri skreiðarverkun á Hjalt- eyri við Eyja- fjörð. Með þessu er verið að bregðast við fyrirsjáan- legum sam- drætti í kjölfar niðurskurðar þorskveiði- heimilda, eftir því sem fram kemur í fréttatil- kynningu félagsins. Ellefu starfsmenn starfa í skreiðarverkun á Hjalteyri og verður þeim öllum boðin vinna í öðrum deildum Samherja. Hluti hráefnisins sem unnið hefur verið á Hjalteyri verður sendur á Dalvík en hluti fer annað. Tryggvi Ástþórsson er með 75 pró- senta örorku. Hann hefur verið utan vinnumarkaðarins að mestu síð- an árið 1998. Til að halda óskertum örorkubótum mega heildartekjur hans, þær sem hann aflar sér sjálfur og örorkubætur, ekki vera hærri en rúmlega 1700 þúsund krónur á ári. Þetta samsvarar rúmlega 140 þús- und króna tekjum á mánuði. Tryggvi, sem er varaformaður Verkalýðsfélags Suðurlands, hefur tekið að sér tilfallandi launaða vinnu fyrir félagið í gegnum tíðina. Á síðasta ári aflaði hann 575 þúsund króna í viðbótartekjur fyrir vinnu sína fyrir verkalýðsfélagið. Nýlega fékk hann bréf frá lífeyrissjóðnum Stafir þar sem honum var tilkynnt um skerðingu á örorkubótum úr sextíu þúsund krónum niður í tæpar fimm þúsund krónur á mánuði. Fimm þúsund í örorkubætur „Ég hef starfað í launuð- um félagsmálum og vann mér inn tæpar sex hundruð þúsund krónur, eða tæplega 50 þúsund krónur á mánuði,“ segir hann. Vinnunni sinnir Tryggvi að nokkru leyti heima hjá sér, en hann hefur meðal annars tekið að sér verkefni í tengslum við gerð kjarasamn- inga. Hann var afar undrandi þegar hann fékk fyrrnefnt bréf. „Tekið er mið af launum mínum á þriggja ára tímabili og í mínu tifelli eru þetta árin þegar ég var rúmlega tvítug- ur. Samkvæmt niðurstöðum líf- eyrissjóðanna þá má ég ekki hækka í launum frá tuttugu ára aldri og það sem eftir er ævi minnar. Er einhvers- staðar annarsstaðar í þjóðfélaginu tekið þannig á málum? Ég get ekki skilið þetta öðruvísi en að mér sé hegnt fyrir að taka þátt á vinnumark- aðnum.“ Vinnan sem Tryggvi hefur unnið er eins og fyrr segir tilfallandi. „Ég vinn aldrei fullan vinnudag og ef ég á slæma daga ræð ég mér sjálfur. En það er mikil brotalöm í kerfi sem refsar fólki fyrir að vinna.“ Letjandi kerfi Tryggvi telur nauðsynlegt að laga kerfið þannig að það geti virkað hvetjandi fyrir fólk á örorku að reyna að taka þátt á vinnumarkaðn- um með einhverjum hætti. Eins og kerfið er núna borgar það sig frekar fyrir ör- yrkja að vinna svarta en vinnu þar sem tekjur eru gefnar upp. „Því mið- ur eru allt of margir öryrkjar sem vinna svarta vinnu, en það er ein- faldlega vegna þess að kerfið hindr- ar að þeir geti aflað sér uppgefinna tekna.“ Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun eru engar laga- legar heimildir til sem gera henni kleift að hafa virkt eftirlit með svartri vinnu öryrkja. Stofnunin fær þó fjöl- margar ábendingar um svarta vinnu og þá eru þær kannaðar innan þeirra heimilda sem fyrir hendi eru. Tryggvi heldur áfram: „Ég vann mér inn aukalega það sem ég tel að margir öryrkjar geti unnið. Það er þjóðfélaginu til bóta að við vinnum, þó að við öflum ekki nema fimmtíu þúsund króna á mánuði er andleg líð- an okkar mun betri.“ Frá því Tryggvi fékk endanlegt örorkumat hefur hann oftast unnið eitthvað með. Hann seg- ir það hafa borgað sig hingað til að vinna með en eftir að hafa fengið bréfið þar sem honum er tjáð um skerðingu nið- ur í fimm þúsund krónur á mánuði efast hann um að það borgi sig lengur. „Ég ætla að taka það al- varlega til endurskoðun- ar að reyna að koma mér út á vinnumarkaðinn, mér hefnist bara fyrir það.“ þriðjudagur 25. september 20074 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Mér hefniSt fyrir að vinna Tryggvi Ástþórsson, varaformaður Verkalýðsfélags Suðurlands, er með fulla örorku. Örorkubætur hans voru nýlega skertar úr sextíu þúsund krónum á mánuði í tæplega fimm þúsund krónur á mánuði vegna þess að hann aflaði sér tæpra 50 þúsund króna tekna aukalega á mánuði fyrir tilfallandi vinnu hjá verkalýðsfélaginu. VaLgeir Örn ragnarsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is „Samkvæmt niðurstöð- um lífeyrissjóðanna má ég ekki hækka í launum frá tuttugu ára aldri og það sem eftir er ævi minnar.“ endurskoðar vilja til vinnu „Ég ætla að taka það alvarlega til endurskoðunar að reyna að koma mér út á vinnumarkaðinn, mér hefnist bara fyrir það,“ segir tryggvi Ástþórsson. Bréf Í bréfinu frá lífeyrissjóðnum var honum tilkynnt að örorkubæturnar lækkuðu úr sextíu þúsundum niður í tæpar fimm þúsund krónur á mánuði. Kýr mjólka minna Óhagstætt tíðarfar er talið hafa þær afleiðingar að verulega hefur dregið úr mjólkurfram- leiðslu í september. Í ár hefur framleiðslan verið rúmlega 170 þúsund lítrum meiri á viku en á sama tíma í fyrra, en í síðustu viku var hún aðeins 87 þúsund lítrum meiri. September var mjög hlýr í fyrra og mældist hit- inn á nokkrum stöðum á landinu yfir meðaltali á haustmánuðum. Mjólkurframleiðsla á Íslandi hefur aukist ár frá ári og er það helst rakið til betra fóðurs og aukinnar tækni við nytjar. Gefa ekkert upp um nasistann Eins og sagt var frá í DV í gær lokaði Morgunblaðið bloggsíðu manns sem viðhafði nasistaáróð- ur á Moggablogginu. Notendur bloggkerfisins þurfa að gefa upp kennitölu til þess að skrá sig og samkvæmt upplýsingum frá net- stjórum kerfisins gaf maðurinn upp réttar persónupplýsingar. DV óskaði eftir upplýsingum um hver maðurinn væri, en þær upplýs- ingar fengust hjá Morgunblað- inu að stefna fyrirtækisins væri að upplýsa ekki hverjir nafnlausir bloggarar eru nema að undan- gengnum dómsúrskurði. Sandstrókur úr flutningabílum Lögreglan á Selfossi stöðvaði í gær marga malarflutningabíla á leið til Reykjavíkur frá malarnám- um við Lambafell og Jósefsdal. Í verstu hviðunum fór vindhrað- inn við Sandskeið upp í 20 metra á sekúndu og barst lögreglu fjöldi kvartana frá vegfarendum um að ábreiður vantaði á bílana svo sandstrókurinn stóð upp af þeim. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni kvörtuðu margir und- an skemmdum á bílum sínum. Nokkuð hefur borið á því að bíl- stjórar malarflutningabíla breiði ekki yfir farm sinn og kallar lög- regla eftir skýrari reglum um það. n „Í Willum býr hreint ótrúlegur sig- urvilji sem verður að teljast honum til tekna í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir Guðmundur Benediktsson, knattspyrnumaður hjá Val. „Hann lifir fyrir knattspyrnuna, er vel skipulagður og í rauninni tekst allt vel sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir Guðmundur. n Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, segir Willum Þór vera góðan dreng og vinnusaman. „Og svo er hann náttúru- lega heiðarlegur. Það er hans meginkostur,“ segir Guðjón. n Birgir Ómar Haraldsson segir Willum Þór vera ein- stakt gæðamenni. „Bæði er hann samviskusamur og duglegur og svo vill hann alltaf gera eins vel og mögulegt er.“ Birgir Ómar og Willum sitja saman í stjórn Spari- sjóðs Kópavogs. n „Leikmennirnir í liðinu hjá Willum vita alltaf stöðu sína. Þetta er vegna þess að hann kemur hreint og beint fram við liðsmenn- ina og það er mikill kostur,“ segir Friðrik Ellert Jónsson, sjúkraþjálfari hjá Val. „Keppnisskapið er líka gífurlegt, hvort sem það telst kostur eða löstur,“ segir hann. n „Willum getur verið harður í horn að taka, en hann hefur þó róast og þroskast mikið með árun- um,“ segir Guðmundur Benediktsson. „Hann er líka mjög íhaldssamur og sumum þykir það vera galli. Hans helsti löstur er þó að hann skuli vera framsókn- armaður,“ segir Guðmundur. n „Það er hreint ekki galli að Willum skuli vera erfiður andstæðingur,“ segir Guð- jón Þórðarson. „Ég kýs að líta á það sem áskorun, enda er gott að takast á við vel gerða náunga eins og Willum. Hins vegar eru brandararnir hans ekki nógu beinskeyttir,“ bætir Guðjón við. n „Ég finn ekki neina bannsetta galla á manninum í augnablikinu. Það er kannski hans helsti galli,“ segir Birgir Ómar Haraldsson. n Friðrik Ellert Jónsson tekur undir með Birgi Ómari og segist eiga í basli með að telja upp ókosti í fari Willums. „Hann er reyndar helst til hjátrúarfullur, ef galla skal kalla,“ segir Friðrik. Willum Þór Þórsson, knattspyrnuÞjálfari Vals DEBET OG KREDIT Willum Þór Þórsson Ásamt því að þjálfa Valsara situr Willum í stjórn sparisjóðs Kópavogs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.