Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Page 8
þriðjudagur 25. september 20078 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Strokufangi fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni á laugardagsmorgun. Starfs- fólk fangelsisins hafði rætt við hann síðla kvölds daginn áður og þá virtist ekkert bjáta á. Engin merki fundust um sjálfsvíg. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti fangi lét lífið á Litla-Hrauni um helgina. Beðið er niðurstöðu krufningar til að fá frekari vísbend- ingar um dánarorsökina. Fanginn, sem var nýlega orðinn 35 ára, fannst látinn í klefa sínum á laugardagsmorgun. Síðast hafði starfsfólk átt við hann samtal laust eftir miðnætti kvöldið áður og þá voru engar vísbendingar um að nokkuð bjátaði á hjá honum. Við athugun á laugardagsmorgun var hann látinn. Sami fangi hafði tveimur vikum áður strokið af áfangaheimilinu Vernd þegar hann átti innan við hálft ár eftir af afplánun á 16 ára dómi fyrir morð. Því hefur verið haldið fram að það hafi hann gert af ótta við frelsið. Eftir strokið var hann fluttur aftur á Litla-Hraun. Engin merki um sjálfsvíg Heimildarmaður DV á Litla- Hrauni sagði að líklega væri um sjálfsvíg að ræða. Kristján Eiríksson, forstöðumaður Litla-Hrauns, seg- ir engin sýnileg merki um sjálfsvíg liggja fyrir. Hann telur nánari rann- sókn þurfa að leiða í ljós hvað raun- verulega gerðist. „Málið fer í sinn farveg hjá lögreglu og heilbrigðis- yfirvöldum og við höfum enga að- komu að málinu frekar. Samkvæmt áliti þeirra sem að komu er ekkert sem bendir til þess að þarna hafi verið um sjálfsvíg að ræða.“ Beðið krufningar Jón Hrafnsson rannsóknarlög- reglumaður segir að beðið sé eft- ir niðurstöðum krufningar. Að svo stöddu liggur dánarorsök ekki fyr- ir. „Orsakir látsins liggja ekki fyrir að svo stöddu og krufningin ætti að leiða þetta í ljós. Það fundust engin ummerki um sjálfsvíg,“ seg- ir Jón. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði, telur fangelsismála- yfirvöld hafa teygt sig langt í því að koma til móts við fangann sem lést og því bendi ekkert til að hann hafi verið vanræktur. Engu að síður tel- ur hann nauðsynlegt að auka sál- fræði-, náms- og starfsaðstoð við fanga eftir afplánun. Erfitt fyrir alla Aðspurður segir Kristján heilbrigðisstarfsfólk fangelsisins hafa sinnt fanganum eftir að hann kom til baka frá Vernd. Hann segir starfsfólk fangelsisins reyna að ná áttum eftir atburðinn. „Þetta er náttúrlega mjög sorglegur atburður. Við eigum eftir að skoða þetta betur og erum varla sjálfir farnir að átta okkur á þessu. Þetta er erfitt fyrir fjölskyldu viðkomandi, samfanga hans og allt starfsfólk fangelsisins,“ segir Kristján. Jón vonast til þess að rannsókn- in gefi skýr svör um hver raunveru- leg dánarorsök fangans sé. Hann útilokar morðrannsókn að svo stöddu. „Á þessu stigi málsins er ekki verið að rannsaka málið með þeim hætti að annar hafi valdið dauða hans. Maðurinn fannst látinn í rúmi sínu og við vitum ekki meira,“ segir Jón. Fangi ræður ríkjum Fanginn er annar í röðinni á skömmum tíma sem lætur lífið á Litla-Hrauni en áður hafði Hilmar Már Gíslason svipt sig lífi í klefa sínum. Þeir dvöldu á sama ganginum í fangelsinu. Heimildarmenn DV á Litla-Hrauni hafa bent á að á þeim gangi ríki ógnarástand þar sem einn fangi ráði ríkjum og aðrir þurfi að beygja sig undir vilja hans. Aðspurður kannast Kristján ekki við þessa lýsingu og telur fráleitt að tengja ganginn við lát fanganna. Engu að síður segist hann ætla að fylgjast vel með. „Ef einhverjar svona aðstæð- ur eru í gangi er það án okkar vit- undar. Við komum til með að fylgj- ast með öllum föngum, eins og við gerum ávallt, og sérstaklega þess- um gangi.“ EkkErt vitað um dánar- orsök fanga „Þetta er erfitt fyrir fjölskyldu viðkomandi, samfanga hans og allt starfsfólk fangelsins.“ Á Litla-Hrauni beðið er eftir niðurstöðum krufningar vegna andláts fanga á Litla-Hrauni. Orsakir andlátsins liggja ekki fyrir. TrausTi HaFsTEinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is mánudagur 24. september 20072 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is STROKUFANGI LÉST Á LITLA-HRAUNI Fangi á Litla-Hrauni, sem dæmd- ur hafði verið í 16 ára fangelsi fyr- ir morð, fannst látinn í klefa sín- um á laugardagsmorgun. Ástæða hins vofeiflega atburðar hefur ekki fengist staðfest. Í fangelsið var hann fluttur aftur eftir að hafa strokið af áfangaheimilinu Vernd fyrir hálfum mánuði. Þaðan strauk hann þegar hann átti eftir að af- plána innan við hálft ár af dómi sínum. Þetta er annað dauðsfallið í fangelsinu á skömmum tíma en fyrir skömmu fyrirfór fangi sér á sama gangi. Flóttinn frá Vernd kom mörg- um á óvart því hann hafði sýnt fyrirmyndarhegðun um nokkurt skeið og líkur voru á því að hann hlyti frelsi fljótlega. Þó hafði hann brotið gegn reglum áfangaheim- ilisins og mögulega átti að senda hann aftur í fangelsi fyrir brot sín. Það var mat sérfræðinga að fanginn væri ekki hættu- legur umhverfi sínu þegar hann strauk en hann fannst nokkrum dögum síðar fyr- ir utan hús kunningja sinna. Hann var færður á Litla-Hraun eftir flóttann og fannst látinn í rúmi sínu um helgina. Treysti sér ekki út Samkvæmt heimildar- manni DV á Litla-Hrauni fannst fanginn látinn í rúmi sínu og líklegt er talið að hann hafi svipt sig lífi með því að taka of stóran skammt lyfja. Fyrrverandi samfangi hins látna telur líklegt að hann hafi verið farinn að óttast frelsið. Hann telur strokið af Vernd nýverið merki um þann ótta. „Neysla hef- ur getað haft áhrif á hann en ég tel þunglyndi mun líklegra. Hann var búinn að sitja inni svo rosalega lengi. Ég hef sjálfur upplifað mik- inn kvíða við að losna út eftir lang- an tíma og þá tapa menn öryggis- tilfinningunni. Ég hef horft upp á menn sem vita ekkert í hvorn fót- inn þeir eiga að stíga af ótta við frelsið. Það kæmi mér ekki á óvart að hann hefði vísvitandi brotið af sér til þess að verða ekki sleppt.“ Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, harmar atburðinn. Hann seg- ir vanlíðan fangans hafa farið fram- hjá fangelsis- yfirvöldum. „Þetta er alltaf mjög dap- urlegt. Fyrst og fremst lítur þetta út sem persónulegur harmleikur því það er alltaf einhver baggi að vera með alvarlegan glæp á bakinu. Fanganum virðist hafa liðið illa og það hefur farið framhjá fangelsis- yfirvöldum,“ segir Helgi. Brúna vantar Helgi telur ákveðna áhættu fylgja langri afplánun. Að- spurður telur hann ekki ólíklegt að hinn látni hafi ekki treyst sér út í samfélagið á nýjan leik. „Fangar sem hafa afplánað langa dóma eiga sumir í erfiðleikum með að sjá hvað bíður þeirra. Þeir hafa afplán- að í ákveðnu ör- yggi þar sem fyrir öllum grunda- vallarþátt- um er hugsað og þurfa skyndilega sjálfir að bera ábyrgð á öllum hlutum. Fangarnir eru í friði frá áreiti samfélagsins og löng fangelsisvist getur haft þau áhrif að menn óttast að losna út,“ segir Helgi. „Langri fangavist fylgir ákveðin áhætta. Brúin á milli samfélagsins og fangavistar er ekki nægjanleg, úr því þarf að bæta. Fangavistin þarf að vera undirbúningur að því hvað tekur við að henni lokinni. Sálfræðiaðstoð- in þarf að vera meiri en náms- og starfsráðgjöf er ekki síður mikilvæg.“ Erlendur Baldursson, deildarstjóri Fangelsis- málastofnunar, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leit- að í gær. TrausTi hafsTeinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is harmleikur Fanginn fannst látinn í klefa sínum á laugardag. Hann átti stutt eftir af afplánun dóms þegar hann strauk nýverið. Skip Samherja staðið að ólöglegum veiðum Dótturfyrirtæki útgerðarfyrir- tæksins Samherja á Akureyri, On- ward Fishing Company, var nýverið dæmt til að greiða rúmar 20 millj- ónir króna í bætur fyrir ólöglegar veiðar. Frystitogari fyrirtækisins, Marbella, var staðinn að veiðunum innan lögsögu Grænlands en togar- inn er með veiðiheimildir í Barents- hafi. Varðskipið Hvítbjörninn stóð frystitogarann Marbella að ólögleg- um veiðum með 148 tonn af þorski í lestinni innan grænlensku lögsög- unnar. Skipstjórinn játaði samstund- is brot sitt en útgerðin freistaði þess að fara með málið fyrir dómstóla. Þar var hún dæmd til að greiða and- virði ríflega 20 milljóna króna í sekt vegna veiðanna en sektin samsvarar verðmæti ólögmæta aflans. Sektin er sú hæsta sem dæmd hefur verið fyrir ólöglegar veiðar innan græn- lensku lögsögunnar. Marbella er frystitogari á vegum útgerðarinnar J. Marr sem skráð er í Hull á Englandi. Samherji eignaðist helmingshlut í fyrirtækinu í janúar 2006 og með því ræður Samherji yfir stórum hluta úthafsveiðiflota Breta. Breska útgerðin gerir út fjögur skip, einn frystitogara og þrjá ísfisktogara sem meðal annars hafa veitt karfa á Íslandsmiðum. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð- ist ekki í neinn af stjórnendum Sam- herja á Akureyri við vinnslu fréttar- innar til að leita viðbragða þeirra við dómnum. trausti@dv.is Ólöglegar veiðar dótturfyrirtæki samherja var dæmt fyrir að veiða 148 tonn af þorski án heimilda. Breytingar á Skjánum Sigríður Margrét Oddsdóttir mun taka við starfi sjónvarps- stjóra Skjásins. Sigríður hefur fram til þessa starfað sem fram- kvæmdastjóri Skjásins en mun taka við af Birni Þóri Sigurðssyni sem hefur látið af störfum sem sjónvarpsstjóri. „Við ákváðum að þetta væri besta fyrirkomulagið að svo stöddu, þar sem við erum að ljúka við stefnumörkun félags- ins og endurskoðun á skipulagi þess,“ segir Sigríður. Hún hefur mikla trú á fyrirtækinu. Stefán Máni fær Blóðdropann Stefán Máni hlaut í gær fyrstur höfunda Íslensku glæpasagna- verðlaunin 2007, Blóðdropann, fyrir bók sína Skipið. Bókin verð- ur jafnframt framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaun- anna, Glerlykilsins, árið 2008, að því er fram kemur á dv.is. Í rök- stuðningi dómnefndar segir að Stefán Máni sýni í verkinu geysi- góð tök á forminu, þar sem hann skapi svo þrúgandi og ógnvekj- andi andrúms- loft að lesandinn eigi bágt með að slíta sig frá ógeð- felldri áhöfn hins skelfilega skips sem fjallað er um í bókinni. Skipið er sjöunda bók Stefáns Mána. „Hann var búinn að sitja inni svo rosalega lengi. ég hef sjálfur upplif- að mikinn kvíða við að losna út eftir langan tíma og þá tapa menn öryggis- tilfinningunni.“ Grunsamlegar töskur Dularfullar ferðatöskur urðu til þess að hollensk Boeng 747 þota lenti í öryggisskyni á Kefla- víkurflugvelli í gær. Tveir íranskir farþegar höfðu pantað sér far með vélinni en skiluðu sér ekki um borð. Þeir höfðu hætt við að fljúga en aðeins sótt þrjár töskur af fimm sem þeir höfðu innritað. Þetta uppgötvaðist þremur tím- um eftir flugtak og í öryggisskyni var ákveðið að lenda í Keflavík þar sem ekki þótti óhætt að fljúga áfram. Á Keflavíkurflugvelli var leitað í töskunum en ekkert at- hugavert fannst við þá leit. Þotan hélt því áfram ferð sinni til Tor- onto í Kanada þrátt fyrir að far- þegar væru nokkuð skelkaðir. Alltaf hægt að laumst í land Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra segir í pistli á heima- síðu sinni að aldrei verði hægt að vakta strandlengju Íslands á þann hátt að ekki sé hægt að laumast þar í land. Hann segir þó að hægt sé að draga úr líkum á því með auknu rafrænu eftirliti með ratsjám eða gervitunglum. Í því sambandi bendir hann á eyjarnar Lamp- edusa og Möltu, þar sem ekki hef- ur tekist að hefta straum ólög- mætra innflytj- enda frá Líbíu. Björn bindur vonir við að samstarf Norð- manna og Kanadamanna sem miðar að því að allur hafflöturinn verði undir stöðugu eftirliti öll- um stundum, eigi eftir að hjálpa Íslendingum sem öðrum í bar- áttu við smyglara. í gær. Íþróttaiðkun dýrari Enn fást ekki gefin upp nöfn þeirra íþróttafélaga sem foreldrar hafa kvartað undan við Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur vegna hækkana á gjaldskrám eft- ir tilkomu frístundakorta. Sólveig Valgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá ÍTR, vill að svo stöddu ekki gefa upp um hvaða félög ræðir. Hún segir ástæður hækkana í skoðun og bendir á að stundum séu þær af eðlilegum ástæðum, svo sem að farið sé að greiða þjálfurum sem verktökum í stað launþega. Með frístundakortunum er íþróttaiðkun barna niðurgreidd. Velti bílnum Engan sakaði þegar bíll með tvo menn á tvítugsaldri innanborðs valt á Flateyrar- vegi í gærmorgun. Sam- kvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Vestfjörðum var nokkuð snjókrap á vegin- um svo ökumaðurinn missti stjórn á bílnum sem valt einn hring og endaði utan vegar. Vegkaflinn var í kjölfarið salt- aður og skafinn og skánuðu aðstæður nokkuð. Drengirn- ir voru á leið til skóla þegar óhappið varð. Ók bíl í vímu Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði tvær bifreiðar vegna einkennilegs aksturslags um miðjan dag á sunnudag, skammt norðan við Borgarnes. Ökumaður annars bílsins er grunaður um ölvun við akstur en ökumaður hins er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og eiturlyfja. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi eru málin enn í rannsókn. Hnefaleikaforkólfur ákærður fyrir líkamsárás: Fórnarlambið hlaut heilahristing Í gær var þingfest ákæra í Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur Ólafi Hrafni Ásgeirssyni fyrir líkamsárás á skemmtistaðnum Classic Rock í Ármúla. Meint árás átti sér stað að kvöldi þriðjudagsins 30. janúar. Ólafi er gefið að sök að hafa ráðist á Pétur Sigurðsson inni á staðnum og slegið hann hnefahöggi í andlit með þeim afleiðingum að hann hlaut heilahristing, blóðnasir, roða og þrota yfir vinstri kinn og niður á efri vör. Þá tognaði fórnarlamb árásarinnar í hálsvöðvum við höggið. Ólafur Hrafn, sem er 45 ára, hefur lengi verið í fararbroddi fyr- ir hnefaleikahreyfinguna á Ís- landi. Hann barðist mikið fyrir því að ólympískir hnefaleikar yrðu leyfðir hér á landi. Árið 1999 var Ólafur Hrafn sem þá var varafor- maður Hnefaleikafélags Reykja- víkur dæmdur í Hæstarétti Íslands ásamt Fjölni Þorgeirssyni athafna- manni og Bubba Morthens fyrir að hafa kennt hnefaleika og staðið fyr- ir sýningu á hnefaleikum sem þá voru bannaðir með lögum. valgeir@dv.is Classic rock Árásin átti sér stað á barnum 30. janúar síðastliðinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.