Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Qupperneq 10
þriðjudagur 25. september 200710 Fréttir DV Brown mundar kústinn Gordon Brown, forsætisráðherra Bret- lands, lagði línurnar í áætlunum sínum fyrir Bretland á landsfundi Verkamanna- flokksins sem hófst í gær. Fyrsti dagur landsfundarins og aðdragandi hans hafa þó fallið í skuggann af vangaveltum um hvort hann boði til skyndikosninga. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, vék í ræðu sinni á landsfundi Verkamannaflokksins að þeim áskorunum sem hann hefur þurft að takast á við síðan hann tók við embætti. Þar bar hæst hryðjuverk, flóð og sjúkdómana sem herja á breskan landbúnað. Að hans mati sannaði breska þjóðin sig í öllum þeim verkefnum sem hún horfðist í augu við á liðnu sumri. Brown sagði að hann stæði fyrir „... Bretland þar sem allir hefðu skyldum að gegna gagnvart náunganum og með því að uppfylla þær yrði öllum kleift að ná mestum árangri.“ Hann lagði áherslu á að persónugera yrði opinbera þjónustu, að ekki ætti að koma fram við fólk eins og númer, heldur með virðingu. Endurskoðun eldri málefna Gordon Brown sagði að ef honum fyndist að endurskoða þyrfti fyrri stefnu flokksins í einhverjum málum, til dæmis hvað varðar kannabis eða sólarhringsopnun vínveitingastaða, þá yrði það gert. Taka yrði á drykkjusiðum táninga og varast að senda röng skilaboð út í samfélagið. Hann sagðist myndu styðja aðgerðir gegn byssueign þar sem glæpir tengdir skotvopnum hefðu átt sér stað. Í því tilliti sagði hann að heimila ætti skyndileit að skotvopnum. Aðspurður sagði hann í viðtali við BBC að hann teldi að allir, sem gerðu sér grein fyrir því að örfáir einstaklingar með skotvopn gætu sett heilt hverfi úr jafnvægi, yrðu samþykkir slíkum aðgerðum af hálfu lögreglunnar. Heilbrigðisstofnanir „djúphreinsaðar“ Mikla áherslu á að leggja á sjúkrahús landsins. Þar er sérstaklega horft til stafílókokka, sem er lyfþolin baktería og betur þekkt sem MRSA. Bakterían er mjög útbreidd á sjúkrahúsum Bretlands og hefur dauðsföllum af hennar völdum fjölgað verulega hin síðari ár. Talið er að fleiri en sjö þúsund manns sýkist af bakteríunni á ári hverju í Bretlandi. Árið 1993 lést fimmtíu og einn af völdum MRSA, en tólf árum síðar, árið 2005, voru dauðsföllin hátt í sautján hundruð. Gagnrýnendur telja að það sé óvinnandi vegur að ætla að komast fyrir bakteríuna á sjúkrahúsum, því hún berist með starfsfólki, sjúklingum og gestum. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, sagði í News of the world að innan tólf mánaða yrðu sjúkrahús laus við MRSA-bakterína og C. difficile- bakteríuna, sem er loftfælin og sporamyndandi. Smituppspretta C. difficile er saur sýkts einstaklings. „Ein deild í senn, veggir, loft, samskeyti og loftstokkar verða KolBEinn þorstEinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Á fyrsta �rsf��r�� ungi ��ssa �rs �r vita� um 15.592 tilf�lli af C. difficil�� sýkingu í s�úklingum s�xtíu og fimm �ra og �ldri, s�m �r aukning um tvö pr�s�nt fr� sama tímabili �ri� 2006. Auglýst eftir vitnum að skotárás Forsætis- ráðherra bretlands telur nýrra aðferða þörf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.