Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Page 12
FyrirgeFum þeim Svarthöfði er umburðarlyndur kjósandi og telur sjálfsagt að fyrirgefa öllum þeim sem átta sig á villu síns vegar þótt í kyrrþey sé. Þannig telur Svarthöfði yfirdrifið nóg að Kristján Möller samgönguráðherra biðjist afsökunar á því að hafa talið Vegagerðina hafa haft slæma ráðgjöf í Grímseyjarferjumálinu. Með því að samgönguráðherrann lúti höfði og biðji aðalráðgjafann, Jón Her- mannsson, afsökunar er hægt að loka þessu leið- indamáli í eitt skipti fyr- ir öll. Ráðgjafinn hefur þurft að þola mikið þær fimm vikur sem það tók ráðherrann að stynja upp afsökunarbeiðninni og það er tími til kominn að veita honum góða áfallahjálp. Það er engin ástæða til að elta uppi forsvars- menn Vegagerðarinnar eða gamla samgönguráðherrann, Sturlu Böðv- arsson, sem einhverjir vilja meina að beri fulla ábyrgð á ferjuklúðrinu eins og svo mörgu öðru. Svarthöfði er mannlegur og ger-ir sér grein fyrir því að Sturla á nógu bágt eftir að hafa ómak- lega verið sviptur ráðherradómi þótt ekki sé verið að eltast frekar við hann. Sturla á líka merkilegan feril sem einkennst hefur af óheppni þar sem kemur að fjáfestingum. Hann var að baki því að Landssíminn tapaði á sínum tíma 400 milljón- um eftir að fyrirtækið lenti í klóm skýjaglópa sem plötuðu Sturlu og Þórarin V. Þórarinsson, þáverandi forstjóra, til að stofna fyrirtækið @ IP-Bell sem reyndist vera reist á sandi. Sjálfur gat Sturla ekkert gert að því hvernig fór. Hann var í góðri trú rétt eins og Þórarinn V. sem lét símann gróðursetja fyrir sig tré. Sturla létti sér störfin með því að nota óspart flugvél Flugmálastjórn- ar til að komast í skyndi milli staða. Þannig nýtti hann tíma sinn betur en annars hefði orðið eins og sann- aðist þegar hann brá sér kvöld- stund á frumsýningu á Snæfellsnesi og náði aftur til borgarinnar sama kvöld. Þótt Grímseyjarferjan hafi kostað um hálfan milljarð sem er næstum fimmfalt yfir áætlun er engin leið til þess að kenna Sturlu um það mál og ófært að hann fari að biðja þjóð- ina afsökunar. „Það er mannlegt að skjátlast,“ sagði broddgölturinn þegar hann skreið upp á skóburstann. Það er eins með broddgelti og ráðherra að þeim getur skjátlast. Við eigum ekki að velta okkur upp úr slíku heldur horfa á það góða sem menn hafa gert. Árni Mathiesen fjármálaráðherra lenti einnig í að skjátlast í ferjumálinu þegar hann gaf Vegagerðinni hömlu- lítinn yfirdrátt svo takast mætti að koma á eðilegum samgöngum milli Grímseyjar og fastalandsins. Ráðherranum gekk gott eitt til en hann var fórnarlamb mis- skilnings rétt eins og Sturla sem vissulega vildi vel. Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri var líka fórnarlamb rétt eins og ráðgjafinn sem núver- andi samgönguráðherra hefur loksins beðið afsökunar. Það er engin ástæða til að elta menn endalaust uppi út af einni ferju sem hefur þann tilgang að koma Grímseyingum í samband við umheiminn. Nú þegar Kristján Möll- er hefur beðið aðalráðgjafa Vegagerð- arinnar afsökunar er nóg komið og mál að linni. Hvað eru nokkur hundr- uð milljónir milli vina þegar milljarð- arnir eru á hverju strái? þriðjudagur 25. september 200712 Umræða DV Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm. fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson aðStoðarritStjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson Umbrot: dV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. aðaLnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010, Áskriftarsími 512 7080, augLýsingar 512 70 40. svarthöfði Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. Það ber að trúa því starfsfólki sem næst er eymdinni. Ábyrgðarlausir foreldrar Leiðari Barnaverndarnefnd Reykjavíkur fær nokkrar tilkynn-ingar á ári um að foreldrar gefi börnum sínum svefn-lyf og skilji þau eftir alein. Halldóra Dröfn Gunnars-dóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndarnefndar, sagði í samtali við DV að sönnunarbyrðin í slíkum málum sé erfið. Nefndin fær einnig nokkrar tilkynningar ár- lega um að foreldrar selji ofvirknilyf barna sinna eða neyti þeirra sjálfir. Þetta er hluti þess veruleika sem við lifum í. Svona ill meðferð á börnum fyrirfinnst líka á Íslandi. Sem betur fer heyrir það til undan- tekninga að foreldrar beiti börn sín svo hrikalegum aðferðum að svæfa þau með lyfj- um, en ekki er vitað hversu algengt það er. „Lyf hafa ekki verið rannsökuð neitt sérstaklega í börnum og það er átak í gangi hjá Evrópusambandinu og í Bandaríkjunum sem miðar að því að auka rannsókn- ir á lyfjagjöfum hjá börnum,“ sagði Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, í samtali við DV. Hún segir að lyf virki allt öðruvísi á börn heldur en fullorðna og nefnir í því samhengi Rítalín sem hefur mjög ólík áhrif á börn og fullorðna. Lyfjagjaf- ir til barna hafa ekki verið rannsakaðar nægjanlega að hennar mati. Hún segir að ekki séu til nein svefnlyf sem séu eingöngu ætluð fyrir börn. Í umfjöllun DV telur Matthías Halldórsson landlæknir að ekki séu dæmi þess hér á landi að börnum hafi verið gefinn of stór skammtur svefnlyfja. „Það hefur ekki neitt verið kvartað undan svefnlyfjanotkun og ég held að það sé farið varlega í það gagnvart börnum,“ segir Matthías. Orð Matthíasar eru ekki í fullu sam- ræmi við upplifun starfsmanna Barnaverndarnefndar Reykja- víkur. Þar þekkjast dæmi um að börnum hafi verið gefin svefnlyf og látin vera alein á meðan foreldrar hafa notað svefntíma barnanna til eigin þarfa. Það ber að trúa því starfsfólki sem næst er eymdinni og áætla að landlæknir viti ekki betur en hann segir. Halldóra Dröfn sagði í samtali við DV að nokkur dæmi hafi komið upp þar sem foreldrar selji lyf barna sinna eða noti þau sjálfir. Ofvirknilyfið Rítalín virk- ar róandi á börn en hefur þveröfug áhrif á fullorðna einstaklinga. „Alltaf er þetta grun- ur sem er erfitt að sanna nema lögreglan hafi hreinlega komið að málinu. Við fáum samt alltaf nokkrar tilkynningar á ári um sölu eða neyslu á lyfjum ætluðum börnum.“ DómstóLL götunnar Hvaða lið fellur í landsbankadeild karla? Ég ætla bara að vona að það verði kr sem fellur.“ Svavar Halldórsson, 41 árs, vélvirki frá Vopnafirði. „Vonandi verður það kr.“ Sigríður Sverrissdóttir, 48 ára, stuðningsfulltrúi. „Ég held að kr-ingarnir falli.“ Flóki Ingólfsson, 5 ára. „Ég vona að kr falli.“ Tómas Freyr Arnarsson, 20 ára, nemi í FB. sanDkorn n Styrmir Gunnarsson, rit- stjóri Morgunblaðsins, brá skjótt við eftir að DV hafði við hann sam- band og spurðist fyrir um nasista- síðu sem haldið var úti á mbl.is. Ritstjórinn lét umsvifa- laust loka áróðurssíðunni. Moggabloggið er reyndar að verða þekkt sem helsta holræsi íslenskra vef- miðla þar sem uppi vaða kver- úlantar af öllu tagi og segja hvað sem er. Það væri verðugt fyrir Styrmi að skoða betur það sem gerist í myrkviðum mbl.is þar sem nasistarnir eru hrein lömb að leika sér í samanburði við sumt sem viðgengst. n Það gustar um þá félaga Pál Magnússon útvarpsstjóra og Þórhall Gunnarsson dag- skrárstjóra. Þótt margt hafi heppn- ast vel af dagskrár- efni Sjón- varpsins er annað vegið og léttvægt fundið. Þeir félagar brugðust ókvæða við þegar DV sló því upp að Sig- urður Þórðarson ríkisend- urskoðandi væri með fjármál stofnunar þeirra til rækilegr- ar skoðunar. Sigurður sjálfur sendi út yfirlýsingu eftir að blaðið kom út um að hann væri ekki með til skoðunar launaskrið og kostnað við dag- skrárgerð. Sigurður fór þarna með fleipur eitt eins og sanna mátti af hljóðupptöku blaða- manns af samtali þeirra sem birt var í blaðinu í gær. Nú bíða menn spenntir eftir niðurstöðu ríkisendur- skoðanda varðandi Ríkisút- varpið. n Tónlistarmaðurinn Einar Ágúst Víðisson hefur sjald- an verið hressari. Rúmt ár er liðið síðan hann sneri baki við vímuefn- um og setti heilbrigð- ið á oddinn í lífi sínu. Einar Ág- úst ferðast nú um og spilar og skemmtir landsmönnum. Hann vinnur að sólóplötu sem kemur út í byrjun nóvember. Kappanum til aðstoðar er X-factor bandið og sjálfur Stefán Hilmarsson tekur lagið. n Óhætt er að segja að mót- tökur landsmanna við dv.is hafi verið góðar en vefurinn er nú í 13. sæti yfir vinsælustu vefi landsins. Á dv.is eru þau nýmæli að menn geta sett inn myndbönd sín og horft á þau í fullum gæðum. Reikna má með að vefurinn eigi eftir að blanda sér í toppbaráttuna og velgja visir.is og mbl.is undir uggum. því þeir vita ekki...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.