Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Side 15
DV Sport þriðjudagur 25. september 2007 15 Sport Þriðjudagur 25. september 2007 sport@dv.is Lið 17. umferðar valið besti kylfingur landsins, birgir leifur hafþórsson, er ósáttur við útkomu síðustu móta en sáttur við spilamennskuna. hann dvelur nú á spáni við æfingar . bls. 16. Dómarar eru og verða alltaf um- deildir í hvaða íþrótt sem er. Í rúgbí eru reglurnar þannig að aðeins fyr- irliðarnir fá að ræða við dómarana. Aðrir leikmenn fá einfaldega ekki að koma þar nálægt. Knattspynuhreyfingin er nú að skoða þann möguleika. „Í rúgbí er það þannig að fyrirliðarnir bera ábyrgð á því hvert leikurinn stefnir. Ef of mikil harka færist í leikinn er allt í lagi að kalla á fyrirliðana og segja einfaldlega liðinu í gegnum þá að hætta vitleysunni. Það er svo þeirra að koma skilaboðunum áfram,“ sagði William Gaillard, talsmaður UEFA. Einn besti dómari landsins, Garð- ar Örn Hinriksson, sagði að það yrði erfitt að innleiða menningu rúgbí inn í fótboltann. „Mér þætti gam- an að sjá framkvæmdina á þessu. Í augnablikinu sé ég þetta ekki alveg gerast en kannski með tímanum. En ef þetta gengur í rúgbí hlýtur þetta að geta gengið í fótbolta líka. Þetta myndi leysa helling ef þetta yrði að veruleika. Að tala bara við fyrirliðana. Þetta viðgengst reynd- ar alveg í fótboltanum. Það koma alltaf einhverjir leikir í fótboltanum á hverju sumri þar sem maður þarf hreinlega að kalla fyrirliðana til sín og biðja þá um að róa niður mann- skapinn. Það er ekki oft enda flestir leikir hér heima heiðarlega leiknir. Ég hef notað þetta nokkrum sinnum um ævina sem dómari.“ Einn leiðinlegasti blettur á knatt- spyrnunni í dag er þegar dómarar flauta og leikmenn hópast saman í kringum þá. „Það er skýrt í reglunum að það á að spjalda einn leikmann í svona aðstæðum. Það er alveg skýrt. Ég vil nú meina að ég sé frumherji í þessu. Ef menn muna eftir þess- um blessuðu spjöldum á KR-vell- inum fyrir sex árum þar sem ég tók nokkra og spjaldaði í einu, svokallað raðspjald, en fyrir nokkru kom fram hjá annaðhvort UEFA eða FIFA að það eigi að taka á fjöldamótmælum. Bara um leið að taka einn og spjalda hann og ef hinir skilja það ekki tek- urðu bara fleiri. Gula spjaldið á fyrsta leikmanninn er bara aðvörun á rest- ina af hópnum.“ Garðar lenti í ansi skemmtilegu atviki á sunnudag þegar Jóhann- es Valgeirsson, dómari leiks FH og Vals, varð fyrir því óláni að meiðast. Garðar var fjórði dómari leiksins og var ekki um neitt annað að gera fyrir Jóhannes en að biðja um skiptingu. „Að fara inn á í svona leik er ekkert grín. Þetta var stórleikur og ekki það sem maður átti von á. En ég fékk þó að dæma þann leik sem mig langaði til að dæma. Þótt það hafi ekki ver- ið nema einhverjar tuttugu mínútur,“ sagði hinn geðþekki Garðar Örn að lokum. benni@dv.is UEFA íhugar að taka upp svipaðar reglur og viðgangast í rúgbí þar sem aðeins fyrirliðar fá að tala við dómara: FÓTBOLTINN LÍTUR TIL RÚGBÍS Hefur getuna Vildi dæma leikinn og fékk það garðar Örn kom inn á í leik FH og Vals eftir að jóhannes Valgeirsson meiddist. Vann í tvíliðaleik

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.