Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Síða 17
DV Sport þriðjudagur 25. september 2007 17 Stjórnarmenn Arsenal segja að félagið hafi sterkustu fjárhagsstöðu allra liða á Englandi: ArsenAl ríkAstA félAg englAnds? Forráðamenn Arsenal segja að Arsenal sé ríkasta lið Englands. Eft- ir flutning á Emirates-völlinn fær liðið að meðaltali þrjár milljón- ir punda fyrir hvern leik sem lið- ið spilar á heimavelli og það eru tölur sem ekkert annað lið getur státað af. Heildarverðmæti liðsins eru nú komin yfir 200 milljónir punda þó að slíkt segi ekki til um söluverðmæti félagsins sem er mun hærra. „Þessar tölur sýna að við þurfum ekki á erlendri fjárfestingu að halda. Við fengum alla þá leikmenn sem við vildum í sumar og Arsene Weng- er notaði ekki allt það fé sem hann hafði til umráða til leikmanna- kaupa í sumar,“ segir Kieth Edelm- an, rekstrarstjóri hjá Arsenal. Fyrr í mánuðinum var uppi orðr- ómur um að Úsbekinn Alisher Us- manov væri við það að eignast 21 prósent í félaginu. David Dein, stjórnarformaður Arsenal, lét hafa eftir sér fyrir skömmu að til þess að félagið gæti keppt um allra bestu leikmennina þyrfti félagið á erlendri fjárfestingu að halda. En Edelman segir þetta misskiln- ing og ef Arsene Wenger þurfi á fé að halda til þess að kaupa einhverja af toppleikmönnum heims fái hann það. Í yfirlýsingu frá fjárfestingarhópi sem stendur á bak við Arsenal kem- ur fram að umskiptin á Emirates séu grunnurinn að sterkri fjárhagsstöðu liðsins. „Nú er Arsenal það lið í Evrópu sem kemur næst á eftir Real Madr- id hvað varðar sterkan fjárhag,“ seg- ir Mihir Bose, kunnur íþróttadálka- höfundur hjá BBC. Emirates-völlurinn breytti Arsenal Flutningurinn yfir á emirates-völlinn hefur heppnast vel hjá arsenal. City er best hinna liðanna Richard Dunne, fyrirliði manchester City, segir að liðið sé ekki enn orðið nógu gott til að keppa við stóru liðin um titilinn og telur raunhæft að það geti keppt um 5. sætið. eftir sjö leiki er liðið ofar en undanfarin ár og menn þar eru bjartsýnir á framtíðina. „þessa stundina erum við að spila vel og eigum skilið að vera svona ofarlega. það er ekkert lið sem nær fimmta sætinu út á nafnið eitt. Við erum best þessara liða og höfum byrjað best þeirra.“ City er í þriðja sæti deildarinnar með 13 stig. ronaldinho vill fara the sun greinir frá því að Ronaldinho sé ekki ánægður með þá meðferð sem hann fær hjá barcelona. sögusagnir voru um að hann væri meiddur gegn sevilla en félagið neitar því. ronaldinho spilaði ekki þann leik og er að sögn blaðsins ósáttur við þá gagnrýni sem hann fær reglulega fyrir að vlja skemmta sér og vera ekki í formi. bróðir hans og umboðsmaður roberto de assis hefur reglulega verið í sambandi við roman abramovich og að sögn blaðsins vill ronaldinho að bróðir hans semji um félagaskipti. Chelsea áfrýjar Forráðamenn Chelsea hafa ákveðið að áfrýja rauða spjaldinu sem Jon Obi Mikel fékk að líta í leiknum við manchester united í ensku úrvalsdeild- inni. mikel braut á patrice evra og var rekinn í bað eftir aðeins hálftímaleik. endursýningar í sjónvarpi bentu hins vegar til að brotið væri vægt og verðskuldaði aðeins gult spjald. avram grant stjóri Chelsea sagði að brotið hefði ekki verðskuldað rautt og jafnvel alex Ferguson sagði að rauða spjaldið hefði verið strangur dómur. Ferguson fannst hins vegar að tækling joes Cole á ronaldo í síðari hálfleik hefði verðskuldað rautt spjald. benitez hermir eftir Wenger Rafa Benitez hefur gefið í skyn að hann muni herma eftir arsene Wenger í deildarbikarn- um í kvöld og nota unga og efnilega leikmenn. Leikmenn eins og sebastian Leto, Lucas Leiva, emiliano insua, jack Hobbs og Charles intandje munu væntanlega spila stóra rullu í bikarnum. „Fyrir nokkra leikmenn sem eru ekki að spila í deildinni eða meistaradeildinni er þetta mikilvæg keppni. bikar er alltaf bikar og það myndi gleðja mig ef við ynnum þennan. einhverjir eldri leikmenn munu spila á móti reading því það er ekki hægt að breyta öllu liðinu. en leikmenn sem ekki spila reglulega munu fá séns.“ enski boltinn Arnar Sigurðsson atvinnutennisspil- ari er byrjaður að keppa að nýju eft- ir erfið meiðsli á árinu. Arnar tók þátt í atvinnumannamóti í Kaliforn- íu á dögunum og vann í tvíliðaleik, ásamt félaga sínum Brad Pomeroy frá Bandaríkjunum. Arnar og Pomeroy voru fyrir mót- ið taldir sterkasta parið og þeir stóð- ust þær væntingar. Í fyrstu umferð unnu þeir Dave Lingman og Mar- vin Rolle í þremur settum. Því næst unnu þeir Danny Bryan og Colin Purcell, einnig í þremur settum, og í undanúrslitum unnu þeir Banda- ríkjamennina Nikita Kryvonos og Michael McClune í þremur settum. Í úrslitum á sunnudaginn mættu Arnar og Pomeroy Philip Bester frá Bandaríkjunum og Glenn Weiner frá Kanada og enn og aftur þurfti þrjú sett til að skera úr um sigurvegara. Svo fór að Arnar og Pomeroy unnu. Arnar sagði í samtali við DV að hann hefði aldrei áður spilað með Pomeroy og miðað við það hefði mótið gegnið vonum framar. „Þetta var í fyrsta sinn sem ég spilaði tennis með þessum strák. Ég er búinn að vera með helling af með- spilurum. Það er kannski það áhuga- verðasta við þetta, maður breytir til frá viku til viku, en gengur samt mjög vel. Það er mjög ánægjulegt,“ sagði Arnar. Hann keppti einnig í einliðaleik og komst í aðra umferð. Í fyrstu um- ferð vann Arnar Marcus Fugate frá Bandaríkjunum í tveimur settum, 6–3 og 6–4. Arnar varð hins vegar að láta í minni pokann fyrir Bandaríkja- manninum Tim Smyczek í tveimur settum, 7–6 og 6–3. Smyczek þessi fór alla leið í úrslitaleikinn þar sem hann tapaði fyrir landa sínum Mi- chael McClune. „Ég átti mikla möguleika (gegn Smyczek). Þannig að þetta var allt í lagi, þegar á heildina er litið, miðað við að þetta var mitt fyrsta mót í langan tíma. Ég er nokkuð sáttur en auðvitað vill maður alltaf meira,“ sagði Arnar. Sleit liðband í ökkla Hann varð fyrir því óláni að slíta liðband í ökkla í janúar. Til að bæta gráu ofan á svart meiddist Arnar aft- ur í sumar, þegar hann var að kom- ast á fullt. „Þetta er búið að vera svolít- ið þungt ár hjá mér. Ég byrjaði á að meiðast snemma í janúar og var nokkra mánuði frá. Ég náði mér af því og fór aftur af stað í júlí og togn- aði þá í nára. Þurfti aftur að stoppa. En ég hress núna og kominn á fullt,“ sagði Arnar og bætti við að hann væri ekki alveg orðinn góður í ökklanum, en nógu góður til að byrja að spila. „Þegar maður er bara í tennis er ekkert verra en að vera meiddur. Þetta er partur af þessu líka, mað- ur verður að lifa með því og gera það sem maður þarf að gera til að koma sér aftur á kreik. En það er ekki skemmtilegasti parturinn af þessu,“ sagði Arnar. Arnar er á miklu flakki þessa dag- ana. Hann kláraði mótið í Kaliforn- íu á sunnudaginn og hefur keppni á móti í Monterrey í Mexíkó í dag. Það er því óhætt að segja að hann lifi í ferðatösku og það krefst töluverðr- ar skipulagningar að koma sér upp heimslistann í tennis. „Þetta er flökkulíf. Ég set upp vissa áætlun fyrir næsta mánuðinn eða næstu tvo mánuði. Það fer eftir því hvert maður er að fara og að elta mótin. Þetta getur líka breyst voða fljótt. Það er því svolítill lausagangur á þessu, það er ekki alltaf klárt hvað maður er að fara að gera fyrr en á síð- ustu stundu,“ sagði Arnar. Arnar komst hæst í 703. sæti heimslistans í einliðaleik en meiðsl- in hafa gert það að verkum að hann er nú í 917. sæti. Hann er hins vegar í 695. sæti heimslistans í tvíliðaleik. „Listinn byggist á ársgrundvelli. Í raun hefði ég þurft að verja stigin mín, en gat það ekki út af meiðslum. Ég hef því dottið niður listann í ein- liðaleik en hef hækkað í tvíliðaleik. Það hefur gengið rosalega vel þar,“ sagði Arnar. Sem fyrr segir hefur Arnar keppni á móti í Mexíkó í dag. Mótið í Kali- forníu var spilað á hörðum velli en mótið í Mexíkó er á leirvelli og Arnar hafði örlitlar áhyggjur af því. „Af því að ég náði svo langt um helgina hefur ég engan tíma til að undirbúa mig fyrir þetta mót. Maður verður að reyna að venjast leirvöll- um á nokkrum tímum. Þó að munurinn (á leirvöllum og hörðum völlum) sé ekkert gríðarleg- ur er hann nógu mikill til að menn finni fyrir því. Leikurinn er hraðari á hörðum velli. Ef maður prófar leir finnur maður að þetta er svolítið annað,“ sagði Arnar að lokum. Atvinnutennisspilarinn Arnar Sigurðsson er á fullu þessa dagana við keppni á atvinnu- mannamótum úti í heimi. Hann keppti um síðustu helgi á móti í Kaliforníu og hefur keppni á móti í Mexíkó í dag. DAguR SvEinn DAgBJARtSSOn blaðamaður skrifar: dagur@dv.is SIGUR Í TVÍLIÐALEIK Flökkulíf arnar sigurðsson hefur keppni á móti í monterrey í mexíkó í dag, tveimur dögum eftir að hafa unnið tvíliða- keppni á móti í Kaliforníu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.