Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Page 21
FyrirgeFum þeim Stundum ef hlustað er á samtal við stórmenni í fjölmiðlum mætti halda að þar hittist á palli sauðkind og tófa og kindin sé rugluð en tófan ekki viss um hvort hún er tófa eða rolla. Engu að síður tekur hlustand- inn gott og gilt hvað þau segja, enda eru þessi dýr síst vitlausari en önnur og auk þess hvorki betri né verri. Um daginn var rætt um að kenna ætti á ensku hér í háskóla og spurt hvort verið væri að gefast upp fyrir henni. Þá rauk menntaða manneskjan upp og sagði móðurmálinu og setri sínu til varnar: Nei, íslenskan er nefnilega svo fín! Hvað var átt við með „nefni- lega svo fín” var engin leið að vita en merkingin eflaust ekki vitlausari en hver önnur. Um daginn voru veitt fegurðarverðlaun af ráðherra sem harmaði án heyranlegs gráts að nafni hans, gervilimasmiður, hefði ekki hlotið þau. Því næst blandaði hann laumulega sínum vanda í málið og lét eiginkonuna koma eins og skratt- ann úr sauðarleggnum með þannig viðhorf til hans ljóta fótar, að halda mætti að hún teldi að hann þyrfti á gervilimi að halda. Í auglýsingu er hringt í vissan farsíma og spurt eftir týndri kú sem kemur umsvifalaust ekki bara í talhólfið heldur baul- andi á vettvang. Merkir þetta að þeir sem svara í svona síma bauli eins og belja? Nei. Líklegast er að menn kunni hvorki að nota táknmál né samlíkingu. Slíkt skiptir engu máli, fólk hvorki hlustar né skilur elginn um ágæti hluta í auglýsingu, alvant því að úthúða í byrjun en hrósa í lok- in. Það er hefð að bölva manni fyrst í sand og ösku en taka síðan álit sitt aftur með þessum orðum: Annars er hann prýðilegur. Til hvers var þá ver- ið að úthúða? Aðeins til þess að hinn skömmótti fái útrás fyrir ráðlausa reiði sem endar á undirgefni! Svip- að dæmi er um ráðherrann sem bað sökudólg afsökunar á því að hann hefði gert hann ábyrgan gerða sinna en lét þess að lokum getið í fjölmiðl- um að hann hefði aldrei sagt það sem hann sagði. Hvers vegna baðst hann þá afsökunar á því sem gekk aldrei út af munni hans? Afsökunin á að hafa tekið nokkra klukkutíma því það fer drjúg stund í að taka aftur orð sem eru sögð en ósögð. Svo kannski er ekki lengur öll vitleysan eins í sam- félaginu eða allt á sömu bókina lært heldur tómur plokkfiskur á plokkfisk ofan. Skipt um filmu Þessi lögreglumaður var í óða önn við að skipta um filmu í hraðamyndavél þegar ljósmyndara DV bar að garði. DV MYND: StefáNmyndin P lús eð a m ínu s Plúsinn í dag hlýtur Albert Brynjar Ingason, markahrókur fylkis í Landsbankadeild karla. Albert var mjög hættulegur í leik fylkis og Keflavíkur og skoraði þrennu. Vel af sér vikið hjá Alberti. Spurningin „Ég vona að Skugginn verði ekki langur og að við komumst í sólina,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson hjá Forlaginu, sameinuðu útgáfufélagi JPV og Eddu miðlun- ar, um bókaforlagið Skugga sem hefur verið sett á laggirnar undir stjórn Illuga Jökulssonar. Nokkrar bækur almenns eðlis verða gefnar út á vegum Skugga í haust, bæði frumsamdar og þýddar. fallið þið í Skuggann? Sandkassinn mikið vildi ég að ég gæti hugs- að eins og Dalai Lama. Tekist á við það sem að höndum ber af algjöru æðruleysi. Haft ekki áhyggjur af neinu. Þetta var ég að hugsa þegar ég hélt að gluggarnir ætluðu að fjúka af hjörunum aðfaranótt mánu- dagsins. Hafði haft áhyggjur allan daginn, allt kvöldið og hálfa nótt- ina af hlutum sem ég get aldrei í lífinu breytt. eFtir að haFa næstum Fótbrotið mig við að klöngrast upp á eld- húsborð til að binda aftur glugg- ann, fór ég að lesa í bókinni „Hamingja í lífi og starfi“, samtal How- ards C. Cutl- er og Dalai Lama. Það merkilega við viðhorf Dalai Lama er að manni finnst að allir ættu að geta tileinkað sér þau. En fæstir gera það. Við festumst í áhyggjunetinu; nei- kvæðninetinu, sjálfsblekking- unni og sjálfsvorkunninni. Í fyrra var mér boðið að sitja námskeið í hugrænni atferlismeðferð. Með mér á námskeiðinu var mað- ur á besta aldri sem strax tók að tileinka sér aðferðirnar. Við hin horfðum á hann breytast, takast á við viðfangsefnin hvert á fætur öðru. Hann gerði heimavinnuna samviskusamlega á hverju kvöldi meðan ég gerði mína úti í bíl tuttugu mínútum áður en nám- skeiðið hófst. Þessi maður ákvað strax að nýta hugrænu atferlis- meðferðina til að hætta að reykja. Hann hefur ekki reykt síðan. Hann snýr neikvæðum hugsun- um yfir í jákvæðar áður en þær hafa náð að festa sig í sessi í huga hans. ég heF reynt þetta nokkrum sinnum og mistekist með glæsi- legum árangri. Fundist ég enn ömurlegri en nokkru sinni fyrr. Ömurlegri vegna þess að mér höfðu verið rétt verkfærin; ég hafði bara ekki notað þau. Þangað til nú. Þá steðjuðu að þannig erfiðleikar að ég sá ekki fram úr þeim. Í huganum tók ég fram farsímann minn og sló inn skilaboð til allra vina minna og fjölskyldu að verri gæti staðan ekki orðið. Þegar ég svo ætlaði að ýta á „senda skilaboð“ (í hug- anum sko), ýtti ég þess í stað á „hreinsa texta“ og skrifaði nýjan. Sá fjallaði um hvað allt hefði litið illa út, en það hefði allt farið á besta veg. Slík varð raunin! ég held að æðruleysi sé eitt sterkasta aflið sem mannshug- urinn býr yfir ef okkur lærist að nota það. Þá værum við ekki um miðja nótt að velta fyrir okkur hvort rúðan ætli að fjúka inn eða út. Þá værum við bara við kerta- ljós að skrifa Sandkassa fyrir DV og hugsa: Gott að glugginn getur ekki lent á neinu lifandi og ef hann brotnar inn á við er ég svo heppin að eiga sóp. anna kristine veltir fyrir sér hvort áhyggjur geti gengið af fólki dauðu. Plokkfiskur á plokkfisk ofan DV Umræða ÞrIðJuDagur 25. SEPtEmbEr 2007 21 DV fyrir 25 árum guðbergur bergSSon rithöfundur skrifar „Líklegast er að menn kunni hvorki að nota táknmál né samlíkingu“ því þeir vita ekki...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.