Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 64

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 64
þjóðlífshátta sömuleiðis, er nokkurn veginn víst, að unga kynslóðin varð- veitir í meginatriðum lífsviðhorf og siði feðra sinna og mæðra. Hvorugt þessara skilyrða er fyrir hendi á ís- landi í dag. Mér virðist, vonandi rang- lega, að íslenzkir ráðamenn gefi þess- um atriðum ekki nægan gaum, og því vildi ég benda á þau, þótt það hafi raunar verið gert af ýmsum áður beint eða óbeint. Lítum fyrst á atvinnubyltinguna. Því verður að tnia, að þroski hvers einstaklings sé takmark í sjálfu sér. Manngildi einstaklingsins byggist einkum á því, að meðfædd, persónu- leg' sérkenni lians fái þroskazt og not- ið sín. Þá hefur hann alltaf citthvað fram að leggja í samfélagi sínu. Iiið sama gildir að sínu leyti um menn- ingarsamfélögin sjálf sín í milli. Því aðeins auka þau þætti í menningu heimsins, að þau túlki á sinn sérstaka liátt reynslu og líf samfélagsins í heild. Lífshættir í nútímaþjóðfélagi, sem einkennist af skipulagningu og tækni, eru ekki hagstæðir persónulegum Jn'oska einstaklingsins, því sem kalla mætti mennsku manna. Þvert á móti eru þeir beinlínis andstæðir persónu- legu lífi. Þessi vandi er að vísu sam- eiginlegur miklum hluta mannkyns, en ])ó sérlega viðsjárverður Islend- ingum bæði sökum mannfæðar og þess hve langt stökk við höfum tekið á skömmum tíma. Mætti um þetta rita langt mál, þótt rúmið leyfi það ekki hér. Eg hef hér að framan bent á hætt- ur þær, sem fylgja tækniþróun og skipulagningu nútímans. Samt er það ekki meining mín að reyna eigi að 62 snúa þessari þróun við og hverfa til fábrotnari lífshátta. Slíkt er hvort tveggja í senn óhugsandi og óæski- legt. Framfarir og bætt lífskjör fjöld- ans eru eitt af skilyrðum menningar, þótt þau séu ekki og geti ekki verið takmark í sjálfu sér. Þroski einstak- Iingsins er hins vegar markmið, sem virðist alhæft. Vandinn, sem íslend- ingar og margar aðrar þjóðir standa andspænis, er sá, að skilyrði þroskans fela í sér stórfelldar hættur, sem geta eyðilagt mennina, mennsku þeirra og manngildi. Fyrst er að gera sér þessa grein: Vísindaþekking og tækni fela í sér stórkostlega nýja möguleika til menn- ingar fyrir fjöldann — fyrir mann- kynið í lieild. Þess vegna munu hinir nýju lífshættir sigra. Því er gagns- laust liér á íslandi, að benda á til beinnar eftirbreytni, að afreksmenn hafi á liðnum öldum alizt upp í sveit- um landsins við litla skólagöngu, fá- tækt og fábreytt lífskjör. Þær aðstæð- ur eru ekki lengur fyrir hendi. Ilér er hins vegar mikilvæg sönnun þess, að einstaklingar geta, þrátt fyrir erfið skilyrði, skapað menningarsamfélag, ef slíkt hugarfar er fyrir hendi og baráttuviljann brestur ekki. Eg held ekki, að íslenzkar sveitir í dag frelsi ísland frá því að verða land lítilsigldra, þægindasjúkra og sérkennalausra fiskimanna, iðnaðar- og skrifstofumanna og verksmiðju- fólks. Það getur aðeins þetta fólk sjálft, því að á næstu 40 árum verður það kjarni og meginþorri þjóðarinn- ar. Og í þessu sambandi er vert að minna á, að meginhluti þjóðarinnar, sá sem ráða mun örlögum hennar fremur öðrum, mun ekki vaxa upp DAGSKRÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.