Félagsbréf - 01.07.1956, Blaðsíða 5
Sr. Sigurður Einarsson:
Valdaránið mikla
INNGANGSORÐ
Atburðir síðustu vilcna hafa í rikum mæli beint athygli alls
heimsins að löndunum austan jámtjaldsins. Frelsisbarátta Pól-
verja og Ungverja hefur bergmálað um öll lönd og snortið dýpri
strengi í brjóstum þegna hins frjálsa heims en nokkrir atburðir
aðrir, sem gerzt hafa- hin síðari ár. Að baki þessara atburða ligg-
ur harmsaga, sem íslendingum er ennþá allt of ókunn og óljós,
sagan um valdarán kommúnista í leppnkjunuw>, og óheyrilega
meðferð þeirra á þessum rikjum síðan. Hér verður leitazt við
að rekja megindrætti þeirrar sögu eftir ýmsam heimildum.
Drýgstar í því efni eru opinberar tilkynningar Ráðstjómarinnar
og stjóma leppríkjanna. Að miklu gagni hafa og komið skýrslur
ýmsra sendiherra og opinberra nefnda, sem afskipti hafa haft
af málefnum þessara ríkja. Þá hefur og í verulegum atriðuw\
verið stuðzt við ritið The East European Revolution eftir Hugh
Seton-Watson, hiS gagnmerkilegasta rit um kommúnista-bylt-
ingamar í Austur-Evrópu og stofnun og stjómarháttu hinna
svonefndu „Alþýðulýðvelda“. Fleiri heimildir er óþarft að telja.
Að þessu sinni verður hér einkum fjállað um Ungverjaland og
Póllanden vitanlega er þess hin mesta þörf að rekja ófarasögu
aXlra leppríkjanna fyrir íslenzka lesendur, og má vera, að síðar
gefist tækifæri til þess. Hér mæla sagan og staðreyndimar sterk-
um vamaðarorðum til þjóða, sem ennþá eiga frelsi sitt óskert og
ætla sér þann manndóm að varðveita það.