Félagsbréf - 01.01.1958, Qupperneq 4
Sloan Wilson er ungur rithöfund-
ur, 36 ára að aldri. Hann var her-
maður í síðasta stríði, en er nú kenn-
ari í enskri tungu og bókmenntum
við háskólann í Buffalo. Gráklæddi
maðurinn kom fyrst út 1956 og hef-
ur lengi verið metsölubók um öll
Bandaríkin.
Páll Skúlason ritstjóri þýðir bókina
á íslenzku.
330 bls. Verð til félagsmanna fer
ekki fram úr kr. 68.00 (heft), kr.
90.00 (í bandi).
«
eftir ameríska rithöfundinn SLOAN WILSON
Gráklæddi maðurinn fjallar um ungan
heimilisföður, Tom Rath, sem býr ásamt
Betsy, ungri og fallegri konu sinni, og
þremur bömum í lélegu húsi í Westport.
Tom er vel gefinn maður með miðlungs
tekjur, en húsið er orðið of lítið, og þessi
ungu hjón dreymir, eins og títt er, um
hærri laun, betri íbúð og háskólanám
barnanna.
Stríð Toms fyrir bættum kjörum verð-
ur allsögulegt og áhyggjur þungar. Marg-
ar minnisstæðar persónur koma við
sögu, m. a. hinn ógleymanlegi milljóna-
mæringur Hopkins, sem hugsar ekki um
neitt nema vinnu sína, dag og nótt, 365
sólarhringa á ári.
Bókin er bæði gamansöm og spennandi,
og allir, sem lesa hana, hafa áreiðan-
lega mikla ánægju af. Þarna er lýst ung-
um hjónum eftir stríðið og lífsbaráttu
þeirra betur en í nokkurri annarri bók,
sem við höfum kynnzt.