Félagsbréf - 01.01.1958, Síða 10
HVER ER SINNAR GÆFU SMIÐUR — Handbók Epiktets
Þetta litla, heillandi heimspekirit á fáa sína líka í heims-
bókmenntimum. Hér eru spjátrungar . áminntir og hrelldir
huggaSir, en síðast og fyrst er boðað siðsamlegt og ham-
ingjusamlegt lífemi og hvemig það skuli höndlað. Ritið
er svo ljóst, að hvert mannsbarn getur notið þess, og
vissulega á það eigi síður erindi til nútímans en fyrri
kynslóða. Þýðandi er dr. Broddi Jóhannesson, og ritar
hann einnig merkan eftirmála um helmspekinginn.
115 bls. Verð til félagsmanna ób. kr. 30.00, rexinb.
kr. 47.00.
£ft *
FÓLKUNGATREÐ eftir Verner von Heidenstam.
Ekkert sænskt skáld verðskuldar þjóðskáldaheitið fremur /
en Verner von Heidenstam. Fólkungatréð er af mörgum '
talið fremsta skáldverk hans í óbundnu máli — sagan um /
Fólkungaættina, sem að sumu leyti minnir á Sturlunga-
ættina í vorri eigin sögu — ættina, sem er af alþýðunni
komin, rís til æðstu metorða og valda, hnígur loks og
hverfur til hins óþekkta uppruna síns. Þýðandi er Frið-
rik Ásmundsson Brekkan. 414 bls. Verð til félags-
manna ób. kr. 76.00, 1 rexinb. kr. 98.00.
SMASOGUR cftir William Faulkner.
Hér eru sex af beztu smásögum hins bandaríska
skáldjöfurs. Allar miklar skáldsögur geyma í sér
eitthvað, sem tryggir, að þær verði lesnar, eftir
að „,góðar skáldsögur" eru huldar ryki. Það er
ekki víst, að Faulkner verði alltaf lesínn af
þeim, sem hafa „gaman af góðum skáldsögum",
þó að vegur hans sé mikill nú. En hann verð-
ur lesinn, meðan einhverjir kunna að meta
miklar bókmenntir — eins og sögur Dosto-
jevskis eða Dickens. Þýð. er Kristján Karls-
son, og ritar hann einnig formála. 140
bls. Verð til félagsmanna ób. kr. 40.00,
rexinb. kr. 57.00.