Félagsbréf - 01.10.1958, Side 50
Um Almenna bókafélaglð
IVýir útgáíuhœttir reynant
vel.
MSIR velunnarar Bókafélag'sins
voru á liðnu vori uggandi yfir
þeirri breytingu, sem þá var gerð
á skipulagi félagsins. Óttuðust þeir
um fjárhag útgáfunnar, er félags-
mönnum væri í sjálfsvald sett, hverj-
ar af bókunum þeir tækju. Á hinn
bóginn fögnuðu allir auknu frjáls-
ræði, er félagsmönnum félli í skaut
með nýbreytninni.
Þegar hefur nokkur reynsla feng-
izt af „mánaðai-bóka-kerfinu“ og
bendir hún ótvírætt til þess, að
skipulagsbreytingin verði félaginu
heillaspor. Að vísu minnka upplög-
in nokkuð frá því sem áður var, en
þó hafa „bækur mánaðarins" allar
selzt í um og yfir 4000 eintökum.
Því verður eigi neitað, að aukn-
ar skyldur eru lagðar á félagsmenn
samfara auknu frjálsræði, sem hinir
nýju útgáfuhættir veita þeim. Þann-
ig ber mönnum að tilkynna fyrir-
fram, ef þeir eigi óska að fá ákveðn-
ar bækur. Hefur nokkur misbrestur
■orðið á þessu á byrjunarstigi, eins
og búizt var við, en flestir hafa nú
áttað sig á því, að kvaðir þessar eru
ekki þungbærar, þar sem eigi þarf
annað en fleygja ófrímerktu spjaldi
,í póstkassa eða hringja til skrif-
stofu félagsins eða umboðsmanna.
Aftur á móti eykst umstang aðal-
skrifstofu félagsins og umboðs-
manna. Eru það gleðitíðindi, hve
■umboðsmenn hafa sýnt málinu mik-
inn skilning og lagt sig fram við að
vinna að bættum hag félagsins.
Að liðnum þriggja ára starfstíma
er Almenna bókafélagið orðið stærsta
bókafélag landsins. Lætur nærri, að
á tímabilinu hafi félagið selt jafn-
mörg eintök og landsmenn eru.
Stjórnendur félagsins hafa vand-
að val útgáfubóka, en þeir ætla sér
ekki þá dul, að viðgangur félagsins
sé þeim einum að þakka. Miklu frem-
ur er orsakanna að leita í ötulu starfi
fjölmargra ágætra umboðsmanna og
svo auðvitað velvilja almennings og
skilningi á nauðsyn þess að efla lýð-
ræðissinnað útgáfufélag, sem nýtur
krafta fremstu skálda og mennta-
manna þjóðarinnar.
£nn Jiarf átah.
Um þessar mundir er Almenna bóka-
félagið að hefja nýja sókn til efl-
ingar félaginu. Þátttakan er mis-
jöfn í byggðarlögum landsins. Verð-
ur nú lögð á það megináherzla að
auka félagatöluna upp í 5% íbúa
í þeim hreppum og kaupstöðum, sem
dregizt hafa aftur úr.
Félagsstjórnin veit, að umboðs-
menn á viðkomandi stöðum munu
beita sér til að ná þessu marki, en
hún skorar jafnframt á þá f jölmörgu
íslendinga, sem reynslu hafa af fé-
laginu, að beita áhrifum sínum með-
al vina og nágranna í þá átt, að
þeir kynni sér útgáfu Bókafélags-
ins og gerist félagar. Með auk-
inni þátttöku batna kjörin. Því
stærra upplag, þeim mun lægra verð.
Loks þakka stjórendur félagsins
öllu því fólki, sem lagt hefur fram
krafta sína til að efla menningar-
félag lýðræðissinnaðra íslendinga.