Fréttatíminn - 25.04.2014, Qupperneq 31
sig. Þar er
algjört gat á
markaðinum
því það eru
fáir eftir hér
heima með
þá þekk-
ingu. En
mér finnst
það bara
skipta mjög
miklu máli
að varan sé
framleidd
hér og að
þessari verk-
þekkingu sé
viðhaldið.
Að vara sé
gerð í sínu
nánasta um-
hverfi eykur
að sjálf-
sögðu virði
hennar. En auðvitað finnur neyt-
andinn fyrir þessum mun í verðinu
á vörunni sem er töluvert dýrari
þegar hún er unnin út góðu hráefni
og við mannsæmandi skilyrði. Í til-
felli púðanna á allt ferlið, alla leið
úr fjárhúsinu og í sófann, sér stað
hérlendis því eftir að skinnin hafa
verið handsútuð á Sauðárkróki fara
þau til Hveragerðis þar sem þau
eru saumuð.“
Opnaði óvart búð
„Persónulega hef ég ekkert á móti
fjöldaframleiddum hlutum en mér
finnst bara að fólk ætti að kaupa
hluti til að eiga þá, sama hvaðan
þeir koma. Svo er ég orðin svaka-
lega þreytt á gerviefnum og verð
alltaf jafn hissa þegar útlendingar
koma hér inn og spyrja mig hvort
púðarnir séu alvöru,“ segir Auður
en hún opnaði verslunina Insulu
á horni
Klapparstígs
og Skóla-
vörðustígs í
nóvember á
síðasta ári.
„Þessi búð
var bara al-
gjör skyndi-
ákvörðun hjá
mér,“ segir
Auður og
hlær. „Hún
er ekki í
alfaraleið en
samt heillaði
þessi stað-
setning mig.
Mig langaði
til að búa
til ákveðna
stemningu
og umgjörð
utan um
púðana mína og á sama tíma var
þetta horn laust svo ég bara stökk
á þetta,“ segir Auður en auk sinnar
hönnunar er hún með nokkra vel
valda hluti. „Ég er hér með púðana
mína og aðra smávöru frá litlum
framleiðendum auk spegils sem ég
kynnti núna á Hönnunarmars. Svo
er ég farin að vinna með bólstrar-
anum í Bergstaðastræti en hann
bólstraði fyrir mig tekk sófasett
sem núna er til sölu í búðinni og
okkur langar að gera meira saman
í framtíðinni, jafnvel fara í að fram-
leiða eitthvað af litlum húsgögnum
og nota hans efni í það. Þessi búð
er bara svona verkefni sem er að
þróast í einhverja átt, hér eru í
rauninni bara þeir hlutir sem ég
myndi vilja hafa heima hjá mér.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
hönnun 31Helgin 25.-27. apríl 2014
20–50 %
Afsláttur
Við erum ekki Að hættA
552-8222 / 867-5117
{Skápar}
{Skenkir}
{Myndir}
{Styttur}
{Postulín}
{Silfur}
{Stólar}
{Borð}
30 – 50 % AF
húsgögnum
50 %
AF bókum
20 % AF
smáhlutum
rýmingArsAlA
VegnA PlássleYsis út mAÍ
Gildi - lífeyrissjóður
Sætúni 1
105 Reykjavík
Sími 515 4700
www.gildi.is
gildi@gildi.is
Á R S F U N D U R
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Grand Hótel
Reykjavík miðvikudaginn 30. apríl kl. 17.00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins liggja frammi á
skrifstofu sjóðsins og eru birtar á heimasíðunni,
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi
og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum
stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum
standa, fer með atkvæði á ársfundinum.
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast
stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Reykjavík 4. apríl 2014,
lífeyrissjóður
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
2 014
www.gildi.is