SSFblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 5

SSFblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 5
5 Nú þegar líður að sumarfríum er gott að fara yfir Nokkur atriði varðaNdi orlofsmál. Fyrst ber að nefna að það tímabil sem starfsmaður er að vinna sér inn orlofsrétt er kallað orlofsár og er samkvæmt Kjarasamningi SSF frá 1. maí til 30. apríl. Í Kjarasamningi SSF (kafla 4) er lágmarksorlof 24 vinnudagar. Starfsmaður, sem hefur unnið hluta af fullu starfi eða hluta úr ári, skal fá orlof í tvo vinnudaga fyrir hvern unninn mánuð. Þeir sem starfað hafa í 5 ár fá leyfi í 27 daga og þeir sem hafa starfað í 10 ár fá 30 daga. Starfsmaður sem öðlast hefur lengri orlofsrétt hjá öðrum vinnuveitanda en fjármálafyrirtæki fær hann að nýju eftir þriggja ára starf. Varðandi lengingu orlofs eftir 5 og 10 ár þá tekur sú lenging aðeins gildi ef starfsaldrinum er náð fyrir 1. maí. dæmi: Anna hafði unnið í 5 ár í banka þann 30. apríl 2013 og á hún því 27 daga orlof sumarið 2013. Jón hinsvegar, hafði unnið í 4 ár og 11 mánuði þann 30. apríl 2013 og hann á því ekki 27 daga orlofsrétt fyrr en sumarið 2014. Nokkurs misskilnings hefur gætt varðandi orlofstíma og lengingu orlofs sem tekið er utan hefðbundins orlofstíma. Í Kjarasamningi SSF (grein 4.4) kemur fram að hefðbundinn orlofstími sé frá 15. maí til 30. september ár hvert. Sé orlof hinsvegar tekið á tímabilinu frá 1. október til 14. maí lengist það orlof um ¼ hluta. Þegar orlof er flutt á milli orlofsára þá fæst ekki lenging á þá orlofsdaga. dæmi: Anna hafði unnið sér inn 24 orlofsdaga þann 30. apríl 2012. Hún tók aðeins 15 daga sumarfrí sumarið 2012 þar sem hún ætlaði í utanlandsferð þá um haustið. Utanlandsferðin var vikuferð í desember en þar sem orlofið var tekið utan hefðbundins orlofs- tíma dugðu 4 orlofsdagar á móti 5 frídögum frá vinnu. Anna á því 5 daga í ótekið orlof þann 30. apríl 2013 og á því samtals 29 orlofsdaga sumarið 2013. Rétt er að benda á að starfsreglur fjármálafyrirtækja geta takmarkað heimild starfsmanna til að taka orlof utan hefðbundins orlofstíma, að sama skapi er rétt að starfsmenn kynni sér reglur vinnuveitanda varðandi flutning orlofs á milli orlofsára. Starfsmaður og yfirmaður hafa samráð um það hvenær orlof skal tekið (grein 4.5). Nú er það svo að ástæðan fyrir því að starfsmenn fá orlof er þörfin fyrir hvíld. Því hefur SSF lagt áherslu á að félags- menn taki minnst þriggja vikna samfellt sumarfrí þannig að um raunverulega hvíld sé að ræða. Eins og fram hefur komið fer lengd orlofs að hluta eftir starfsaldri hjá þeim fyrirtækjum sem greiða laun samkvæmt Kjarasamningi SSF og er því mikilvægt að starfsaldur sé rétt skráður hjá vinnuveitanda. Starfsmaðurinn sjálfur ber ábyrgð á því að svo sé. Alla jafna er auðsótt að fá útgefið starfsvottorð frá fyrri vinnuveitanda (fjármálafyrirtæki skv. Kjarasamningi SSF) sem síðan er skilað til launadeildar hjá núverandi vinnuveitanda. Hilmar Vilberg Gylfason, lögfræðingur Fjármálastjóri SSF Túlkun kjarasamninga - OrlOf - vissir þú að... ...á hverjum vinnustað, þar sem starfandi eru a.m.k. 5 félagsmenn SSF, er starfsmönnum heimilt að velja sér trúnaðarmenn sem eru ábyrgir gagnvart SSF og eru tengiliðir sambandsins við aðildarfélögin. Trúnaðarmaður gætir þess, að kjarasamningar séu haldnir og réttur starfsmanna sé í hvívetna virtur, einkum orlof, vinnuvernd, öryggi og hollustuhættir. Hann gerir sitt besta til að skapa og viðhalda góðri samvinnu innan stofnunar og leitast við að leysa hugsanleg ágreiningsefni. ...það voru um 103.034.000 af einnar krónu mynt í umferð í lok apríl 2013. Það er um 3,9% af allri þeirri mynt sem er í umferð. Heimild: Seðlabanki Íslands ...ný heimasíða SSF var tekin í notkun í apríl. Mikil vinna var lögð í að gera síðuna sem aðgengilegasta fyrir félagsmenn.

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.