SSFblaðið - 01.10.2013, Qupperneq 6
6
eyþór eðvArðsson, vinnusálfræðingur, hefur undAnfArin
misseri hAldið námskeið um sAmstArf og stArfsánægju fyrir
fyrirtæki og stofnAnir um Allt lAnd. Námskeiðið er að mestu
leyti í fyrirlestraformi og ber heitið Hamingja, mórall, vinnugleði
og helvíti og hefur notið mikilla vinsælda. Á námskeiðunum fjallar
Eyþór, sem er annálaður fyrirlesari og afreksmaður, um það hvernig
bæta megi samstarf, starfsánægju og samskipti innan vinnustaðarins.
„Samstarf á vinnustöðum ætti auðvitað að geta gengið frábærlega
því allir vilja að samskiptin séu góð, að verk séu vel og rétt unnin,
vera stoltir af eigin verkum og svo mætti lengi telja. En það er ekkert
sjálfgefið og bara sú staðreynd að 48% sambúða endar með skilnaði
- og þar er byrjað með sterkar yfirlýsingar, tilfinningar og ætlanir -
gefur vísbendingu um að oft fari samstarf á annan veg en ætlað er“
segir Eyþór. En hvernig er almennilegt samstarf á vinnustöðum?
Við hlýddum á námskeið Eyþórs og tókum hann tali að fyrirlestri
loknum.
hvAð getA vinnustAðir gert til Að eflA stArfsánægju
Eyþór segir að vinnustaðir geti gert fjölmargt til að stuðla að og
efla starfsánægju. „Ein leið er að vera vakandi yfir því hvernig
starfsandinn og starfsánægjan er, t.d. með því að hafa regluleg
starfsmannasamtöl, gera viðhorfskannanir á starfsandanum,
halda starfsdaga og vinnufundi og efla stjórnendur í að sinna sínu
starfi. Síðan að vera með einhverjar aðgerðir sem miða að því að
efla og styrkja vinnustaðinn, eins og t.d. að styrkja stjórnendur í
stjórnunarhlutverkinu þannig að þeir séu klárir í að taka á þeim
málum sem koma upp og vinna með þau. Einnig er mikilvægt að
stjórnendur séu jákvæðir gagnvart aðgerðum sem styrkja andann eins
og að hafa skemmtinefnd sem stendur fyrir reglulegum uppákomum
sem létta andann, halda árshátíðir, vera með föstudagskaffi,
tiltektardag o.fl.“
„þAð er lífsins kúnst Að kunnA Að verA óánægður“
Starfsandinn er ekki eingöngu undir vinnustaðnum kominn.
Hver og einn starfsmaður þarf að leggja sitt að mörkum til að efla
starfsánægjuna. Eyþór telur að ef hann ætti að nefna eiginleika
sem starfsfólk ætti að tileinka sér í auknum mæli til að efla
starfsánægjuna þá er það að vera jákvæður og uppbyggilegur.
„Það er ekki við því að búast að allir séu sáttir við allt sem er gert
og því er mikilvægt að geta umborið. Það er lífsins kúnst að kunna
að vera óánægður, kunna að gagnrýna, leggja til lausnir og virða
ólíkar skoðanir. Þannig eiginleikar eru ómetanlegir“ segir Eyþór.
hvAð veldur slæmum stArfsmórAl?
„Margt getur valdið slæmum starfsmóral. Það er gagnlegt að greina
á milli starfsánægju, sem varðar ánægju einstaklings í starfi, og
starfsanda, sem varðar ánægju fólks með það hvernig samskiptin og
stemmningin er á vinnustað. Starfsandi og starfsánægja hafa mikil
áhrif hvort á annað en eru samt tvö fyrirbæri. Algengar ástæður
þess að fólk er ekki sátt í starfi er að það er óöruggt með sitt starf,
GÓÐUR STARFS-
ANDI ER ÓMETAN-
LEGUR FYRIR
STARFSFÓLK
OG FYRIRTÆKI
segir eyþór eðvarðsson, vinnusálfræðingur sem er
stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá þekkingarmiðlun
„Fólk sem er ánægt og finnur sig á
vinnustaðnum er líklegra til að leggja meira
til málanna en þeir sem eru óánægðir. Ánægt
fólk er líklegra til að vera meira skapandi,
koma með tillögur og leggja meira á sig fyrir
samstarfsmenn og vinnustaði“