SSFblaðið - 01.10.2013, Qupperneq 7
7
lAunAreiknivél
fyrir félAgsmenn
Á heimasíðu SSF er nú hægt að skoða laun í
fjármálafyrirtækjum, skv. launakönnunum SSF, miðað
við tilteknar forsendur. Launareiknivélin er aðgengileg
og auðveld í notkun og gagnast félagsmönnum SSF
í að bera saman laun sín við meðaltal launagreiðslna
fjármálafyrirtækja skv. fyrrgreindri könnun.
aðbúnaður er ekki góður, álag mikið, upplýsingar takmarkaðar,
óánægja er með breytingar, fólk upplifir stöðnun í starfi, verkefnin eru
ekki nógu krefjandi, of flókin eða of mörg, einhæfni o.s.frv. Algengar
ástæður fyrir lélegum starfsanda geta t.d. verið einstaklingar sem eru
óánægðir og smita út frá sér, neikvæð umræða á vinnustað, neikvæð
ímynd vinnustaðar, stefnuleysi og áhugaleysi stjórnenda, ekki tekið
á málum sem þarf að taka á, einelti, baktal o.fl. Listinn getur verið
langur,“ segir Eyþór sem segir að það sé ekki óyfirstíganlegt vandamál
að efla starfsanda né það að snúa óánægju í starfi yfir í ánægju með
uppbyggilegum hætti.
Eyþór segir að vinnustaðir geri sér grein fyrir þessu og að vaxandi
áhugi sé á að hlúa að góðum starfsanda og viðhalda starfsánægju
starfsfólks. Hann segir fjölmarga vinnustaði láta sér annt um þessi
mál og gera margt til að fólk sé ánægt í starfi og á vinnustaðnum.
fAll bAnkAnnA hAfði mikil áhrif
Aðspurður að því hvernig íslensk fjármálafyrirtæki standa sig í þessum
málaflokki segist Eyþór telja að þau standi ágætlega að vígi. “Hrunið
breytti mörgu því starfsandinn versnaði og starfsánægja minnkaði
og það þurfti að vinna mikið í þessum málum eftir það. Miklar
breytingar hafa orðið á fjármálamarkaðnum og fjármálafyrirtækin
hafa breyst á undanförnum árum og það hefur ekki alltaf verið
auðvelt fyrir starfsfólkið. Margir hafa þurft að horfa á bak góðum
samstarfsmönnum sem hafa þurft að hætta vegna breytinga og slíkt
tekur tíma.“
ánægt stArfsfólk AfkAstAr meiru
Niðurstöður kannana um ánægju starfsfólks og afkastagetu eru
flestar á einn veg að mati Eyþórs. „Fólk sem er ánægt og finnur sig
á vinnustaðnum er líklegra til að leggja meira til málanna en þeir
sem eru óánægðir. Ánægt fólk er líklegra til að vera meira skapandi,
koma með tillögur og leggja meira á sig fyrir samstarfsmenn og
vinnustaði“ segir Eyþór. Hann segir að fjölmargt geti haft áhrif
á ánægju fólks í starfi. „Það er mjög mikilvægt að fólk upplifi að
það hafi tök á sínu starfi, viti að það sé að standa sig t.d. í gegnum
hrós, upplifi að það sé hluti af vinnustaðarhópnum og skipti máli.
Einnig að fólk upplifi að það sé að vaxa í starfi og sinna einhverju
sem skiptir það máli. Maður er manns gaman og það sýnir sig aftur
og aftur að hver og einn skiptir máli.“
þegAr stArfsfólk missir trúnA
„Það gerist stundum að fólk missir trúna á vinnustaðnum eða á
stjórnendum og nær ekki að vinna með það öðruvísi en að vera
stöðugt að úttala sig um það við alla alls staðar. Slíkt hefur neikvæð
áhrif á starfsandann og skapar leiðindi á vinnustaðnum“ segir Eyþór.
Aðspurður að því hvað starfsfólk og vinnustaðurinn geti gert til
að endurvekja trúna og samstarfið segir Eyþór að „hver og einn
beri ábyrgð á sinni ánægju og þar hefst þetta. Því til viðbótar bera
stjórnendur ábyrgð á því að það sem snýr að vinnustaðnum sé í lagi.
Samstarfsfólk verður að bera ábyrgð á því sem það segir og gerir.
Góðir samstarfsmenn leggja sitt af mörkum til að bæta vinnustaðinn
og skapa góðan starfsanda. Það er ómetanlegt.“
„Það er ekki við því að búast að allir séu sáttir
við allt sem er gert og því er mikilvægt að geta
umborið. Það er lífsins kúnst að kunna að
vera óánægður, kunna að gagnrýna, leggja
til lausnir og virða ólíkar skoðanir. Þannig
eiginleikar eru ómetanlegir“