SSFblaðið - 01.10.2013, Síða 10
10
í kjArAsAmningi ssf, grein 1.7, segir um stArfsmAnnAviðtöl Að
stArfsmAður eigi rétt á viðtAli við yfirmAnn einu sinni á ári um
störf sín og hugsAnlegA breytingu á stArfskjörum. Jafnframt
segir að veita eigi slíkt viðtal innan tveggja mánaða.
Markmiðið með starfsmannaviðtali er að bæði yfirmaður
og starfsmaður geti tjáð sig um starfið og tengd mál. Til að
starfsmannaviðtalið verði sem gagnlegast er æskilegt að aðilar ræði
þau málefni sem snúa að starfi starfsmannsins. Til dæmis getur
hér verið átt við:
• helstu verkefni í stArfinu.
• stArfið sjálft og vinnuálAg. þekkingu
stArfsmAnnsins, fjöldA verkefnA,
verkefnAstjórnun og ánægju í stArfi.
• stArfsumhverfi. stArfsskilyrði og
vinnuAðstöðu.
• sAmskipti. við vinnufélAgA, viðskiptAvini og
stjórnendur. upplýsingAflæði.
• stArfsAndAnn á vinnustAðnum og endurgjöf
næstA yfirmAnns til stArfsmAnnsins.
• stArfsþróun og mArkmið. núverAndi
stArfssvið, námskeið og mArkmið til t.d. 12
mánAðA.
• önnur stArfskjör.
Svokölluð starfsþróunarviðtöl sem fyrirtækið ákveður einhliða
að framkvæma ár hvert eru ekki það sama og starfsmannaviðtöl
(launaviðtöl) samkvæmt kjarasamningi SSF. Starfsmenn sjálfir
óska eftir starfsmannaviðtali við yfirmann sinn, samkvæmt
kjarasamningnum, þegar þeir telja þörf á að ræða starfið og starfskjör,
þar með talin launakjör.
Til þess að starfsmannaviðtal nýtist sem best er mikilvægt að
starfsmaðurinn komi vel undirbúinn. Mikilvægt er að þú sem
þátttakandi í samtalinu gerir þér grein fyrir hvað það er sem þú
vilt ræða. Þannig er mikilvægt að skoða hug sinn til ýmissa hluta
er varða starfið, til dæmis með því að skrifa niður allt það sem
þú telur þig hafa gert vel á liðnu ári, starfstengd markmið og fara
yfir launakjörin meðal annars með því að skoða launareiknivél og
launakönnun á heimasíðu SSF. Undirbúningurinn er lykilatriði og
auðvelt er að nálgast leiðbeiningar á netinu með því til dæmis að slá
inn leitarorðin ,,starfsmannaviðtöl“ og ,,undirbúningur“.
Hilmar Vilberg Gylfason, lögfræðingur
Fjármálastjóri SSF
TÚLKUN KJARASAMNINGA
STARFSMANNAVIÐTÖL/LAUNAVIÐTÖL
menntunArsjóður ssf
Opnað var fyrir umsóknir í Menntunarsjóð SSF þann
15. september sl. og eru þeir félagsmenn sem hyggjast
mennta sig hvattir til að sækja um.
Markmið sjóðsins er að efla félagsmenn í starfi, gera
þá að betri starfsmönnum og samkeppnishæfari á
vinnumarkaði. Einnig skal sjóðurinn styrkja nám sem
eflir félagsmenn til þátttöku í félagsstarfi
Umsóknarfrestur fyrir nám á sumar- eða haustönn er til
15. janúar ár hvert en til 15. júní vegna vorannar.
Allar nánari upplýsingar og rafrænt umsóknarform er að
finna á heimasíðu félagsins, www.ssf.is.