SSFblaðið - 01.10.2013, Page 18
18
formAður ssf, friðbert trAustAson, komst í hAnn krAppAn á
leið sinni frá reykjAvík í ísAfjArðArdjúp þAr sem hAnn ferðAðist
með tengdAforeldrum sínum um miðjAn september sl. Þar fékk
Friðbert hvorki meira né minna en vegavinnuhefil bókstaflega
inn í bifreið sína. Atvikið átti sér stað er Friðbert hafði staðnæmst
eftir að hafa komið akandi ofan af Bröttubrekku niður í Dali.
Við Erpsstaði, þar sem fjölmargir stoppa á leið sinni vestur til að
fá sér rómaðan ís úr hinu fræga mjólkurbúi, var Vegagerðin að
vinna við vegarkafla. Á þessum stað stöðvaði Friðbert
bifreið sem og aðrir bílar á eftir honum og fylgdust
með vegheflinum rífa upp malbikið. Friðbert sem var
fremstur á Volvo bifreið sinni fór eftir leiðbeiningum
vegavinnufólks og keyrði varlega inná svæðið og
stoppaði í ca. 15 metra fjárlægð frá heflinum. Taldi
Friðbert sig öruggan þar sem honum var leiðbeint
að fara og óraði ekki fyrir því að ökumaður hefilsins
hefði ekki vitneskju um þau, en eftir að hefillinn hafði
haldið örlítið áfram, stoppaði hann og hóf að bakka á
hinum vegarhelmingnum. Öllum að óvörum „beygir
hefillinn yfir á okkar vegarhelming, gefur nokkuð í og
endar uppá vélarhlífinni með „ripperinn“ í gegnum
framrúðuna bílstjóramegin hjá mér“ segir Friðbert.
Hann segir að þetta hafi allt gerst frekar hratt og var
„óraunveruleg uppákoma þar sem ég hef vanist því að
treysta starfsmönnum vinnuvéla fullkomlega í gegnum
árin við misjafnar aðstæður á vestfirskum vegum og
heiðum. En svona fór og bíllinn ónýtur“.
kom sér undAn „rippernum“
„Mér tókst að koma mér undan rippernum með
því að leggjast í kjöltu tengdamömmu, sem var í
hægra framsætinu, en yfir okkur dreifðist fíngerður glersalli úr
öryggisframrúðunni, og helsta hættan var að fá sallann í augun. Ef
mér hefði ekki tekist að koma mér undan rippernum hefði ekki farið
vel“ svaraði Friðbert aðspurður hvort hann hefði verið í lífsháska.
En til blessunnar sluppu allir vel að bílnum frátöldum, enginn
meiddur en „allir frekar skelkaðir, ekki síst blessaður veghefilsstjórinn
sem hefur starfað við vegagerð í 25 ár og aldrei lent í óhappi áður“
segir Friðbert.
FORMAÐUR SSF Í LÍFSHÁSKA
Eins og sjá má þá komst Friðbert, sem bílstjóri bifreiðarinnar, í hann mjög krappan.
Bíllinn er gjörónýtur.