Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Qupperneq 5
SVEITARSTJÓRNARMÁL
11.árgangur
1951
1.—2. HEFTI
TÍMARIT UM MÁLEFNI ÍSLENZKRA SVEITARFÉLAGA
ÚtGEFANDI : SAMBAND ISLENZKRA SVEITARFELAGA
RlTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMADUR: EIRÍKUR PALSSON
Ritnejnd: Jónas Guðmundsson, Karl Kristjánsson, Þorsteinn Þ. Víg-
lundsson, Djörn Guðmundsson og Erlendur Björnsson.
Utanáskrift: SVEITARSTJÓRNARMÁL, Pósthólf 1079, Reykjavik.
Þingtíðindi
Sambands ísl. sveitarfélaga 1950.
Arið 1950, laugardaginn 26. ágúst, var
IV. landsþing Sambands ísl. sveitarfélaga
sett kl. 10. árdegis að Þingvöllunr í Valhöl].
Formaður Sambandsins, Jónas Guðmunds-
son, setti þingið með ræðu. Bauð hann alla
þingfulltrúa og gesti velkonma til þingsins.
Lvsti hann síðan dagskrá þingsins, og gerði
ýtarlega grein fyrir fyrirhugaðri starfstilhögun
þess.
Að lokum vék hann máli sínu sérstaklega
til erlendra gesta, er mættir voru á þinginu,
kynnti þá hvem urn sig og bauð þá velkomna.
Hinir erlendu gestir voru:
Frá Danmörku:
Den danske Köbstadsforening og De sam-
virkende Sogneraadsforeninger:
Ferdinand Jensen, fhv. borgmester Svend-
borg.
Frá Finnlandi:
Finnska Stadsförbundet og Maalaiskun-
tien Liitto:
Direktör Aarre E. Simonen, fhv. inrikes-
minister.
Frá Noiegi.
Norges Byforbund og Norges Herreds-
forbund.
Byforbundets formand, finansraadman,
Johs. Johnsen, Stavanger.
Frá Svíþjóð:
Svenska Stadsforbundet og Svenska lands-
kommunernas-forbund:
Överlantmátaren Erik Jung, Hámösand.
Ennfremur bauð hann sérstaklega vel-
komna Jressa innlendu gesti:
Steingrím Steinþórsson, forsætis- og félags-
málaráðherra og Pál Hallgrímsson, sýslu-
rnann Árnessýslu.
Fulltrúaráð sambandsins hafði daginn
áður skipað kjörbréfanefnd fyrir þingið sem
hér segir:
Eirík Pálsson, framkvstj. sambandsins,
Kristján Bjartmars, oddviti, Stykkishólmi og
Jón Jónsson, oddviti, Hofi.
Samkvæmt skýrslu kjörbréfanefndar, höfðu
eftirtalin sveitarfélög kjörið þessa fulltrúa á
landsþing sambandsins: