Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Qupperneq 14

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Qupperneq 14
10 SVEITARSTJÓRNARMÁL sem til var ætlazt, að rnestu á skrifstofu sam- bandsins, og hafa þau aukizt verulega síðan sambandsfélögin fóru að gera sér grein fvrir því hagræði, er því fylgir, að hafa sérstaka skrifstofu í Reykjavík, sem þau geta snúið sér til um margs konar fyrirgreiðslu. Skrifstofan er opin ákveðinn tíma á dag. Hún hefur með höndum öll bréfaviðskipti sambandsins, sér um fjármál þess þ. á. m. innheimtu árgjalda frá sveitarfélögunum, annast útgáfu tímaritsins Sveitarstjórnarmál að öllu, prentun, prófarkalestur, dreifingu, innheimtu áskriftargjalda og útbreiðslu þess, og er það tafsamara verk en fljótt á litið kann að virðast. Þá hefur og skrifstofan unnið að því, að fá þau sveitarfélög, sem utan við sambandið eru, til að gerast meðlimir. Hafa í því skyni nokkrum sinnum verið send bréf til allra þeirra sveitarfélaga sem enn hafa ekki gerzt meðlimir og þau hvött til þátttöku. Framkvæmdarstjórinn fór í þessu sam- bandi í ferðalag sumarið 1949 og heimsótti hreppana í Gullbringusýslu- og Ámessýslu. Átti hann tal við velflesta oddvita á þessum stöðum, hvort sem þeir voru í sambandinu eða utan þess. Af fjárhagsástæðum hefur ekki verið unnt að heimsækja fleiri sýslur en fyllsta ástæða er til að ætla, að slík ferðalög gætu verið hin þýðingarmestu. Á skrifstofuna koma og sveitarstjórnar- menn, einkum oddvitar, til umræðu um ýmis þau mál, er þeir óska umsagnar eða upplýsinga um eða fyrirgreiðslu á. Skrifstof- an leitast við að koma málum þeirra á fram- framfæri eftir því, sem ástæður eru tril. Látin hafa verið í té munnleg álit og leiðbeiningar um mörg þau viðfangsefni, er sveitarstjómar- rnenn eiga við að glíma í starfi sínu. Eins og vænta má eru það fyrst og fremst aðstoð við útvegun lána og lántökur, útsvars- og framfærslumál allskonar og fjárhagsmál sem hjálpa þarf til að greiða frarn úr. Fyrirspumir um sveitarstjórnarmálefni hafa margar borizt skriflega og þeim verið svarað eftir beztu getu. Ef tími hefur verið naumur, hefur verið spurt símleiðis og því svarað þegar í stað, eða í símtali síðar eða með bréfi að nánar athuguðu rnáli. Skrifstofan hefur og haft með höndum viðtöl og viðskipti við ýmsar stofnanir í Reykjavík fyrir oddvita utan af landi. Hún hefur samið við Reykjavíkurbæ um útsvör, innt af höndum greiðslur til hans eða krafið hann um slíkt vegna útsvarsskipta og fram- færslumála. Séð hefur verið um áfrýjun á allmörgum úrskurðum til ríkisskattanefndar og reynt að fylgjast með málum sveitarfélaga þar. Við sveitarstjómarkosningarnar í janúar og nú í júní annaðist skrifstofan prentun og sendingu kjörgagna fyrir rnjög rnörg sveitar- félög. Var það tímafrekt og stundum erfitt að fá prentun, þar sem oft var naumur tími vegna óhagstæðra póstsamgangna. í sambandi við kosningar þessar, sendi skrifstofan út eyðublöð til útfvllingar varð- andi úrslit kosninganna og fleira, er máli þótti skipta. Svör bárust greiðlega. Með þessu móti verður í vörzlu sambandsins glöggt yfiriit um kosningamar og er í ráði að sérstök kosningahandbók áþekk þeirri, er fé- lagsmálaráðun. gaf út 1946, komi út á vegum sambandsins eða ráðuneytisins nú á næstunni. Ýmsir oddvitar hafa fengið aðstoð skrif- stofunnar um innheimtu útsvara og hefur verið reynt að verða við því svo sem tiltæki- legt þótti. Á það má þó benda, að slík inn- heimta er miklum erfiðleikum háð, þar sem oftast er um litlar upphæðir að ræða, en í hlut eiga iðulega lítt fúsir greiðendur og erfitt um að finna heimili þeirra eða vita um atvinnurekanda, ef hann er þá nokkur, og iðulega er um deilukröfur að ræða. Skrifstofan hefur ásamt formanni og stjórn unnið að framkvæmd þeirra mála, sem lands-

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.