Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Page 16

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Page 16
12 SVEITARSTJÓRNARMÁL orðið hefur á prentun og flutningsgjaldi. Nokkrar auglýsingar hafa fengizt í ritið, en vart er að vænta mikilla tekna af þeim í fram- tíðinni eins og nú horfir. Væntanlega mun framtíð tímaritsins nánar rædd þegar fjár- hagsáætlun þess kemur til umræðu, og tel ég því óþarft að fjölyrða um það hér. ÁLYKTANIR LANDSÞINGA. Þau mál, sem landsþingin 1946 og 1948 hafa vísað til stjórnar sambandsins til fyrir- greiðslu og ekki hefur áður verið gerð fulln- aðargrein fyrir eru fyrst og fremst þessi: 1. Endurskoðun sveitarstjórnarlaganna. 2. Hælismálið. 3. Umboðsstörf oddvita og bæjarstjóra. 4. Skemmtana- og veitingaskattur. 5. Innheimta opinberra gjalda. 6. Útsvarsmál. 7. Löggæzlumál. 8. Samræming launa hjá starfsmönnum bæjanna. 9. Innkaupastofnun fyrir sveitarfélög. Af ýmsum þessara mála getur stjórn sam- bandsins að sjálfsögðu lítil afskipti haft önnur en þau, að hlutazt til um það við stjómarvöld landsins, að þau taki, svo sem kostur er, til greina óskir og samþykktir sveitarstjórnamranna. Öllurn þessurn málum, sem að ofan getur hefur stjórnin reynt að fy'lgjast með og beina í þá átt, sem samþykktir landsþing- anna hafa hnigið, en eins og að líkum læt- ur með mismunandi árangri. Nú er svo kom- ið fjárhag ríkissjóðs að fyrirsvarsmenn lians munu telja sér skylt að sporna sem mest við nýjum greiðslum úr ríkissjóði og gild- ir það ekki síður um framlög til sveitarfélaga en annarra aðila. Rétt þykir nú að víkja lauslega að hverju máli sérstaklega: 1. Endurskoðun sveitarst/ornarlaganna. Eitt af verkefnum stjómar sambandsins hefur verið það að beita sér fyrir, að hið fyrsta fari frarn endurskoðun á allri löggjöf urn sveitarstjórnarmál. Stjórnin hefur og stuðlað að því, svo sem henni hefur verið unnt, að slík endurskoðun hæfist. Hefur hún komið þessum kröfum á framfæri bæði við ríkisstjóm og Alþingi, en árangur er lítill, enn sem komið er. Á næst síðasta Alþingi var lögð fram þingsályktun um stjóm stærri kauptúna. Leitað var umsagnar stjómar sambandsins um þingsályktun þessa. í umsögn sinni ósk- aði stjórnin, að Alþingi hæfist handa um að láta fram fara heildarendurskoðun sveit- arstjórnarlöggjafarinnar. Enda þótt þing- nefnd sú, sem rnálið hafði, viðurkenndi rétt- ,mæti þess að heildar endurskoðun færi fram varð ekki af því, að Alþingi gerði sam- þykkt þar að lútandi. Var því aðeins lagt fyrir síðasta Alþingi frumvarp til laga um sveitarráðsmenn. Frumvarp þetta var samið í félagsmála- ráðuneytinu. í því eru ákvæði urn, að kaup- tún með 500 íbúa og fleiri hafi heimild til að ráða sér fastan starfsmann sem yrði eins- konar framkvæmdarstjóri fyrir sveitarfélagið. Stjóm sambandsins fékk frumvarp þetta til athugunar. í urnsögn stjómarinnar um frumvarpið var bent á nokkur atriði til breytinga, sem hún taldi að verða mundu til bóta. Ennfremur átti formaður sambands- ins og framkvæmdarstjóri viðtal við þing- nefnd þá, sem um þetta mál fjallaði. Bæði í viðtalinu svo og í umsögninni var lögð á það rík áherzla, að heildarendurskoðun færi fram á sveitarstjómarlöggjöfinni. Mál þetta dagaði uppi á Alþingi eftir að hafa verið limlest svo að það mátti telja evðilagt. Mjög aðkallandi lagasetning um stjóm stærri kauptúna, hlaut þannig enga af-

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.