Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Page 22
18
SVEITARSTJÓRNARMÁL
um námskeiðum fyrir þá menn, yngri og
eldri, sem hyggjast að taka að sér sveitar-
stjómarstörf, eða hafa orðið að taka þau að
sér, en finna hjá sér vanmátt til að gegna
þeim svo vel sé. Gæti bréfaskóli ef til vill
komið þar að verulegu liði.
Mér hefur verið það óblandin ánægja að
vera með í þessum samtökum, og ég finn hið
innra með mér að starf mitt að þeim er ein-
hver ánægjulegasti þátturinn í allri minni
þátttöku í opinberu lífi.
Nú finn ég einnig, að mér ber að hætta
formennsku í þessum samtökum. Hún fær
varla samrýmst því embætti sem ég gegni. Ég
vil því tjá ykkur það nú, að ég sé mér ekki
fært að taka við kjöri á ný, sem formaður í
sambandinu þótt þess yrði leitað, enda er
nú svo komið að sambandið á mörgum dug-
andi og öruggum mönnum á að skipa, sem
færir eru að taka við stjómarformennskunni.
Hún er nú einnig mun léttari en áður var,
meðan sambandið hafði hvorki eigin skrif-
stofu né starfsmann.
Við höfum enn sem fyrr fylgt þeirri reglu
í stjórn sambandsins, að gera sem minnst að
því að auglýsa afrek okkar fyrir almenningi,
enda ekki af miklu að státa. Hins vænti ég
þó, að þau verk, sem við höfum unnið, og þar
sem við höfurn eitthvað komið við sögu,
þá liafi það reynzt gert af fullum heilindum
og með hag sveitarfélaganna og þjóðfélags-
heildarinnar fyrir augum.
Skýrsla fonnanns var útbýtt prentari til
fundarmanna ásamt dagskrá, fulltrúa- og
félagatali svo og reikningum sambands-
ins og Sveitarstjórnarmála.
7. Reikningar Sambands ísl. sveitarfélaga
1948 og 1949 og Sveitarstjórnarmála.
Eiríkur Pálsson, framkvæmdarstjóri, las
upp og lagði frarn reikninga þessa og
höfðu þeir verið endurskoðaðir.
Ársreilaiín^ur
Sambands íslenzkra sveitarfélaga fyrir árið 1948.
T ekjur:
1. í sjóði 1. jan. 1948 ...................................... kr. 44.561.32
2. Ársgjöld frá 1947 ............................................. — 3.811.80
3. Ársgjöld 1948 ................................................. — 27.616.00
4. Jöfnunarsjóður vegna Sveitarstjórnarmála ...................... — 8.000.00
5 Vextir .......................................................... — 1.339.79
Samtals kr. 85.328.91