Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Page 31

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Page 31
SVEITARSTJÓRNARMÁL 27 „Þingið skorar á stjórn sína og fulltrúa- ráð að hafa áhrif á að hraðað verði endur- skoðun útsvarslaganna og setningu nýrra laga um útsvör. Jafnframt leggur þingið fyrir stjórn sína og fulltrúaráð að vera vel á verði um. að tekið verði fullt tillit til þeirra samþykkta og ábendinga, sem koma fram á þessu þingi og fyrri þingum um breytingar á útsvarslögunum". Tillagan var samþykkt í einu hljóði. 26. Sérfundur bæjarstjóra og oddvita. Jón Kjartansson, bæjarstjóri, Siglufirði, flutti ásamt Ásgrími Hartmannssyni, bæjarstjóra í Ólafsfirði, svofellda tillögu og gerði grein fyrir henni í ræðu: „IV. þing Sambands ísl. sveitarfélaga samþ. að skora á sambandsstjómir að taka til athugunar, hvort ekki sé rétt, að hún eftirleiðis í sambandi við sambands- þingin efni til tveggja funda, annars með bæjarstjórum liins með oddvitum, er þing sækja. Jafnframt athugi stjómin möguleika á fundum oddvita og bæjar- stjórn rnilli Jringa.“ Tillagan var samþykkt samhljóða. 27. Nýir mefflimir: Formaður Sambandsins, Jónas Guð- mundsson, skýrði frá J>ví, að ;i sveitarfé- lög hefði gengið í Sambandið síðan að síðasta landsþing var háð. (N öfn þeirra eru birt í skýrslu formannsins á bls. n hér að framan). Væru því meðlimir Sambandsins nú orðnir 125 að tölu. Fundarmen:. buðu með almennu lófataki hin nýju sveitarfé- lög velkomin í Sambandið. Þegar hér var komið var kl. orðin rúmlega 10 að kvöldi og fundi frestað til næsta dags. Hinn 27. ágúst kl. 10 árdegis, var fundur- inn settur á sama stað. Dagskrá framhaldið þannig: 28. Stækkun sveitarfélaganna og fram- kvæmdarstjórn þeirra, Jónas Guð- mundsson, skrifst.stj. flutti mjög skil- merkilegt erindi um þetta efni. Birtist erindi þetta á öðrum stað í ritinu. Lagði hann að ræðulokum fram sem tillögu eftirfarandi ályktun: „Landsþing Sambands íslenzkra sveit- ar félaga beinir þeirri áskorun til ríkis- stjómarinnar, að hún láti á næsta ári fara fram ýtarlega rannsókn á eftirfar- andi atriðum: 1. Hvort ekki sé tímabært að stækka sveit- arfélög landsins með því að sameina þau Jiannig, að ekki sé undir 500 íbúum í neinu sveitarfélagi nema sérstakar, land- fræðilegar ástæður liggi til. 2. Hvort ekki séu tök á að setja sérreglur um stjóm þeirra sveitarfélaga, sem kaup- tún vaxa upp í, sem tryggi það, að kaup- túnið geti fengið nokkra sjálfsstjórn í eigin málum án þess að verða að fullu skilið frá móðurlireppnum fyrr en íbúa- tala þess er orðin yfir 500 manns. 3. Hvort ekki mundi heppilegra fyrirkomu- lag að bæjarstjórar og væntanlegir sveit- arstjórar verði fastráðnir starfsmenn sveitarfélaganna, er ekki láta af störfum sínum við almennar kosningar, eins og nú gerist, heldur sé með skipunarbréfi eða ráðningarsamningi trvggt starf sitt, nema út af beri í embættisfærslu." Eftir nokkrar umræður bar Karl Kristjáns- son bæjarstjóri í Húsavík, fram tillögu um að vísa ályktuninni til stjómar cg fulltrúaráðs Sambandsins til ýtarlegri athugunar og með- ferðar. Var sú tillaga samþ. með samhlj. atkv. 29. Kosin stjórn sambandsins: Erlendur Bjömsson, bæjarstjóri, Seyðis- firði, lýsti tillögum kjömefndar. Formaður sambandsins var kosinn:

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.