Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Page 34
30
SVEITARST J ÓRNARMÁL
samt lét hann svona lengi eftir sér bíða.
Sennilega hefði verið horfið frá að bíða eftir
gosinu, ef ekki hefðu verið hinir erlendu
gestir, sem fundarmenn vildu eigi að færu á
mis við það að sjá hverinn gjósa.
Veður var gott og skennntu menn sér við
samræður og söng. Drukkið var kaffi í veit-
ingaskála staðarins.
Loks er gosið kom var það hið stórfengileg-
asta og stóð yfir í fullar 20 mínútur. Allir virt-
ust sammála um, að biðin hefði fullkomlega
borgað sig.
Þá var ekið að Selfossi og snæddur kvöld-
verður í Tryggvaskála í boði Árnessýslu.
Bauð sýslumaður Árnesinga fundarmenn vel-
komna með ræðu og flutti sambandinu ám-
aðaróskir.
Formaður ávarpaði fundarmenn, þakkaði
þátttöku og óskaði góðrar heimferðar. Sví-
inn Erik Jung þakkaði fyrir hönd hinna er-
lendu gesta móttökur og minntist íslands.
Jónas Guðmundsson þakkaði Árnesingum
rausn þeirra og minntist Ámessýslu. Steinn
Steinsen þakkaði forseta fundarstjórn og
minntist Selfossbyggðar.
Samþykkt var að fela fundarriturum og
forseta fult umboð til þess að ganga frá bók-
un, án þess að hún væri upplesin.
Sungið „ísland ögrum skorið.“
Landsþinginu slitið urn kl. eitt að nóttu.
Karl Kristjánsson
Sigurður B/örnsson.
taun oddvita.
Á fundi stjórnar Sambands ísl. sveitarfé-
laga, 4. des. 1950, voru tekin til meðferðar
bréf, cr borizt höfðu frá ýmsum oddvitum,
þar sem spurzt var fyrir um hvemig laun
þeirra skyldu reiknuð. En vegna breytinga á
lögum um verðlagsuppbætur, lá þetta eigi
eins ljóst fyrir og skyldi.
Stjóm sambandsins samþykkti af þessu til-
efni að skrifa Alþingi og félagsmálaráðuneyt-
inu með tilmælum urn, að lög yrðu sett, er
tækju af allan vafa um liver vera skyldu laun
oddvita.
Sama dag var félagsmm. skrifað, þar sem
nokkur grein var gerð fyrir launagreiðslum til
oddvita og á það bcnt, að laun starfsmanna
ríkisins hefðu verið hækkuð vemlega, en laun
oddvita staðið að mestu í stað um árabil. Lagt
var til, að ákveðið yrði með lögum, að laun
oddvita skyldu hækka til samræmis við
launahækkanir starfsmanna ríkisins.
Alþingi var og skrifað um sama efni.
Að tilhlutan félagsmálam. flutti síðan
félags- og heilbrigðismálan. Nd. frv. um
breytingu á sveitarstjómarlögunum, að því
er snerti 23. gr. þeirra, en hún fjallar um laun
oddvita. Frv. varð að lögum nokkru eftir ára-
mót.
Samkvæmt lögum þessum skal 23. gr. laga
nr. 12 frá 1927 orðast svo:
„Oddviti skal hafa að launum um árið
fimm krónur fyrir hvem mann í hreppnum
samkvæmt manntali þess árs, er hann tekur
laun fyrir, og auk þess minnst 2% — tvo af
hundraði — af innheimtum útsvörum.
Á laun oddvita, önnur en innheimtulaun,
greiðist verðlagsuppbót eftir almennri vísi-
tölu, eins og hún á hverjum tírna er greidd á
laun starfsmanna ríkisins. Oddvitar skulu og
framvegis njóta sönm og sams konar launa-
liækkana og opinberir starfsnienn hljóta hjá
ríkinu og ríkisstofnunum.“
Oddvitar taka laun eftir lögum þessurn frá
1. janúar 1951 að telja.