Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Side 36

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Side 36
32 SVEITARST J ÓRNARMÁL Þessi sjálfstæða starfsemi hreppanna og það hve rnargir hreppsbúar hafa orðið að vinna að framkvæmd ábyrgðarmikilla starfa í þágu almennings, hefnr átt ríkan þátt í að efla þroska þjóðarinnar, félagshneigð og al- hliða menningu. Stjórn og starfstilhögún for- feðra okkar á þjóðveldistímanum í sveitar- málefnum er því svo merkur þáttur í þroska- ferli þjóðarinnar, að hann má ekki vanmeta. Margt er að sjálfsögðu breytt nú um sveit- arstjómarmál frá því sem áður var. Löggjöf vor grípur nú meir inn á starfssvið bæja- og sveitarfélaga. Yfirleitt mun það vera til góðs. Ríkið veitir sveitarfélögunum margvíslegan stuðning og fyrirgreiðslur og aðstoðar sveit- arstjórnir við störf þeirra á ýmsa vegu. Jafn- framt hefur ríkið eftirlit og veitir hæfilegt aðhald varðandi störf sveitarstjórna. Þó ráða enn að mestu hin sörnu grundvallaratriði um stöðu bæjar- og sveitarfélaga gagnvart Alþingi og ríkistjórn og áður. Þessar deildir þjóðfélagsins hafa víðtæka sjálfstjórn enn og eru á mörgurn og veigamiklum sviðum óháð afskiptum löggjafar- og framkvæmdarvalds rneðan stjórn þeirra er í sæmilegu lagi. Að mínúm dórni er það mikilsvert, að sveitarfélögin hafi rúmt athafnafrelsi og geti á eigin spýtur stjórnað ýmsum nrikilvægum málurn innan þess ramma, sem löggjafarvald þjóðarinnar setur. Þar sem einræði nær að festa rætur í ein- hverri mvnd, þá sækir það all.taf á að ganga á sjálfstjóm hinna smærri deilda þjóðfélags- ins. Einræðið leitast ávallt við að draga allt vald í einn stað, láta allar fyrirskipanir korna að ofan. Fólkið verður síðan gagnrýnislaust að hlýða því, senr fyrir það er lagt. Slíka fram- vindu tel ég að beri að varast. Sé þannig fram haldið, er stefnt að múgmennsku, sjálfsbjarg- arhvöt fólksins deyfð og fólkið á þann liátt tamið til þess að láta aðra hugsa fyrir sig. Hæfileg sjálfstjóm bæjar- og sveitarfélaga er sty'rk vörn gegn slíku. Frelsi og sjálfs- ákvörðunarréttur sveitarfélaganna um sérrnál sín eru mikilsverð réttindi og að mínurn dónri ein styrkasta stoð þjóðfrelsis, sem nauðsynlegt er að alls staðar ríki, ef fólki á að geta liðið vel. Það er því nauðsynlegt að „sóknarmenn" (sveitarstjórnir og bæjarstjórnir) vorra tíma vinni störf sín vel, vinni þau af skyldurækni og með ábyrgðartilfinningu. Þessir kjörnu fulltrúar starfa fyrst og frernst sem trúnaðar- menn þess fólks, sem í hverju sveitarfélagi býr, en jafnframt er verksvið þeirrar stöðu umfangsmeira og nær til alls þjóðfélagsins. Þeim ber að vera á verði, ef ríkisvaldið vill seilast til ofmikilla afskipta af sérmálum sveitarfélaga og héraða. Þetta er mikilvægt verkefni, sem engin góð sveitarstjóm rná vanrækja að gera sér grein fyrir. En hitt er og jafn nauðsynlegt, að sveitarstjórnir hefji sem bezt samstarf við ríkisvaldið — og á þann hátt einan má vænta góðs árangurs. Sanrband ísl. sveitarfélaga, sem heldur þing sitt nú í dag, er rneðal annars stofnað til þess: Annars vegar að gæta réttar hinna einstöku sveitarfélaga og vera á verði um, að frelsi þeirra og ákvörðunarréttur sé ekki skertur um of. — Hins vegar er sambandið stofnað til þess að stuðla að sem beztri sam- vinnu milli sveitarfélaganna og ríkisvaldsins. Bæði þessi verkefni eru mikilvæg. Samband- ið er aðeins 5 ára ganralt, og má því ekki vænta rnikils árangurs enn, þar sem fvrstu ár slíkra samtaka, á hvaða sviði sem er, fara oftast til þess að koma skipulagi á innri starfsháttu og þreifa fyrir sér urn starfsaðferð- ir. Ég veit þó um mörg einstök mál, þar sem sambandið hefur gert mikið gagn. Hitt veit ég með jafnmikilli vissu, að eftirleiðis verður starf þess miklu meira og kernur að alrnenn- ari notum. Sambandi ísl. sveitarfélaga ber að gæta þess, að hver einstök sveitarstjóm starfi vel og af fullri ábvrgðartilfinningu. Það hefur

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.