Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Side 42

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Side 42
38 SVEITARST J ÓRNARMÁL Með því fyrirkomulagi, sem nú er á þess- um málum hér á landi, er stefnt að síauknu öryggisleysi bæði að því er snertir bæjarfélög- in sjálf og bæjarstjórann. Það verkar ákveðið í þá átt að gera þennan nauðsynlega starfs- mann heildarinnar, bæjarstjórann, að flokks- verkfæri, sem allir hljóta að vantrevsta nema hans eigin flokksmenn. Það er nú líka svo komið, að mjög erfiðlega gengur að fá menn til þess að taka þetta starf að sér, og nú um skeið hafa helzt valizt til starfsins ungir, óreyndir rnenn, en í bæjarstjórastarf þurfa að veljast reyndir og gætnir menn, sem þekkja vel til bæjarmála. A það verður og að bcnda, að bæjarstjórun- um er að lögum ætlað nokkurt sjálfstæði gagnvart bæjarstjórninni, en það sjálfstæði glatast alveg þegar bæjarstjórinn er orðinn flokksþjónn fyrst og fremst. Má þar nefna það ákvæði í bæjarstjórnarlögum, að bæjar- stjóri geti fellt úr gildi samþykkt bæjarstjórn- ar, sem honum virðist „gagnstæð lögum eða skaðleg fyrir kaupstaðinn, eða að hún miði til að færast undan skyldum þeim, er á kaup- staðnum hvila“, unz æðra stjóman'ald legg- ur þar á úrskurð sinn. Slíkt ákvæði sem þetta verður auðvitað með öllu dauður bókstafur — og hefur reynzt það — þegar bæjarstjórinn er flokksþjónn, en ekki embættismaður heildarinnar. Ég sé að mál mitt verður of langt, ef ég held lengur áfram gagnn'ni á núverandi skip- an þessara mála, enda hef ég nú nefnt aug- Ijósustu og verstu ágallana. Ég lofaði að nefna einhverja kosti þessa skipulags, og hef leitað þeirra og verð að segja, að ég hef enga fundið, sem teljandi séu. Mér virðist og reynslan tala þar skýrustu máli, því að það er alveg hrein undantekning ef bæjarstjóri er lengur í starfi en eitt kjörtíma- bil, og hér á landi eru það aðeins tveir kaup- staðir, þar sem bæjarstjórar hafa orðið sæmi- lega „langlífir", — það er á Akureyri og Seyð- isfirði. í einu bæjarfélagi voru hvorki rneira né minna en fjórir bæjarstjórar á síðasta kjör- tímabili og þó andaðist enginn þeirra. Eini og einasti kostur þessa h'rirkomulags er sá, ef kost skal kalla, að hægt er, án upp- sagnar, að losna við bæjarstjóra á fjögurra ára fresti, og er það að vísu kostur, ef um lítt hæfan mann hefur verið að ræða. En hjá þeim þjóðum, sem tekið hafa upp það skipu- lag, að hafa í bæjarstjórastarfi fastan embætt- ismann, er uppsagnarfrestur á starfinu sex mánuðir, revnist viðkomandi því á einhvern hátt ekki vaxinn, svo að þegar allt kemur til alls,er þessi „kostur“ einnig „ókostur“ því það er bæði erfitt og getur verið skaðlegt að verða að sitja með lítt hæfan starfsmann í fjögur ár. Allt það, sem ég hef sagt um bæjarstjóra- starfið og skipan þess á eins við um sveitar- ráðsmenn og sveitarstjóra, verði slík embætti upp tekin. Ég hef viljandi dregið myndina af því ástandi, sem nú ríkir í þessum efnum nokkuð dökka, en ég hef gert það með vilja. Ég vænti þess, að allir þeir menn, sem hér eru saman komnir og flestir hverjir hafa um margra ára skeið, — sumir jafnvel áratugum saman — sinnt sveitarstjórnarmálum, geti í eigin hóp rökrætt vandamálin hispurslaust og án veru- legra pólitískra umbúða, enda á félagsskapur vor, meðal annars að miða að því að gera oss hæfa til að líta á og tala um vandamál vor af hispurslevsi, skilningi og sannleiksást, og leggja til hliðar, a. m. k. meðan vér erum hér, flokkspólitísk sjónarmið, en reyna í þess stað að kryfja málin til mergjar með hag og heill þeirrar heildar, sem vér nefnum sveitarfélag, og oss er ætlað að starfa fvrir og með hann einan fyrir augum. Ég vona því, að bæjarstjór- ar þeir, sem hér eru, og aðrir fyrirsvarsmenn bæja og kauptúna, firrist ekki af þessari ádeilu minni. Henni er ekki stefnt gegn neinum ein- stökum aðila, hvorki einstaklingi né sveitar- félagi, heldur aðeins dregnar fram hinar

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.