Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Page 47
SVEITARSTJORNARMAL
43
Árið 1947 .......... kr. 202.239.679
—■_ 1948 ............ — 221.411.150
— 3949 ............. — 284.714.827
— !950 ............. — 298-333-9i9
í 23. gr. fjárlaganna eru ákvæði um, að á
árinu 1951 skuli greiða sérstakar uppbætur
á laun opinberra starfsmanna ríkisins, sem
hér segir:
Á laun samkvæmt I.—III. flokks launa-
laga 10%.
Á laun samkvæmt IV. flokki launa-
laga 12%.
Á laun samkvæmt V.—IX. flokki launa-
laga 15%.
Á laun samkvæmt X,—XV. flokki launa-
laga 17%.
\hð það er miðað að lágmarksvinnutími
verði 38V2 klukkustund.
Lög um laun starfsmanna ríkisins em
nr. 60 frá 1945.
Stærstu lögin sem afgreidd voru frá þing-
inu eru Iög um meðferð opinberra mála,
senr er lagabálkur mikill í 202 greinum. En
þau mál öll, sem handhafar ríkisvaldsins
höfða til refsingar lögum samkvæmt, skulu
fara eftir ákvæðum laga þessara, nema þau
sæti meðferð sérdómstóla, er lög þessi taka
ekki til.
Ný Ábúðalög voru sett á þinginu og eru
þau nr. 8 frá 1951.
Lög, er einkurn snerta sveitarstjórnarmál
og afgreidd voru á þinginu, vom þessi helzt:
1. Lög um sveitarstjóra.
(Nr. 19 frá 1951.)
Samkvæmt lögurn þessum er hreppsnefnd
í hreppi, þar sem íbúar eru fleiri en 500,
heimilt að fela sérstökum rnanni, er þá ber
starfsheitið sveitarstjóri, stjóm og fram-
kværnd hreppsmála.
Lög þessi eru birt á öðrum stað hér í
ritinu.
2. Breyting á löguin um sveitarstjórnar-
kosningar. (Nr. 24 frá 1951.)
Með lögum þessum er 17. gr. laganna, nr.
81 frá 1936, breytt og orðast hún nú svo:
„Allar kosningar samkvæmt lögum þessum
skulu vera leynilegar. Bæjarstjórnir og hrepps-
nefndir í hreppum, þar sem fullir 3/4 íbú-
anna eru búsettir í kaupstað, skal kjósa hlut-
fallskosningu. Nú kemur enginn framboðs-
listi fram áður en framboðsfresti lýkur, og
skal þá kjósa óhlutbundinni kosingu. í
hreppum, þar sem fleiri en Va íbúanna er
búsettur utan kauptúns, skal kjósa hlutfalls-
kosningu, ef V10 kjósenda krefst þess bréf-
lega við oddvita kjörstjómar 6 vikurn fyrir
kjördag. Þó nægir, að 25 kjósendur krefjist
þess.“
Breytingin er sú ein að fram er tekið, að
kosið skuli óhlutbundinni kosningu í þeim
sveitarfélögum, sem kjósa eiga hlutbundinni
kosningu, ef enginn listi kemur þar fram áður
en framboðsfresti lýkur. Áður voru engin
fyrirmæli urn hvernig að skyldi fara ef list-
ar bærust ekki innan tilskilins tíma, og
leiddu af því nokkur vandræði við síðustu
sveitarstjómarkosningar.
3. Lög um breyting á sveitarstjórnarlögunum.
(Nr. 34 frá 1951.)
Lög þessi eru um laun oddvita og er getið
annars staðar.
4. Lög um vinnumiðlun.
(Nr. 41 frá 1951.)
Með lögum þessum eru úr gildi numin
lög nr. 4 frá 1935, um vinnumiðlun og
vinnumiðlunarskrifstofur þær,' er nú starfa
samkvæmt þeim, hætta störfum 1. marz
1951.
Hin nýju lög eru aðeins heimildarlög og
greiðist allur kostnaður við vinnumiðlunar-