Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Qupperneq 47

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Qupperneq 47
SVEITARSTJORNARMAL 43 Árið 1947 .......... kr. 202.239.679 —■_ 1948 ............ — 221.411.150 — 3949 ............. — 284.714.827 — !950 ............. — 298-333-9i9 í 23. gr. fjárlaganna eru ákvæði um, að á árinu 1951 skuli greiða sérstakar uppbætur á laun opinberra starfsmanna ríkisins, sem hér segir: Á laun samkvæmt I.—III. flokks launa- laga 10%. Á laun samkvæmt IV. flokki launa- laga 12%. Á laun samkvæmt V.—IX. flokki launa- laga 15%. Á laun samkvæmt X,—XV. flokki launa- laga 17%. \hð það er miðað að lágmarksvinnutími verði 38V2 klukkustund. Lög um laun starfsmanna ríkisins em nr. 60 frá 1945. Stærstu lögin sem afgreidd voru frá þing- inu eru Iög um meðferð opinberra mála, senr er lagabálkur mikill í 202 greinum. En þau mál öll, sem handhafar ríkisvaldsins höfða til refsingar lögum samkvæmt, skulu fara eftir ákvæðum laga þessara, nema þau sæti meðferð sérdómstóla, er lög þessi taka ekki til. Ný Ábúðalög voru sett á þinginu og eru þau nr. 8 frá 1951. Lög, er einkurn snerta sveitarstjórnarmál og afgreidd voru á þinginu, vom þessi helzt: 1. Lög um sveitarstjóra. (Nr. 19 frá 1951.) Samkvæmt lögurn þessum er hreppsnefnd í hreppi, þar sem íbúar eru fleiri en 500, heimilt að fela sérstökum rnanni, er þá ber starfsheitið sveitarstjóri, stjóm og fram- kværnd hreppsmála. Lög þessi eru birt á öðrum stað hér í ritinu. 2. Breyting á löguin um sveitarstjórnar- kosningar. (Nr. 24 frá 1951.) Með lögum þessum er 17. gr. laganna, nr. 81 frá 1936, breytt og orðast hún nú svo: „Allar kosningar samkvæmt lögum þessum skulu vera leynilegar. Bæjarstjórnir og hrepps- nefndir í hreppum, þar sem fullir 3/4 íbú- anna eru búsettir í kaupstað, skal kjósa hlut- fallskosningu. Nú kemur enginn framboðs- listi fram áður en framboðsfresti lýkur, og skal þá kjósa óhlutbundinni kosingu. í hreppum, þar sem fleiri en Va íbúanna er búsettur utan kauptúns, skal kjósa hlutfalls- kosningu, ef V10 kjósenda krefst þess bréf- lega við oddvita kjörstjómar 6 vikurn fyrir kjördag. Þó nægir, að 25 kjósendur krefjist þess.“ Breytingin er sú ein að fram er tekið, að kosið skuli óhlutbundinni kosningu í þeim sveitarfélögum, sem kjósa eiga hlutbundinni kosningu, ef enginn listi kemur þar fram áður en framboðsfresti lýkur. Áður voru engin fyrirmæli urn hvernig að skyldi fara ef list- ar bærust ekki innan tilskilins tíma, og leiddu af því nokkur vandræði við síðustu sveitarstjómarkosningar. 3. Lög um breyting á sveitarstjórnarlögunum. (Nr. 34 frá 1951.) Lög þessi eru um laun oddvita og er getið annars staðar. 4. Lög um vinnumiðlun. (Nr. 41 frá 1951.) Með lögum þessum eru úr gildi numin lög nr. 4 frá 1935, um vinnumiðlun og vinnumiðlunarskrifstofur þær,' er nú starfa samkvæmt þeim, hætta störfum 1. marz 1951. Hin nýju lög eru aðeins heimildarlög og greiðist allur kostnaður við vinnumiðlunar-

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.