Sveitarstjórnarmál - 01.08.1951, Blaðsíða 25
SVEITARST J ÓRNARMÁL
23
Nefndin var síðan ákveðin svo sem meiri
hlutinn hafði lagt til.
Minni hlutinn vildi ekki una þessari máls-
meðferð og sneri sér til félagsmrn. með kröfu
urn, að kosning nefndarinnar yrði úrskurðuð
ógild.
Félagsmrn. kvað upp úrskurð í málinu,
þar sem það lýsti kosningu nefndarinnar ólög-
mæta og segir svo í úrskurðinum:
„í 14. kafla laga nr. 81/1936 um sveitar-
stjórnarkosningar, sem fjallar um kosningar
innan bæjarstjóma og hreppsnefnda segir
svo í upphafi 31. gr.
„Kosningar í nefndir, er bæjarstjórn eða
hreppsnefnd kýs, skulu jafnan vera levni-
legar og ennfremur hlutbundnar, ef þess er
krafizt og fleiri skal kjósa en einn mann —“
Þá segir svo í upphafi 5. gr. fundarskapa
fyrir bæjarstjóm S., sem staðfest hefur verið
af stjórnarráðinu:
„Nefndir til þess að starfa að einstökum
málum, hvort sem þær em fastanefndir eða
nefndir til þess að fjalla um einstök mál, skal
kjósa hlutbundnum kosningum, eftir að-
ferð þeirri, sem kennd er við de Hondt, nema
bæjarstjóm sé öll sammála um annað kosn-
ingarfyrirkomulag---------“.
Þar sem hér er um kosningu þriggja manna
nefndar að ræða, (sbr. niðurlag tillögu þeirr-
ar, sem samþykkt var „--------að því fengnu
er nefndinni falið að ganga frá kaupum á
togaranum fyrir hönd bæjarstjórnar“), sem
enginn getur talizt sjálfkjörinn í, virðist ljóst
að um fyrirkomulag á kosningu í hana verður
bæjarstjómin að fara eftir fyrirmælum gild-
andi fundarskapa og 14. kafla laga nr.
81/1936, sem nefnd hafa verið hér að fram-
an. Getur ráðuneytið því ekki fallizt á þá
skoðun, sem fram kemur í bréfi forseta bæjar-
stjórnarinnar til ráðuneytisins, að hér hafi
verið um nefnd að ræða, sem aðeins hafi átt
að kjósa einn mann í, og fvrirmæli 31. gr.
laga nr. 81/1936, um hlutbundna kosningu
því ekki átt hér við.
Með skírskotun til fyrrgreindra ákvæða í
lögum, nr. 81 /1936 og fundarsköpum bæj-
arstjórnarinnar lítur ráðuneytið svo á, að
kosning nefndar þeirra, sem kært hefur ver-
ið yfir til ráðuneytisins, sé ólögmæt, þar
sem hún hafi ekki verið hlutbundin, svo sem
fvrir er mælt í nefndum ákvæðum, en þar
er eins og áður er vikið að, skýrt fram tekið,
að nefndir, sem þessi skuli kjósa hlutbund-
inni kosningu nema bæjarstjórn sé öll sam-
mála um annað kosningarfyrirkomulag."
Urskurður 24. nóv. 1950.
Kynnisferð um Noreé^
Sveitarstjórnarsamböndin á Norðurlöndum hafa
tekið upp þá venju að efna til kynnisferða hvert í
sínu landi. Ferðir þessar standa yfir um vikutíma
og er þátttakendum sýndir ýmsir þeir staðir, er sér-
kennilegir þykja og einkennandi fyrir fegurð við-
komandi lands. Þá eru og skoðuð mannvirki og sögu-
legar minnjar, margs konar framkvæmdir og sitt hvað
fleira.
Héraðasambandið norska hefur ákveðið að efna
til einnrar slikra kynnisferða um Noreg nú í sumar.
I því tilefni hefur það boðið sveitarstjórnarsambönd-
unum i Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð að senda
hvert sina 8 fulltrúa. Sambandi ísl. sveitarfélaga er
og boðið að senda 2 fulltrúa.
Lagt verður af stað frá Oslo 20. ágúst og komið
til baka til Osloar aftur 26. ágúst. Fulltrúarnir verða
gestir Héraðasambandsins meðan á ferðinni stendur.
Ekki er að efa, að margt verður að sjá og heyra á
ferð þessari, því að fegurð Noregs er margháttuð og
tilkomumikil og sögustaðir margir.
Samband ísl. sveitarfélaga vill hér með vekja at-
hygli á kynnisferð þessari og gefa 2 mönnum kost
á að fara til Noregs á vegum sambandsins en á sinn
kostnað. Umsóknir hér að lútandi þyrftu að berast
skrifstofu sambandsins, að Klapparstig 26, Reykja-
vik, pósthólf 1079, sinri 80350, hið fyrsta. Þar verða
og gefnar allar frekari upplýsingar.