Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1957, Síða 6

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1957, Síða 6
2 SVEITARSTJÓRNARMÁL flutti Bjarni Benediktsson, fyrrverandi ráðherra erindi: Þróun Reykjavíkur. — Klukkan 2 sama dag var tekið fyrir annað mál dagskrárinnar: Umferðamál í mið- liluta höfuðborganna og var L. Estrup borgarstjóri í Kaupmannahöfn framsögu- maður. Til máls tóku auk framsögumanns: Kaj-Erik Österson, bæjaráðsfultrúi í Hels- ingfors, Audén Th. Baastad, forstjóri, Osló, Albert Aronsson, forstjóri, Stokk- hólmi, Sigurjón Sigurðsson, lögreglustjóri, Reykjavík og Börge Schmidt, skjalavörð- ur, Kaupmannahöfn. — Urn kvöldið var veizla ríkisstjórnarinnar í Þjóðleikhús- kjallaranum. Laugardaginn 17. ágúst hófst fundur klukkan 10 fyrir hádegi. Þá var tekið fyrir þriðja mál dagskrárinnar: Notkun einka- rekstursforms við úrlausn á viðfangsefn- um bæjarfélaga. Framsögumaður var Erik Huss, fjármálaborgarstjóri í Stokkhólmi. Aðrir ræðumenn voru: L. O. Johnson, borgarritari, Helsingfors, Sigvald Munk, yfirborgarstjóri, Kaupmannahöfn, Rolf Stranger, bæjarstjórnarforseti, Osló, Bárð- ur Daníelsson, verkfræðingur, Reykjavík, Hjalmar Mohr, borgarstjóri, Stokkliólmi og Brynjolf Bull, hæstaréttarlögmaður, Osló. Þegar umræðum var lokið um þetta mál heimsótti ráðstefnan Bæjarútgerð Reykjavíkur og skoðuðu fulltrúar fyrir- tæki liennar og starfsemi. Klukkan 2 hófst fundur að nýju og var þá tekinn fyrir fjórði liður dagskrárinnar: Ráðstafanir bæjarfélaga við úrlausn lnisnæðajsvanda- mála. Framsögumaður var Jóhann Haf- stein, bankastjóri, Reykjavík. Aðrir ræðu- menn voru J. A. Kivistö, borgarstjóri, Hels- ingfors, Julius Hansen, borgarstjóri, Kaup- mannahöfn, Brynjolf Bull, hæstaréttarlög- maður, Osló, Gösta Wennström, borgar- stjóri, Stokkhólmi, og Werner Erichson, skrifstofustjóri, Osló. Að umræðum lokn- um þennan dag lieimsótti ráðsteínan Þjóð- minjasafnið. Þar tók Kristján Eldjárn þjóð- minjavörður á móti fulltrúunum, flutti er- indi um safnið og sýndi Jreim það. Á sunnudaginn 18. ágúst, en það var af- mælisdagur Reykjavíkur, skoðuðu fulltrú- arnir borgina og umhverfi hennar. Fóru fulltrúarnir mjög víða og stóð þessi kynn- ing borgarinnar yfir í sex klukkustundir. Um kvöldið bauð bæjarstjórn ráðstefn- unni til veizlu. Á mánudaginn, 19. ágúst, fóru fulltrú- arnir í ferðalag til Þingvalla, Sogsfossa og Hveragerðis. Miðdegisverður var í Valhöll, en kvöldverður í Skíðaskálanum í Hvera- dölum. Á þriðjudaginu 20. ágúst var fundur haldinn klukkan 10 og var ráðstefnunni þá slitið. Klukkan 5 heimsóttu fulltrúarnir forseta íslands að Bessastöðum, en um kvöldið var lialdið kveðjuhóf að Hótel Borg. Á ráðstefnunni voru engar samþykktir gerðar né ályktanir, fremur en venja hef- ur verið á fyrri ráðstefnum, en fulltrúarn- ir fylgdust vel með umræðunum og fram- lögðum álitsgerðum um þau viðfangsefni, sem hér hafa verið nefnd og ráðstefnan tók til meðfrðar, og munu þeir hver að sínu leyti rannsaka nánar þær upplýsingar og þá gagnkvæmu reynslu, sem fengizt hefur. Skal þess og getið að fyrir ráðstefnuna hafði verið aflað ýtarlegra upplýsinga frá öllum höfuðborgunum um dagskrárefnin og munu þær ásamt umræðunum verða gefn- ar út í sérstöku riti, fundargerð ráðstefn- unnar. Stokkhólmsborg hafði boðið að áttunda liöfuðborgarráðstefna Norðurlanda yrði háð í Stokkhólmi árið 1960, og var það sam- þykkt.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.