Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1957, Qupperneq 20

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1957, Qupperneq 20
16 SVEITARSTJÓRNARMÁL sem nýtur sjúkra-eða slysabóta, og bagað íólk, sem er við óhentug störf og þarf að skipta um starf, svo að starfskraftarnir end- ist lengur. Þá er ekki ólíklegt, að nokkru stærri hluti öryrkja, sem búsettir eru úti á landi, Jrarfnist endurhæfingar en Jteir, sem eiga lieima hér í Reykjavík. Hér er heil- brigðisþjónusta fullkomnari, menntunar- skilyrði betri og meira um störl, sem öryrkj- ar geta unnið, en annars staðar á landinu. Hlýtur Jwð að leiða Lil þess, að fleiri ör- yrkjar verða starfandi hér en ella væri. Sú staðreynd, að öryrkjar eru víðast hvar tals- vert fleiri að tiltölu við fólksfjölda á Vest- fjörðum, Norður- og Austurlandi en í Reykjavík og á Suð-vesturlandi virðist styðja þetta. III. Við komum J)á að því, hverra ráðstafana sé Jaörf, svo að nýta megi vinnugetu ör- yrkja jreirra, sem þarínast liðsinnis í at- vinnulegu tilliti. Áður en Jm' er svarað, vil ég skýra nokkru nánar í hverju endurhæf- ing er fólgin. Með endurhæfingu er átt við Jrær ráðstaf- anir, sem gerðar eru til að koma öryrkja út í atvinnulífið á ný. Hvort sem um er að ræða unglinga, sem hafa takmarkaða vinnu- getu, menn, sem slasazt hafa eða orðið lítt vinnufærir vegna afleiðinga sjúkdóma, er endurhæfingin ávallt fólgin í þrem, stund- um fjórum, þáttum ráðstafana, sem þurfa að taka við hver af öðrum. í fyrsta lagi þarf að athuga, hvort auka megi vinnuhæfni með læknisaðgerðum eða líkamlegri þjálfun af einhverju tagi. I öðru lagi þarf að velja starfssvið, nám eða starf, sem er í samræmi við vinnugetu einstakl- ingsins, hæfileika og allar aðstæður. í þriðja lagi er verkþjálfun oft nauðsynleg og stund- um nám, áður en tekið er til starfa. Sumir geta þó farið beint í vinnu án verkþjálfun- ar eða náms. í fjórða lagi þarf svo að út- vega starf. Helzt starf, sem hentar svo vel, að öryrkinn geti leyst það af hendi eins vel og liver annar. Er þá lokatakmarkinu náð. Endurhæfing er þó ekki nein töfraaðferð, sem gerir alla, er hennar njóta, starfandi og fullgilda í starfi. Það eru fyrst og fremst öryrkjar, sem eru ekki allt of mikið bag- aðir, og Jrar að auki tiltölulega ungir, sem geta liaft slík not af endurhæfingu, að Jreir verði færir til fullgildrar vinnu á einliverju sviði. Stór hópur öryrkja verður ekki full- fær til neins starfs, Jrótt Jrjálfa megi þá svo, að Jreir geti nokkuð starfað og starfsorka þeirra sé of mikil til að hún sé látin ónotuð. Þetta fólk [jarfnast aðstöðu til að vinna á sérstökum vinnustöðum til frambúðar, þar sem ekki eru gerðar jafn strangar kröfur um vinnutíma og afköst og á venjulegum vinnustöðum. Eigi því að nýta starísorku öryrkjanna sem bezt, þarf að vera fyrir hendi aðstaða til endurhæfingar og aðgangur að sérstök- um vinnuskilyrðum fyrir þá, sem verða ekki fullfærir til neins ákveðins starfs að lokinni endurhæfingu, en geta þó eitthvað gert. IV. Við skulum nú athuga lauslega, hver skil- yrði eru til endurhæfingar hér á landi. Fyrsti þáttur hennar er í rauninni ná- tengdur heilbrigðisþjónustunni og verður vart frá henni skilinn. Heilbrigðisþjónusta er auðvitað erfið í strjálbýlu landi, eink- um er hætt við í dreifbýlinu, að vanrækt sé að leita þeirrar læknisaðstoðar, sem sér- fræðingar geta í té látið, en slík vanræksla getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir- vinnugetu þess, sem hlut á að máli. Aðstaða fólks í dreifbýlinu til að njóta fullnægjandi heilbrigðisþjónustu hefur þó gjörbreytzt til

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.