Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1957, Page 23

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1957, Page 23
SVEITARSTJÓRNARMÁL 19 Fjárliagsáætlun Tryggingarstofnunar ríkisins fyrir árið 1958. Nýlega hefur verið gengið frá íjárhags- áætlun Tryggingastofnunarinnar fyrir árið 1958. Eru þar áætluð iðgjöld og framlög einstakra aðila til hverrar greinar almanna- trygginganna fyrir sig, þ. e. lífeyristrygg- inga, slysatrygginga og sjúkratrygginga. Loks eru áætluð iðgjöld og framlög til at- vinnuleysistrygginga. A. Lífeyristryggingar. Samkvæmt núgildandi lögum eiga út- gjöld lífeyristrygginga að skiptast í ákveðn- um hlutföllum milli ríkissjóðs, hinna tryggðu, sveitarsjóða og atvinnurekenda. Útgjöldin skulu áætluð og þeim síðan skipt hlutfallslega niður á þessa fjóra aðila. Komi í ljós við reikningslok, að hið áætlaða fram- lag hefur orðið of hátt eða ekki nógu hátt hjá einstökum þátttökuaðilum, skal þetta leiðrétt síðar. Með tilliti til afkomu líf- eyristrygginganna árið 1956 virðist aug- ljóst, að nokkur tekjuafgangur muni verða á árinu 1957. Hefur því þótt rétt að endur- skoða áætlun þá fyrir árið 1957, sem gerð var á síðastliðnu ári, og taka nú þegar við ákvörðun iðgjalda og framlaga fyrir árið 1958 tillit til þessa væntanlega tekjuaf- gangs, þótt ekki sé hægt að gera hann upp endanlega fyrr en á miðju næsta ári, þ. e. þegar iðgjöld og framlög fyrir árið 1959 verða ákveðin. Hrein útgjöld lífeyristrygginga á árinu 1958 eru áætluð 148,6 millj. króna. Skv. endurskoðaðri áætlun eru hrein útgjöld 1957 188,6 millj. kr. og nemur því áætluð hækkun frá 1957 til 1958 10 millj. króna. í samræmi við ákvörðun fjármálaráðu- neytisins er áætlunin 1958 miðuð við vísi- tölu 183 stig, og hefur þá verið gert ráð fyrir, að vísitalan hækki frá 1. september n.k. í þessi 183 stig, þannig að meðalvísi- tala 1957 verði 180,7 stig. Af þessari 10 millj. króna hækkun er því 1,8 millj. vegna hækkunar á vísitölu, en 8,2 millj. af öðrum orsökum. Ber þar fyrst að nefna fjölgun gamalmenna, en einnig er gert ráð fyrir hækkaðri fjárhæð til lífeyrishækkana skv. 23. gr. laganna og áframhaldandi fjölgun barna, sem veldur bæði aukningu fjöl- skyldubóta og barnalífeyris. Ofangreindum 148,6 millj. króna á að skipta milli aðila í þeim hlutföllum, sem lögin tilgreina, en inneign þessara aðila vegna ársins 1957 er áætluð 4,7 millj. króna og færslur úr afskriftasjóði á árinu 1958 eru áætlaðar 1,7 millj. króna. Má því gera ráð fyrir að greiðslufjárhæðir 1958 verði allmiklu lægri en reiknað framlag, eða sem hér segir: tc C3 e b£ — « « fe E co « a h. eS in C t£ X u- © ± Es* - > © ec 'w Millj.kr. Millj. kr. Millj. kr. Rikissjóður .... 49,0 1,4 47,6 Hinir tryggðu . . 49,0 1,7 47,3 Sveitarsjóðir ... 28,2 0,8 27,4 Atvinnurekendur 22,3 2,5 19,8 Alls i 148,5 6,4 142,1

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.