Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Qupperneq 13
MAGNÚS E. GUÐJÓNSSON,
framkvæmdastjóri:
KAUPSTAÐUR
EÐA
HREPPUR?
Undanfarið hefur orðið vart áhuga í nokkr-
um kauplúnahreppum á því, að viðkomandi
hreppar öðluðust kaupstaðarréttindi eða a. m.
k. að athugaðir yrðu möguleikar á því. Hafa þessi
mál verið rædd í nokkrum lneppsnefndum, t.d. á
Seltjarnarnesi, Bolungarvík, Dalvík, Eskifirði,
Höfn í Hornafirði, Selfossi og ef til vill víðar.
Tilefni þessa áhuga kann að vera tillaga, sem
samþykkt var á fundi fulltrúaráðs Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga um, að stjórn sambandsins
léti fara fram könnun á kostum þess og göllum,
að stærstu þéttbýlishrepparnir öðluðust kaup-
staðarréttindi.
Tvær tegundir sveitarfélaga
Svo sem kunnugt er, eru tvær tegundir sveit-
arfélaga á íslandi: kaupstaðir og hreppar. Kaup-
staðirnir eru 14, en hrepparnir 210.
1 hópi kaupstaðanna eru flest stærstu sveitarfé-
lög landsins. í fjölmennustu hreppunum eru
margfalt fleiri íbúar en í fámennustu kaupstöð-
unum. Þannig eru íbúar Garðahrepps 3363, íbú-
ar Seltjarnarneshrepps 2389 og íbúar Selfoss-
hrepps 2484, en íbúar Seyðisfjarðarkaupstaðar
liins vegar 882, en hann er fámennasti kaupstað-
urinn, allt miðað við íbúaskrá 1. desember 1972.
Því er ekki óeðlilegt, að spurt sé, hvernig á þessu
standi og hvaða reglur gildi um það, að kaup-
túnahreppar verði kaupstaðir og hverjir séu
kostir þess og annmarkar. Verður síðar í grein
þessari leitazt við að svara þessum spurningum,
eftir því sem unnt er.
Lagaákvæði um
réttarstöðu sveitarfélaga
Almenn sveitarstjórnarlög voru fyrst sett árið
1872 með Tilskipun um sveitarstjórn á íslandi
4. maí það ár. Með þeirri tilskipun var kornið
á sveitarstjórn á íslandi í nútíðarmynd, þótt
hrepparnir séu eldri og uppruna þeirra megi
rekja allt til upphafs íslandsbyggðar. Tilskipun-
in 1872 gilti eingöngu um hreppa, en fyrir gild-
istöku hennar voru þrír kaupstaðir á landinu,
Reykjavík, Akureyri og ísafjörður, sem öðlazt
höfðu kaupstaðarréttindi með sérstökum lögum.
Fram til ársins 1961 giltu almenn sveitarstjórn-
arlög um alla hreppa landsins, en sérstök lög
um hvern kaupstað. Núgildandi sveitarstjórnar-
SVEITARSTJÓRNARMÁL