Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Qupperneq 22

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Qupperneq 22
um hér á lantli. Langt er síðan í ljós kom, að slík aðferð við gatnagerð gæti ekki gengið til fram- búðar. Tækifæri til úrbóta kom fram í sambandi við þéttbýlisframlag Vegasjóðs, en stór hluti gatnakerfis þorpsins heyrir til þéttbýlisvega. Að auki eyrnamarkaði hreppsnefndin hluta fasteigna skatts til gatnagerðar. Hreppurinn lét gera raunhæfa verkáætlun um varanlega gatnagerð, lagði hana fram hjá Lánasjóði sveitarfélaga ásamt fjármögnunaráætlun. Sérstök ástæða er til að þakka drengilega framkomu Lánasjóðsmanna og Vegagerðarinnar, en báðir hafa þessir aðilar veitt máli þessu þann stuðning, sem beztan þeir áttu. Samldiða gatnagerðinni er einnig gerð áætlun unt að veita frárennsli þorpsins norður fyrir það, eins langt frá fiskvinnslustöðvunum og unnt er. Verkið hófst svo í septembermánuði s.l. í ljós koniu þá ýmsir hlutir óvæntir, sem var: 1. Gömlu skolppípurnar voru meira og minna brotnar, sennilega að langmestu leyti vegna titrings frá umferð. Reyndist oft nauðsynlegt að grafa iangt út fyrir áætlað verksvæði (allt ----------strengir RARIK — • — strengir Landsímans Kort af jarðstrengjum á götuhorni. Strengirnir voru EKKI á sömu stöðum og uppdráttur sýnir. að 90 m) til að komast að heillegri lögn, gamalli. 2. Lagnir frá Rafmagnsveitum ríkisins og sím- anum eru að nokkru í jörð. Ekki virðist hafa verið nokkur samvinna með stofnunum þess- um um, að lagnir þessar væru t. d. á sömu stöðum yfir götur, og er sums staðar helzt hægt að gizka á, að sumar hafi verið dregnar út af púðurkerlingum, svo óreglulegar eru þær (Sjá teikningu á síðunni). Hvergi hafa stofnanir þessar skipt um efni undir lögn- um sínum, en krefjast þess, að hreppurinn geri það þeim að kostnaðarlausu. Síminn hefur þó lagt til einn mann til þess að fylgj- ast með graftarvinnunni, sennilega þó án gjalds. Með vísun til ofanritaðs virðist svo sem greind- um ríkisstofnunum sé í sjálfsvald sett, á hvern hátt þær haga lögnum sínum, og ætlast til, að sveitarfélögin beri bótalaust efnisskiptakostnað undir strengjum þeirra, auk þess sem öll vinna við varanlega gatnagerð er margfalt dýrari þar, sem strengir eru, en þar sem þeir eru ekki, vegna þess m. a. að ómögulegt er að koma að stórum vélum í verkin. í Grundarfirði er þetta sérstak- lega hastarlegt, þar eð annars hefði verið liægt að grafa viðstöðulaust í götunum, vegna þess að vatns- og skolplagnir eru lítils virði. Það er raun- verulega athugandi, að sveitarfélög, sem búa við þau skilyrði, að strengir hafi verið settir í jörð, án þess að efnisskipti liafi verið undir þeim, inn- heimti leigu fyrir götustæðin af strengjastofnun- um til að hafa upp í þann kostnað sinn, og er það gert erlendis. Ef frá eru taldar tafir vegna ofanritaðra vanda- mála, hefur verkið gengið vel. í sjávarkambi og fjöru rétt hjá þorpinu fannst afbragðs fyllingar- efni, og eins fannst þar möl, sem hafði um 90% viðloðun fyrir ohumalargerð og reyndist blönduð sandi frá Rifi vera frábært steypuefni óhörpuð. Næsta vor er ætlunin að hefjast handa og ljúka við verkið með rennisteinum, kantsteinum, olíu- möl á akbraut og gangstéttum. Ætlunin er, að frágangur gatna verði svipaður og er á Flötunum í Garðahreppi. SVEITARSTJÓUNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.