Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Side 34
<
Verktakar
W)
bO
•H
tí '
ctí
P3
ö ,
vtí -s
r—I
■P
C3
Hugmynd að uppbyggingu einingarverðabanka.
Nýir möguleikar
Til úrbóta vil ég benda hér á eitt veigamikið
atriði, en það er notkun á samræmdum bókhalds-
lykli eða sundurliðunarkerfi, eins og því, sem
í undirbúningi er hjá Rannsóknarstofnun bygg-
ingariðnaðarins (Rb). Er þar um að ræða sam-
ræmda skiptingu liúsbygginga (og annarra mann-
virkja) í verkþætti með glöggri skilgreiningu á
því, hvað við er átt hverju sinni.
Starfsmenn Hagverks sf. hafa átt jiess kost að
fylgjast með undirbúningi þessa sundurliðunar-
kerfis og verið kvaddir til ráðuneytis við samn-
ingu þess. Reynsla okkar af notkun svipaðrar
kostnaðarskiptingar, fyrst hjá Fasteignamats-
nefnd Reykjavíkur og síðan við almenna áætl-
anagerð, hefur gefið góða raun og styrkt okkur í
jjeirri trú, að liér sé verið að fara inn á rétta
braut.
Notkun slíks sundurliðunarkerfis kærni eink-
um til greina á þennan hátt við verklegar frani-
kvæmdir:
1. Á hönnunarstiginu, þ. e. við uppbyggingu
útboðsgagnanna og kostnaðaráætlana fyrir
verkkaupa. Sú kostnaðaráætlun verði síð-
an notuð við mat tilboða.
2. Við tilboðsgerð. Hér er það verktakinn,
sem í hlut á, og verður e. t. v. erfiðast fyrir
hann að breyta frá hinum hefðbundna
reikningsmáta, sem í aðalatriðum hefur
miðazt við faggreinar, yfir í að reikna í
einstökum byggingarhlutum, j). e. í ein-
ingum, sem skiptast í m2 veggja, lofta o. s.
SVEITARSTJÓRNARMÁL