Sveitarstjórnarmál - 01.12.1975, Blaðsíða 6
var Guðmundur Ingi Kristjánsson, oddviti Mos-
vallahrepps. Honum til aðstoðar við ritun fund-
argerðar var Unnar Stefánsson, ritstjóri.
í setningarræðu sinni á fundinum sagði Páll
Líndal, formaður sambandsins, að stjórnin hefði
vegna þessa máls viljað kveðja fulltrúaráðið sam-
an til þess að heyra afstöðu J)ess til hugmynda
þeirra, sem að ofan greinir. Kvað hann J)að í
anda stefnu sambandsins að sveitarfélögin fengju
aukin verkefni og meiri fjárráð, en vel bæri J)ess
að gæta, að verkefni, sem þeim yrði afhent, yrðu
ekki kostnaðarmeiri en svaraði auknum tekjum
og í öðru lagi, að verkefnin yrðu sem jöfnust í
öllum sveitarfélögum.
Matthías Á. Mathiesen, fjármálaráðherra, flutti
ávarp við setningu fundarins og gerði J)ar grein
fyrir J)eim hugmyndum, sem lægju að baki þeim
Páll Líndal, formaður sambandsins setur fulltrúaráðsfundinn. Aðrir
á myndinni, talið frá vinstri: Þorsteinn Ólafsson, deildarstjóri í fjár-
málaráðuneytinu, Ólafur G. Einarsson, Matthías Á Mathiesen, fjár-
málaráðherra og handan borðsins Magnús E. Guðjónsson og Unnar
Stefánsson.
athugasemdum með fjárlagafrumvarpinu, sem hér
á undan var vitnað til. Kvað hann J)að stefnu
ríkisstjórnarinnar að fela sveitarfélögunum auk-
in verkefni, og jafnframt að endurskoða fjárhags-
legan grundvöll þeirra til J)ess að tryggja sjálf-
stæði þeirra og framkvæmdagetu. Ríkisstjórnin
myndi J)ví beita sér fyrir J)ví, að Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga fengi 8% af hverju söluskattsstigi.
Fjallaði ráðherra nánar um einstök verkefni, sem
til greina gæti komið að fela sveitarfélögunum
260 samhliða rýmri fjárráðum.
Almennar umræður
um málið
Á fundinum fóru síðan fram almennar umræð-
ur lengi dags um J)ær hugmyndir, sem uppi voru
um liugsanlegar tilfærslur verkefna frá riki til
sveitarfélaga. Magnús E. Guðjónsson, fram-
kvanndastjóri, kynnti yfirlit, sem sýndi nokkur
verkefni, sem til greina hefði komið að færa frá
ríki til sveitarfélaga, og tjáðu menn sig um J)ær
hugmyndir, sem þar kornu fram. Voru J)ar m. a.
tilgreind verkefni, sem síðar voru með lögum nr.
94/1975 færð frá ríki til sveitarfélaga, svo sem
viðhald skólamannvirkja og rekstur dagvistar-
stofnana. í sambandi við það verkefni las Páll
Líndal, formaður sambandsins, upp bréf, sem
stjórninni hafði borizt daginn áður frá Fóstru-
félagi íslands, þar sem varað er við })ví, að dregið
verði úr þátttöku rikissjóðs í stofn- og rekstrar-
kostnaði dagvistarstofnana.
Ólafur Kristjánsson, varaformaður Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga, gerði á fundinum grein
fyrir ályktun, sem stjórn Fjórðungssambandsins
hafði gert á fundi 15. nóvember og Bergur Sig-
urbjörnsson, framkvæmdastjóri Sambands sveitar-
félaga í Austurlandskjördæmi, kynnti niðurstöð-
ur könnunar, sem sambandið þar hefði gert á af-
stöðu sveitarstjórna til máls þessa.
Ekki þykir ástæða til að rekja hér gang um-
ræðna um })ær hugmyndir, sem þarna voru kynnt-
ar sem umræðugrundvöllur, en í fundarlok voru
samjrykktar ályktanir J)ær, sem hér fara á eftir:
Tilboði ríkisstjómar
um verkefnatilfærslu fagnað
Bjarni Einarsson kynnti af hálfu stjórnar sam-
bandsins tillögu, sem hún lagði fram urn megin-
efni fundarins. Tillaga þessi var sam})ykkt sam-
hljóða og er svofelld:
„Aukafundur fulltrúaráðs Sambands íslenzkra
sveitarfélaga, haldinn 20. nóvember 1975, fagnar
})ví tilboði ríkisstjórnarinnar, að Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga fái hlutdeild í öllum söluskattstekj-
SVEITARSTJÓRNARMÁL