Sveitarstjórnarmál - 01.02.1976, Blaðsíða 61
Suðureyri við Súgandafjörð. (Ljósm. Páll Jónsson).
Flugvöllur
„Síðast liðið sumar var byggður
flugvöllur fast við þorpið uppi á
Hjöllum. Flugbraut sú á í fullri
lengd að verða 600 metrar, og hef-
ur verið lokið við byggingu 480
metra. Fast áætlunarflug er hafið
milli Reykjavíkur og Súganda-
fjarðar. Annast flugfélagið Vængir
hf. þá þjónustu. F'logið er þrisvar
í viku, og binda Súgfirðingar mikl-
ar vonir við farsæld þeirrar Jjjón-
ustu fyrir byggðarlagið. Flugfélagið
Ernir á Isafirði hóf áætlunarflug
milli Isafjarðar og Suðureyrar s. 1.
haust. Flogið var þrisvar í viku, en
því miður hafa þeir alvarlegu lilut-
ir gerzt, að allt er á liuldu um
áframhaldandi starfrækslu flugfé-
lagsins. Þar finnst mér, að þing-
menn Vestfjarða hafi ekki reynzt
vandanum vaxnir að leysa það mál
og grundvöllur fyrir þátttöku sveit-
arfélaganna í byggingu Fjórðungs-
sjúkrahúss á ísafirði er í hættu, ef
ekki verður jafnframt af ábyrgð
séð til þess, að sjúkraflug sé starf-
rækt frá ísafirði."
Dýrar framkvæmdir
„Mörg verkefni bíða úrlausnar í
sveitarfélaginu. Framkvæmdir í
hafnarmáluin hafa verið og verða
með stærstu og erfiðustu fram-
kvæmdum, sem sveitarfélagið tekur
þátt í og nánast ofviða nema með
mikilli skuldasöfnun. Fjölgun íbú-
anna og aukin umsvif í athafnalíf-
inu ættu að draga úr Jjeirri greiðslu-
byrði á livern fbúa, en það er nauð-
syn, svo Jjjónustuframkvæmdir við
hinn almenna borgara sitji ekki á
hakanum. Skóli á grunnskólastigi
verður trúlega ekki starfræktur fyr-
ir alla aldursflokka, nema ef hægt
verður að ná íljúafjöldanum upp>í
800—1000 manns. Ríkisvaldið virð-
ist mjög tregt til að veita viðunandi
Jjjónustu í heilbrigðismálum og
löggæzlumálum, nema byggðarlög-
in liafi náð Jjeirri stærð.
Fjölmennasta þorpið
Súgandafjörður liggur mjög vel
við fiskimiðum, og útgerð hefur
verið í vaxandi sókn allt frá alda-
mótum, en þá var þar ekkert Jjorp.
Með yfirráðum okkar yfir fiski-
miðunum verður að ætla, að hag-
kvæmt verði talið að efla sem mest
Jjá staði, sem eru í mestu nábýli
við fengsæl mið.
Suðureyri er yngst Jjorpanna í
Vestur-ísafjarðarsýslu, en er nú
orðið fjölmennast Jjeirra. íbúatala
Suðureyrarhrepps er 516 1. desem-
ber 1974.“
„Það virðist ekki óeðlilegt að
gera ráð fyrir fólksfjölgun á Suður-
eyri í framtíðinni," sagði Olafur
Þórðarson, oddviti, að lokum, „og
fyrir Jjá, sem búa Jjar, er Jjað brýnt
hagsmunamál upp á alla þjónustu,
að fólkinu fjölgi. Sveitarfélagið
getur Jjví ekki verið aðgerðalaust,
hvað íbúðarhúsabyggingar snertir.
Verði húsin reist, verður búið í
Jjeim, og hitaveita og bættar sam-
göngur verða vonandi til að auka
trú manna á framtíð staðarins."
LAUIM
ODDVITA
Félagsmálaráðuneytið hefur til-
kynnt með auglýsingu frá 31. des-
ember s.L, að laun oddvita árið
1975 skuli reiknast sem svarar 250
krónum á livern íbúa hreppsins,
miðað við íbúatöluna 1. desember
1974, auk tilskilinna innheimtu-
launa, sem eru 4% af innheimt-
um útsvörum og öðrum sveitar-
gjöldum, sem honum ber að inn-
heimta hjá gjaldendum hrepps-
ins. Heimilt er Jjó hreppsnefnd
að ákveða oddvita önnur inn-
heimtulaun en 4%, sbr. 40. gr.
sveitarstjórnarlaga.
Þar sem sveitarstjóri starfar,
falla niður þessar launagreiðslur
til oddvita, en lireppsnefnd ákveð-
ur þá oddvita þóknun eða laun
fyrir störf lians í þágu lireppsins,
sbr. 44. gr. sveitarstjórnarlaganna.
SVEITARSTJÓRNARMÁL