Sveitarstjórnarmál - 01.04.1976, Blaðsíða 27
i smíðum eða fullgerð um land allt, eiga ung-
mennafélögin aðild að byggingu 100 félagsheim-
ila.
í mörgum sveitarfélögum landsins hefur veru-
legur liluti almenns samkomuhalds farið fram
á vegum ungmennafélaganna, en af gefnu til-
efni skal það tekið fram, að almennt dansleikja-
liald í félagsheimilunum er innan við 10% af
þeirri starfsemi, sem þar fer fram, þar með tald-
ar danssamkomur, sem einnig bjóða upp á eiu-
liverja skemmtidagskrá. Skýrslur fjölmargra
félagsheimila er hægt að leggja fram, máli Jjessu
til sönnunar. Framkvæmdastjóri félagsheimila-
sjóðs, Þorsteinn Einarsson, íjrróttafulltrúi hefur
unnið fyrir mig skýrslur Jrær, sem ég læt fylgja
erindi Jressu, og fjalla Jner um byggingu félags-
heimila, tegund heimila og fjölda, og nýtingu
félagsheimilanna og hlutfallslega skiptingu milli
verkefnaþátta.
Sá útbreiddi misskilningur virðist vera ríkj-
andi, einkum rneðal fólks á höfuðborgar-
svæðinu, að almennt dansleikjahald sé uppistað-
Kjörorðiö um ræktun lands og lýðs er meðal annars framkvæmt mað árlegum melskurði og fræsöfnun og öðrum landgræðslustörfum
svo sem við heftun sandfoks á afréttum. Myndina, sem Kristinn Helgason tók, mætti kalla „Snemma beygist krókurinn.“
SVEITARSTJÓRNARMÁL