Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Síða 5
KARL E. LOFTSSON, oddviti:
HUGLEIÐINGAR
FRÁ HÓLMAVÍK
Atvinnumál
Á síðastliðnu sumri var hafin
hér vinnsla á hörpudiski á vegum
kaupfélagsins, og er það von okkar
Hólmvíkinga, að sú vinnsla verði
varanleg og geti komið á þeim
tíma, er rækjuveiðum lýkur, og
brúað þar með atvinnuleysistíma-
bil. Á þessum tíma eru líka stund-
aðar grásleppuveiðar, og erum við
Strandamenn stærstu framleiðend-
ur grásleppuhrogna á landinu, þeg-
ar miðað er við mannfjölda. Þykir
okkur því súrt í brotið að sjá
alla þessa framleiðslu flutta óunna
úr landi, að ekki skuli vera hægt
að fullvinna þessa vörutegund hér
heima, þegar nógur er vinnukraft-
urinn. Vinnsla hörpudisksins og
framtíð hennar fer þó eins og um
fleiri greinar sjávarútvegs eftir
söluhorfum hverju sinni.
Samgöngur
Um samgöngurnar er ekki hægt
að segja annað en að þær séu mjög
góðar. Vængir h.f. fljúga til okkar
tvisvar i viku allt árið, og áætlunar-
ferðir á landi eru tvisvar i viku
yfir sumarmánuðina og einu sinni
í viku yfir vetrarmánuðina. Þá er
leiðin frá Brú í Hrútafirði jafnan
mokuð, og má heita einsdæmi að
ferð falli niður.
Þá finnst mér sérstök ástæða til
að geta um tengingu Djúpvegarihs
við akvegakerfi Strandasýslu um
Steingrímsfjarðarheiði
Strandasýsla hefur verið mjög af-
skekkt hvað samgöngur snertir við
aðra hluta kjördæmisins og með
byggingu Djúpvegarins finnst okk-
Karl E. Loftsson, oddviti Hólmavíkur-
hrepps.
ur tími til kominn að tengja kjör-
dæmið saman hvað samgöngur
snertir með lagningu vegar yfir
Steingrímsfjarðarheiði, því að sú
tenging mundi veita margs konar
þjónustu fyrir héruðin í kjördæm-
inu.
Ég vil að það komi fram, að við,
sem í strjálbýlinu búum, kunnum
að meta það, ef samgöngurnar eru
í lagi, og vil ég sérstaklega þakka
þeim aðilum, sem hafa séð okkur
fyrir góðum samgöngum.
Skólamál
Á árunum 1973—1975 var byggð-
ur hjá okkur mjög vandaður kenn-
arabústaður með tveimur íbúðum
fyrir kennara, og var þar með leyst-
ur mikill vandi, sem fylgdi þvi að
sjá kennurunum fyrir húsnæði, en
til viðbótar þessum kennarabústað
er nýlegur skólastjórabústaður, og
ennfremur hafa einn til tveir kenn-
arar jafnan haft aðsetur i skólahús-
inu sjálfu.
Barna- og unglingaskóli Hólmavíkur.
203
SVEITARSTJÖRNARMÁL