Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Page 12

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Page 12
En við könnun á sölusamningum koma upp ýmis vafaatriði, sem ekki liggur í augum uppi, hvernig með skuli fara. Hverju húsi fylgir lóð eða réttur til lóðar. Sölusamningur hefur ekki að geyma neina sundurliðun á því, hvað sé hið eiginlega verðmæti hússins og hvað sé greiðsla fyrir lóð eða framsal lóðarréttinda. Þarna kemur augljóslega fram eitt af okkar vandamálum. Það er t. d. verið að gera mikinn mun á mati húss, eftir Jtví, hvort Jrað stendur í fínu um- hverfi í Reykjavík eða á hæð fyrir ofan síldar- verksmiðju á Raufarhöfn. Þessi hús gætu verið jafn stór og álíka í þau borið. Söluverð Jreirra yrði aftur á móti mjög ólíkt. Það, sem gerir Jrennan verðmismun, er því augljóslega staðsetning lóðanna, sem þau standa á. Sú spurning hlýtur því að vakna, hvort ekki væri rétt að meta húsin til verðs nokkuð jafnt vegna efnisatriða, en láta aðstöðumuninn koma fram í lóðamatinu. í Reykjavík er Jressi leið valin að nokkru leyti, en utan Jress Jrá hefur raunar ekki verið gerð tilraun til að meta lóðir af hálfu Fasteignamats- ins. Við síðasta aðalmat fasteigna var lóðaverð ákveðið mjög lágt pr. m2 og næstum látið gilda sama fermetraverð um allar lóðir innan hvers sveitarfélags, án tillits til notagildis eða staðsetn- ingar. Hér var því fremur um skráningaratriði að ræða en raunverulegt mat. Það er mikið um- hugsunarefni, hvort þessu þarf ekki að breyta. En þetta er eitt af Jreim verkefnum, sem ég held, að óhugsanlegt sé að vinna öðruvísi en í nánu samstarfi við viðkomandi sveitarstjórnir. Hér verður staðarþekking að koma til — til- finningin fyrir uppbyggingu hvers sveitarfé- lags, vitneskjan um framtíðaráætlanir þess — þarfir og möguleika á sviði atvinnu, viðskipta og annarra þátta, sem ráða framvindu mála í liverju sveitarfélagi. 210 Samræming í mati Um skipulega uppbyggingu matsstarfanna er kveðið á í 19. gr. laganna, en hún er svo- hljóðandi: „Fasteignamat rikisins annast mat fasteigna sdmkvœmt lögum þessum. Fasteignamat rikisins skal leitast við að tryggja samrœmingu i mats- störfum og samrœmingu upplýsinga, sem máli skipta við framkvœmd mats. Þá er Fasteignamati ríkisins heimil útvegun sérfrœðilegrar aðstoðar við mat, eftir þvi sem þörf krefur. Fasteignamati rikisins er heimilt að fengnu samþykki ráðherra að ráða trúnaðarmenn i ein- stökum lijördœmum, er annist mat og/eða skoð- un fasteigna. Ef til kemur, skal i reglugerð setja yiánaxri ákvœði um ráðningu og starfssvið trún- aðarmanna." Með þessu ákvæði, að Fasteignamat ríkisins annist mat fasteigna, þá eru tekin upp sömu vinnubrögð og tíðkazt hafa um mat í Reykjavík undanfarið og komin er nokkur reynsla á. En það er í því fólgið, að skoðunarmenn fara á staðinn, skoða viðkomandi eign og lýsa henni á Jrar til gerð eyðublöð. Eftir að þessi eyðublöð hafa verið yfirfarin af sérfróðum mönnum í skrifstofunni, eru þær upp- lýsingar, sem þau hafa að geyma, flutt inn á gataspjöld og áfram til tölvuvinnslu til undir- búnings gerð nýrrar fasteignaskrár. Þetta á við um öll íbúðarhús og venjulega bíl- skúra. Hins vegar er óhjákvæmilegt að meðhöndla öll sérhæfð mannvirki á annan hátt, þann sem við köllum handmat, en í því er tekið tillit til sérhæfðra eiginleika hússins, s. s. lofthæðar og ýmiss frágangs o. fl. Öll gögn, sem búin eru undir tölvuvinnslu, krefjast nákvæmari vinnubragða, — en þau eiga líka að gefa aukið öryggi um réttar niðurstöður. Ákvæði greinarinnar um sérstaka trúnaðar- menn í kjördæmum er ekki fullmótað. Hins vegar er það augljóst, að byggingarfull- trúarnir hafa svo margvíslegum störfum að gegna, að þeir geta ekki, án aðstoðar, sinnt ölf- SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.