Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Side 17
Isafirði kosti um 390 millj. króna, þar af undirbyL
ing 123 milljónir, slitlag 203 milljónir króna, en
hönnun og umsjón 64 milljónir króna. Miðað við 10
ára framkvæmdatíma, þyrfti um 40 millj. króna á
ári til þessa málaflokks.
7) Vntnsveita
Lagning nýrrar vatnsveitu kostar um 23,1 millj.
króna. Vatnsveitunni er sjálfri ætlað að standa undir
framkvæmdinni af eigin tekjum.
8) Landfylling
Hugmynd er uppi um stórfellda landfyllingu í
kaupstaðnum. Hver fermetri nýrrar lóðar, sem
þannig fæst, var áætlaður á 2100 krónur. Einnig er
fjallað um ýmis minni háttar verkefni.
V. Framkvæmdaáætlun 1975—1978
Samin er framkvæmdaáætlun fyrir hvert áranna
um sig 1975 til 1978 og sýnt, hve miklu fé sé áformað
að verja til hvers málaflokks hvert áranna, hve mikið
kemur frá bæjarsjóði, hve mikið frá ríkissjóði og hve
mikils fjár sé ætlunin að afla með lánum eða öðrum
hætti. Loks er dregið saman yfirlit um þessar
áætluðu framkvæmdir á árunum 1975—1978 í einu
yfirliti.
Sem fylgirit með greinargerð þessari eru sýnd
yfirlit um rekstrartekjur kaupstaðarins 1969—1974
og rekstrargjöld kaupstaðarins sömu ár svo og verk-
legar framkvæmdir á Isafirði árin 1969—1973.
Hér fer á eftir sem sýnishorn um þessa áætlunar-
gerð yfirlit um heildarframkvæmdir kaupstaðarins á
árunum 1975—1978 í þúsundum króna.
Framkvæmdaáætlun 1975—1978
(þús. kr.)
Heildar upphæð Hluti bæjar Hluti ríkis Lán og önnur fjáröflun
Landa- og húsak. v/skipul. 28.000 10.000 18.000
Uppfylling
Skipulagsmál 5.300 4.000 1.300
Leik- og sparkvellir 2.000 2.000
Utivistarsv. og skíðaland 2.000 2.000
Iþróttasvæði 15.880 10.000 5.880
Skólar 11.000 5.500 5.500
Nýlagn. gatna v/lóðaúthl. 79.000 79.000
Sjúkrahús 327.000 36.800 278.000 12.200')
Hafnarsjóður -lán 20.900
Dagheimili 21.600 10.800 10.800
Áhaldahús 20.000 10.000 10.000
Dvalarheimili f. aldraða 92.800 11.800 30.800 50.200
Varanleg gatnagerð 104.450 82.450 22.000
Vatnsveita 23.200
Samtals: 709.030 297.650 332.280 123.200
‘) Framlag annarra sveitarfélaga.
SVEITARSTJÓRNARMÁL