Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Qupperneq 18

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Qupperneq 18
NIÐURSTÖÐUR I RITGERÐARSAMKEPPNI SAMBANDSINS 1976 1 tilefni af 30 ára afmæli sambandsins hinn 11. júní 1975 efndi stjórn sambandsins til ritgerðarsamkeppni um efnið: Sveitarfélög á Islandi — framtíðarhlutverk. Samkeppnin náði til nemenda á efsta stigi menntaskólanámsins. Fór hún fram á ofanverðum seinasta vetri með skilafresti til 31. marz. Skyldi ritgerðin vera milli 1500 og 2000 orð. Þrennum verðlaunum var heitið fyrir beztu úrlausnir, 100 þúsund krónum í 1. verðlaun, 50 þús. krónum í 2. verðlaun og 25 þús. krónum í þriðju verðlaun. Stjórnin leitaði samstarfs við menntamálaráðuneytið og samstarfsnefnd menntaskólastigsins um framkvæmd samkeppninnar og tilnefndi hvor sinn fulltrúa í dóm- nefnd. Dómnefnd ritgerðarsamkeppninnar skipuðu Páll Lín- dal, formaður sambandsins, Árni Gunnarsson, deildar- stjóri i menntamálaráðuneytinu og Tryggvi Gislason, skólameistari á Akureyri. Trúnaðarmaður dómnefndar var Unnar Stefánsson, ritstjóri. Þrjár ritgerðir bárust í samkeppninni. Hér fer á eftir umsögn dómnefndarinnar um þær. Mánudag 26ta júlí 1976 kom dómnefnd í ritgerðarsam- keppni Sambands íslenzkra sveitarfélaga saman til að fjalla um ritgerðir, er borizt höfðu í ritgerðarsamkeppni, er efnt var til meðal nemenda á síðasta vetri menntaskólastigsins. Rit- gerðarefnið var: Sveitarfélög á íslandi — framtíðar- hlutverk. / dómnefndinni áttu sœti Árni Gunnarsson, full- trúi í mennlamálaráðuneytinu, Páll Líndal, borgarlögmaður, og Tryggvi Gíslason, skólameistari. Ritari dómnefndar og trúnaðarmaður þátttakenda var Unnar Stefánsson. Þrjár ritgerðir höfðu borizt. Dómnefndin varð sammála um, að engin ritgerðanna vœri hœf til að hljóta fyrstu verð- laun, par sem þœr gerðu ekki framtíðarhlutverki sveitarfélaga á fslandi viðhlitandi skil, enda þótt lýsing á starfsemi sveitarfélaganna og sögulegtyfirlit vœri allgott. Dómnefndin varð sammála um að veita önnur verðlaun, 50 þúsund krónur, fyrir ritgerð eftir ,,Hrafn“. Reyndist hann 216 vera Einar Eyþórsson, nemandi í Mennlaskólanum á Isafirði. Ritgerðin vœn efnismikil og höfundur gerði víða skarplegar athugasemdir, en málfari vceri hins vegar mjóg ábótavant og sums staðar kœmi hann með fullyrðingar, sem ekki vœru röksluddar og víða felldir harðir dómar, sem ekki var talið að œlti við í ritverki af þessu tagi. Á köflum var ritgerðin hroðvirknislega unnin og á stöku stað efnistök laus, þar sem hlaupið var úr einu í annað. Þnðju verðlaun, 25 þúsund krónur, voru veitt fyrir ritgerð eftir „Klœng“. Hann reyndist vera Bergsteinn Vigfússon, nemandi í Menntaskólanum við Tjörnina í Reykjavík. I ritgerð hans komu fram margar staðreyndir, en efnið var sundurlaust og víða stuttaralega um það fjallað, þannig að ritgerðin bar nokkurn svip af því, að um vceri að rœða sam- tíning, sem lítil afstaða hefði verið tekin til. Málfar var ekki gott og á stöku stað málvillur. / ritgerðinni var og farið ranglega með heimildir. Þriðja ritgerðin, sem barst, eftir höfund, sem notaði nafnið „Disco“, var afar stutt uþptalning á staðreyndum. Enda þótt nlgerðin vœri heilsteypt og engin stórlýti á henni, þótti dóm- nefnd ofyfirborðslega um efnið fjallað til þess að unnt vœri að veita henni verðlaun, enda var lítið vikið að sjálfu framtíðar- hlulverki sveitarfélaga á Islandi. Hér fer á eftir ritgerð sú, sem hlaut 50.000 króna verðlaun í ntgerðarsamkeppninni. Höfundur hennar er, eins og áður segir, Einar Eyþórsson, nemandi í Menntaskólanum á ísa- firði, en þaðan lauk Einar stúdentsprófi s. I. vor. Einar erfrá Kaldaðarnesi í Sandvíkurhreppi. Lagfœrmgum og leiðréttingum á handriti ritgerðarinnar var hagað með sama hœtti og um annað efni, sem birtist í tímantinu að því er varðar augljóst málfar og greinar- merkjasetmngu en ekki neinu breytt, sem efni varðar. Af því leiðir að sjálfsögðu, að ekki má bera tímaritið fýrir skoðunum eða staðhœfingum hófundar, sem ekki þurfa allar að reynasl SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.