Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Qupperneq 26
Knattspyrnumenn á Akranesi
hafa löngum gert garðinn
frægan. Við vígslu íþróttahússins
sýndi yngri kynslóðin hvað í
henni býr á þvi sviði. Á mynd-
inni sér yfir áhorfendasvæðið, sem
fullbúið rúmar 1500 áhorfendur.
með aðstöðuna í húsinu. Eg tel, að vel hafi tekizt
til með þetta hús, t. d. með lýsinguna, sem víða
hefur verið vandamál. Um hana segir í bréfi, sem
við fengum frá badmintonráði I. A. nýverið, að
þeir telja lýsinguna í húsinu vera þá beztu hér
á landi fyrir ljadminton. Þegar Sirtfóníuhljóm-
sveit Islands hélt hljómleika í húsinu í febrúar-
mánuði s.l. kom og í ljós, að hljómburður húss-
ins er ágaetur."
— Hve mikið kostar húsið?
„Um síðustu áramót var kostnaðurinn kominn
í 90 milljónir króna. Þar af var unnið á síðasta
ári fyrir 57 milljónir. Sjálfboðavinna íþrótta-
manna við húsið hefur ekki verið metin til fjár,
en hún er mikil. T. d. er allur frágangur á loft-
inu yfir íþróttasal og áhorfendasvæði unninn í
sjálfboðavinnu, bæði einangrun, klæðning, raf-
lögn, málning og uppsetning lampa. Þessi upp-
talning er alls ekki tæmandi. Hópar íþrótta-
manna hafa unnið kvöld eftir kvöld í húsinu, og
það framlag nemur milljónum."
— Hvernig er aðstaðan til útiíþrótta á Akra-
nesi?
„Á s.l. ári var gert talsvert átak við frágang á
íþróttasvæðinu við Langasand í sambandi við
landsmót U. M. F. I., sem haldið var hér á Akra-
224 nesi s.l. sumar. Eg held, að þátttakendur í lands-
mótinu hafi verið mjög ánægðir með aðstöðuna
þar, t. d. hlaupabrautina og kast- og stökkað-
stöðuna. Grasvöllurinn var einn af þeim beztu
á s.l. sumri. A malarvellinum er flóðlýsing, 6
kastarar í 20 m hæð. Þegar lágsjávað er, verður
Langisandur ákjósanlegur knattspyrnuvöllur,
alltaf jafn mjúkur, hvernig sem viðrar. Eg tel því,
að aðstaða til útiíþrótta sé góð.“
— Það var verið að opna hjá ykkur bamadeild
við bókasafnið. Er mikill bókaáhugi á Akranesi?
„Safnið okkar er mikið notað, eins og vera ber
hjá bókmenntaþjóð. Þegar vinabæjamót var hald-
ið hér 1972, vakti bókasafnið sérstaka athygli
J^átttakenda. Á síðasta ári voru lánuð út 38.646
bindi. Með tilkomu nýju barnabókadeildarinnar
mun starfsemi safnsins enn aukast."
— Hve stórt er bókasafnið nú eftir stækkunina?
„Bókasafnið hefur nú til afnota 1. hæð bók-
hlöðubyggingarinnar, en hún er 350 m2. Auk
þess er sýningarsalur í kjallara hússins, þar sem
haldnar eru málverka- og listsýningar á vegum
safnsins. Um leið og barnabókasafnið var opnað,
var tekinn í notkun lessalur, þar sem fólki gefst
kostur á að skoða bækur og rit, sem ekki eru
ætluð til útlána. £g efast ekki um, að þessi við-
bótaraðstaða í bókhlöðunni verður vel þegin af
bæjarbúum."
svkitarstjórnarmál