Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Page 32
Tilhögun á greiðslu
þéttbýlisvegafjár
Þrítugasti fundur fulltrúaráðs Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga beinir þeim ákveðnu tilmælum
til stjórnvalda, að nú þegar verði sett ákvæði, sem
kveða á um skyldur Vegagerðar rikisins til að standa
skil á greiðslum vegna þéttbýlisfjár vega og 25%
sjóðsins á lögákveðnum gjalddögum, þannig að
greiðslur dragist ekki úr hömlu eins og raun hefur
orðið á.
Ennfremur, að framlög úr sjóðnum miðist ein-
göngu við framkvæmdir og gangi til allra vega i
þéttbýli, en ekki eingöngu til þéttbýlisþjóðvega.
Tekjustofn handa
fræðsluskrifstofum landshlutanna
Eftirfarandi tillaga var samþykkt sem viðaukatil-
laga við álit nefndarinnar:
Fulltrúaráðið leggur áherzlu á fyrri samþykktir,
að ríkisvaldið tryggi fræðsluskrifstofum landshlut-
anna tekjustofn nú þegar, svo að starfsemi þeirra geti
verið með eðlilegum hætti i samræmi við grunn-
skólalög.
Túlkun á lögum sambandsins
Séra Ingimar Ingimarsson, oddviti Hvamms-
hrepps, hafði orð fyrir sveitarstjórnarlaganefnd.
Að tillögu nefndarinnar voru gerðar eftirfarandi
tvær ályktanir:
Fulltrúaráðið telur, að túlka beri 14. gr. gildandi
laga sambandsins þannig, að stjórnarmenn, kjörnir
á landsþingi 1974, eigi sæti í stjórn þess, þar til nýtt
stjórnarkjör hefur farið fram.
Hins vegar telur fulltrúaráðið rétt, að nefndri
grein verði breytt, þannig að umboð stjórnar- og
fulltrúaráðsmanna falli niður, hætti þeir störfum
fyrir sveitarfélögin eða flytjist burt af svæðinu, sem
230 þeir voru kjörnir fyrir.
Endurskoöun sveitarstjórnarlaga
Fulltrúaráðið telur nauðsynlegt, að fram fari
endurskoðun á sveitarstjórnarlögum nr. 58/1961.
Það samþykkir að fela stjórn sambandsins að ráða
þrjá menn til þess að semja greinargerð um æskilegar
breytingar á lögunum. Stefnt skal að því, að unnt
verði að kynna hugmyndir þeirra á fulltrúaráðs-
fundi 1977 og í framhaldi af því i formi lagafrum-
varps á fundi fulltrúaráðs 1978 og á landsþingi á
sama ári.
Fulltrúaráðið bendir á nauðsyn þess, að tekin
verði m. a. afstaða til eftirtalinna atriða:
Hvort setja skuli ákvæði um lágmarksíbúafjölda
sveitarfélaga, hvort hafa skuli sama kjördag við
kosningu til sveitarstjórna, um kosningafyrirkomu-
lag og kjörgengi, um fjölda fulltrúa í sveitarstjórn-
um, um réttarstöðu nefnda á vegum sveitarstjórna,
um framkvæmdarstjórn sveitarfélaga, um nýja
skipun hvað snertir fjármál sveitarfélaga og eftirlit
með þeim, um réttarstöðu sýslunefnda í sambandi
við sveitarstjórnarmál og um stöðu landshlutasam-
taka, um samvinnu sveitarfélaga og sameignarfyrir-
tæki og hvort efni séu til að koma á fót sérstökum
stjórnsýsludómstóli um ágreiningsmál, er rísa kunna
um sveitarstjórnarmálefni.
Aukið samstarf um kjaramál
Eins og áður er fram komið, fjallaði fjárhags- og
kjaramálanefnd fundarins um ársreikninga sam-
bandsins og Sveitarstjórnarmála og fjárhagsáætlanir
fyrir árið 1976. Einnig fjallaði nefndin um kjara-
samninga sveitarfélaga og lagði fram á fundinum
svofellt álit, sem var samþykkt um það efni:
Nefndin fellst á þá skoðun, að nauðsynlegt sé að
auka samstarf sveitarfélaga um kjaramál og skipu-
leggja upplýsingastarfsemi á vegum sambandsins á
þessu sviði.
Nefndin leggur til, að stjórn sambandsins verði
falið að athuga, hvort grundvöllur sé fyrir stofnun
vinnumálasamtaka sveitarfélaga. t þessu sam-
bandi visar nefndin á hugmyndir þær, sem fram
komu í erindi Magnúsar Óskarssonar.
SVEITARSTJÖRNARMÁL