Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Síða 33

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Síða 33
ORKUFREKUR IÐNAÐUR Á SUÐURLANDI Frá aðalfundi Samtaka sveitarfélaga í Suðurlandskjördæmi 1976 Samtök sveitarfélaga í Suður- landskjördæmi héldu aðalfund sinn í Vestmannaeyjum 29. og 30. apríl 1976. Fundinn sátu 48 fulltrúar frá 27 sveitarfélögum af 37 á félagssvæðinu auk fyrirlesara og nokkurra boðs- gesta. Ölvir Karlsson, formaður samtak- anna, setti fundinn, en Einar H. Eiriksson, forseti bæjarstjórnar Vest- mannaeyjakaupstaðar, bauð þing- fulltrúa velkomna til Eyja. Fundarstjórar á aðalfundinum voru bæjarfulltrúarnir Einar H. Eiríksson og Sigurgeir Kristjánsson, en fundarritarar Þórir Þorgeirsson, oddviti Laugardalshrepps, og Odd- geir Guðjónsson, hreppstjóri og hreppsnefndarmaður í Fljótshlíðar- hreppi. Ávörp og kveðjur Á fundinum fluttu ávörp þeir Hermann Guðmundsson, sem talaði af hálfu Búnaðarsambands Suður- lands, Áskell Einarsson, fram- kvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga, og Steinþór Gestsson, alþingismaður. Kveðjur bárust frá nokkrum þeim, sem boðið hafði verið að sitja fundinn, en gátu ekki þegið það boð. Skýrslur og ársreikningar Formaður samtakanna Ölvir Karlsson, flutti fundinum skýrslu um störf stjórnarinnar á liðnu starfsári. Stjórnin hafði haldið 11 bókaða fundi á árinu og fræðsluráðið 5 fundi, Samgöngumálanefnd samtakanna hafði haldið 7 fundi, orkunefnd einn fund og laganefnd tvo fundi. For- maður ræddi í skýrslu sinni aðallega um skipulag orkumála og vinnu að Suðurlandsáætlun. Guðmundur Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri samtakanna, gerði grein fyrir ársreikningum samtak- 'anna fyrir 1975 og tillögu að fjár- hagsáætlun fyrir 1976. Eftir að fjár- hagsnefnd fundarins hafði um hvoru tveggja fjallað, voru ársreikningar og fjárhagsáætlun samþykkt. Niöurstöðutölur rekstrarreiknings árið 1975 voru kr. 6.447.113,- og efnahagsreiknings kr. 4.769.447,- og niðurstöðutölur fjárhagsáætlunar fyrir árið 1976 7.4 millj. króna. Starf fræðsluráðs Jón R. Hjálmarsson, fræðslustjóri Suðurlands, flutti fundinum skýrslu fræðsluráðs Suðurlands. Fræðslu- ráðið, skipað 5 mönnum, hafði haldið sex fundi frá seinasta aðalfundi sam- takanna og fræðslustjóri var settur í embætti 1. september 1975. Fræðslu- skrifstofan er til húsa á Austurvegi 22 á Selfossi og hefur húsnæði í sam- vinnu við samtökin. Skrifstofustúlka starfar að hálfu fyrir samtökin og að hálfu á fræðsluskrifstofunni. Fræðslustjóri hafði á árinu heim- sótt alla skóla í umdæminu, haldið námskeið fyrir kennara í hjálpar- og sérkennslu og sinnt áætlanagerð um fjármál og skólaskipan. Framsöguerindi á fundinum Á fundinum voru flutt tvö fram- söguerindi. Kristján Sœmundsson, jarðfræðingur, flutti fyrirlestur um jarðhitarann- sóknir á Suðurlandi. 1 erindi hans kom m. a. fram, að borað hefði verið eftir heitu vatni á 40 stöðum á Suðurlandi og að fullnægjandi árangur hefði fengizt á 25 þessara staða. í umræðum var m. a. rætt um nýtingu hraunhitans á Heimaey. Steingrímur Ingvarsson, um- dæmisverkfræðingur Vegagerðar rikis- ins, flutti erindi um vegamál á Suðurlandi. 1 erir.di Steingríms kom meðal annars fram, að á íslandi er um 40 km langur vegur á hverja 1000 ibúa, í Noregi 19 km og í Svíþjóð um 12 km. Af þeim eru með bundnu slitlagi um 1 km á hverja 1000 íbúa á íslandi, um 7 km í Noregi og um 6 km í Svíþjóð. Tölur þessar gefa til kynna, hversu mikið verkefni þjóðin á fyrir höndum á þessu sviði. Starfsnefndir á fundinum Á fundinum voru kosnar átta starfsnefndir sem hér segir: laga- nefnd, fjárhagsnefnd, uppstillinga- nefnd, orkumálanefnd, samgöngu- nefnd, atvinnumálanefnd, mennta- og félagsmálanefnd og allsherjar- nefnd. Þrir fulltrúar sátu í uppstill- inganefnd, fimm í fjárhagsnefnd, en sjö til níu fulltrúar i hinum. Nefndirnar störfuðu að kvöldi fyrri fundardags, en skiluðu áliti að morgni hins siðari. Menntamál Hermann Guðmundsson í Skeiða- hreppi hafi orð fyrir mennta- og fé- lagsmálanefnd fundarins. Hér fara á SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.