Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Blaðsíða 34
eftir þær samþykktir, sem fundurinn boða til fundar um þau mál i hverri
gerði að tillögu nefndarinnar: sýslu.
232
1. Fjölbrautaskóli
Aðalfundurinn fagnar því, að haf-
inn er undirbúningur að stofnun fjöl-
brautaskóla á Suðurlandi, og telur,
að sá hluti framhaldsskólans, sem
helzt þurfi að ihuga nú þegar, sé
verkmenntahluti, þar sem ljóst er, að
meginhluti hvers aldursárgangs
nemenda muni fara í slíkt nám.
Fundurinn hvetur til þess, að fram-
kvæmdum verði hraðað.
2. Könnun á skólahúsnæði
Aðalfundurinn ályktar, að æskilegt
sé, að könnun fari fram á skólahús-
næði og tækjakosti skóla i umdæm-
inu, svo að auðveldara sé að gera
áætlun og úrbætur, þar sem þeirra er
þörf.
3. Náttúrufræðistofur landshlutanna
Aðalfundurinn telur sjálfsagt að
mæla með drögum að frumvarpi um
náttúrufræðistofur landshlutanna,
sem menntamálaráðuneytið hefur
sent samtökum sveitarfélaga til um-
sagnar.
4. Iþrótta- og æskulýðsstarf
Aðalfundurinn samþykkir að
styðja eindregið íþrótta- og æsku-
lýðsstarfsemi og hvetur sveitarstjórnir
í því efni.
5. Ráðstefna um æskulýðs- og
íþróttamál
Aðalfundurinn fagnar þeirri
ákvörðun menntamálaráðuneytisins
og fræðsluskrifstofu Suðurlands að
ætla að gangast fyrir ráðstefnu nú í
sumar um æskulýðs- og íþróttamál á
Suðurlandi, og væntir þess, að hún
verði fjölsótt og árangursrík.
6. Skipting landsins í skólahverfi
Aðalfundurinn beinir þvi til skóla-
nefndarmanna svo og sveitarstjórnar-
manna, skólastjóra og kennara að
kynna sér vel nýjar tillögur mennta-
málaráðuneytisins um skiptingu
landsins í skólahverfi með það fyrir
augum, að fræðsluráð muni í sumar
7. Úttekt á sérkennsluþörf
Aðalfundurinn samþykkir að fela
fræðsluráði að gera nákvæma úttekt á
stöðu landshlutans varðandi sér-
kennsluþörf og aðstoð við þroskaheft
börn og vinna að úrbótum í þessum
málum í samstarfi við foreldrafélag
þroskaheftra á Suðurlandi.
8. Ráðgjafa- og sálfræðiþjónusta
Fundurinn samþykkir, að vinna
beri að því, að sem fyrst komist á
ráðgjafa- og sálfræðiþjónusta fyrir
skóla á Suðurlandi.
9. Námsflokkar stofnaðir
Fundurinn beinir því til fræðslu-
ráðs, að það beiti sér fyrir því, að sem
víðast verði komið á námsflokka- og
kvöldskólastarfsemi fyrir fullorðið
fólk á Suðurlandi.
10. Fræðsluskrifstofan
Aðalfundurinn ályktar, að sem
fyrst verði tryggður nauðsynlegur
fjárhagsgrundvöllur fyrir Fræðslu-
skrifstofu Suðurlands, og að rikis-
valdið standi við skuldbindingar
sinar í því efni.
Atvinnumál
Brynleifur Steingrímsson á Selfossi
hafði orð fyrir atvinnumálanefnd
fundarins.
Orkumál
Garðar Sigurjónsson í Vestmanna-
eyjum mælti fyrir áliti orkunefndar
fundarins. Hér fara á eftir ályktanir,
sem fundurinn gerði að tillögu
nefndarinnar:
1. Skipan nefnda
Aðalfundurinn þakkar orkumála-
ráðherra, Gunnari Thoroddsen, já-
kvæða afgreiðslu á beiðni samtak-
anna um skipan nefnda, bæði varð-
andi orkudreifingu og eignaraðild að
Landsvirkjun.
2. Raforkumál
Orkunefnd beinir þeim tilmælum
til fulltrúa samtakanna í nefnd um
skipulagsmál raforkudreifingar í
kjördæminu, að gerð verði áætlun um
rafhitun og einnig um fjarhitun á
svæðum, sem ekki munu eiga kost á
varmaveitu í náinni framtið. Lögð
verði rík áherzla á, að Sunnlendingar
annist sjálfir raforkudreifingu á
orkuveitusvæði sínu.
3. Eignaraðild að I.andsvirkjun
Orkunefnd beinir þeim tilmælum
til fulltrúa samtakanna í nefnd um
eignaraðild að Landsvirkjun, að
störfum verði hraðað eftir föngum.
4. Orkufrekur iðnaður
Aðalfundurinn bendir á hag-
kvæmni þess að halda áfram með
Hrauneyjarfossvirkjun og að komið
verði upp orkufrekum iðnaði á
Suðurlandi með hugsanlegri þátttöku
sveitarfélaganna.
5. Jarðhitaleit
Aðalfundurinn bendir á nauðsyn
þess að stórauka jarðhitaleit og nýt-
ingu jarðvarma til húshitunar og
iðnaðar. Jafnframt óskar fundurinn
þess, að rikið taki meiri þátt i kostnaði
við jarðhitaleit en nú er gert.
6. Aukið lánsfé til hitaveitna
Fundurinn beinir þeim tilmælum
til ríkisstjórnarinnar, að Lánasjóði
sveitarfélaga verði séð fyrir auknu
fjármagni, sem geri honum kleift að
auka lán til hitaveitna.
7. Ráðstefna um orkumál
Fundurinn beinir því til stjórnar
samtakanna, að haldin verði ráð-
stefna um orkumál á n. k. hausti.
Frá allsherjarnefnd
Hálfdán Guðmundsson á Hellu
hafði orð fyrir allsherjarnefnd
fundarins. Hér fara á eftir þær álykt-
anir, sem fundurinn gerði að tillögu
nefndarinnar:
S VEI'IA R STJÓ RNARMÁI