Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Blaðsíða 39

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Blaðsíða 39
SAMTÖK SVEITARFÉLAGA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU „Um alllangt skeið hafa verið uppi raddir um nauðsyn þess, að sveitar- félögin á höfuðborgarsvæðinu hefðu með sér skipuleg samtök. Ástæða til þess var m.a. sú, að hverfi þessara sveitarfélaga hafa óðum færzt saman og mörkin milli þeirra smám saman verið að hverfa. Sveitarfélögin eru orðin eitt atvinnusvæði og hafa í sívaxandi mæli tekið upp samstarf sín á milli, eftir því, sem þörfin hefur kallað á í hverju tilviki. Þetta er nú hugmyndin, sem liggur að baki stofnun þessara samtaka“, sagði Stefán Jónsson, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði og formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, en þau voru stofnuð á fundi sveitar- stjórnarmanna úr 9 sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, sem haldinn var að Hlégarði í Mosfellshreppi þriðjudaginn 4. apríl 1976. „Það, sem einkum var haft í huga í þessu sambandi, voru skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins, en þau verða ekki leyst svo vel sé, nema í nánu samstarfi allra þessara sveitarfélaga. Einnig má nefna samgönguæðarnar og samgöngumálin yfirleitt og annað það, sem skipt getur máli varðandi hagkvæmustu þróun þessa fjölmenna byggðasvæðis. 1 framhaldi af þessu umtali, sem lengi hefur verið uppi meðal sveitarstjórnarmanna, var síðan boðað til fundarins í apríl- mánuði, eins og áður segir. Á fundin- um voru flestir sveitarstjórnarmenn í niu sveitarfélögum á höfuðborgar- svæðinu, og þeir samþykktu einróma að stofna til samtakanna. Á fundín- um var gengið frá samþykktum fyrir samtökin og þeim kosin níu manna stjórn. Heiti þeirra er Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu." Áður hafði bæjarstjórn Kópavogs einróma gert ályktun, þar sem hvatt var til stofnunar slíkra samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu. Stefán Jónsson, formaður samtakanna. I samþykktum hinna nýju samtaka segir svo í 2. grein, að tilgangur þeirra sé að beita sér fyrir samstarfi um skipulag og þróun byggðarinnar á höfuðborgarsvæðinu og að vinna að öðrum sameiginlegum hagsmunum sveitarfélaganna. Að stofnun samtakanna stóðu Bessastaðahreppur, Garðabær, Hafnarfjörður, Kjalarneshreppur, Kópavogur, Mosfellshreppur, Reykjavíkurborg, Seltjarnarneskaup- staður og Kjósarhreppur. Fyrstu stjórn samtakanna skipa: Stefán Jónsson, bæjarfulltrúi i Hafnarfirði, formaður, Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, varaform, Markús örn Antonsson, borg- arfulltrúi i Reykjavík, ritari, Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri, Seltjarnarnesi, vararitari, Kristján Benediktsson, borgar- fulltrúi í Reykjavík, gjaldkeri, dr. Kjartan Jóhannsson, bæjar- fulltrúi í Hafnarfirði, varagjaldkeri og aðrir í stjórn Richard Björgvinsson, bæjarfull- trúi í Kópavogi, Þorbjöm Broddason, borgar- fulltrúi i Reykjavík og Jón Guðmundsson, oddviti Mosfellshrepps. 1 varastjórn samtakanna eiga sæti: Elín Pálmadóttir, Reykjavík, Vil- hjálmur G. Skúlason, Hafnarfirði, Einar Ólafsson, Bessastaðahreppi, Ágúst Þorsteinsson, Garðabæ, Bjarni Þorvarðarson, Kjalarneshreppi, Hilmar Ingólfsson, Garðabæ, Jóhann H. Jónsson, Kópavogi, Ægir Sigur- geirsson, Hafnarfirði og Ólafur Haraldsson, Kópavogi. Stjómin hefur ákveðið, að sveitar- félögin greiði samtökunum árgjald, sem nemur 5 krónum á hvern íbúa sveitarfélaganna á þessu ári. Fyrsta umræðuefni stjórnarinnar var bundið skipulagsmálum höfuð- borgarsvæðisins, að sögn Stefáns Jónssonar, og hefur stjórnin nú gert tillögu að samningi milli sveitar- félaganna um skipulagsmál. Uppkast þetta hefur nú verið sent sveitar- stjórnunum til athugunar.“ SVF-ITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.