Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Qupperneq 39
SAMTÖK SVEITARFÉLAGA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
„Um alllangt skeið hafa verið uppi
raddir um nauðsyn þess, að sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu hefðu
með sér skipuleg samtök. Ástæða til
þess var m.a. sú, að hverfi þessara
sveitarfélaga hafa óðum færzt saman
og mörkin milli þeirra smám saman
verið að hverfa. Sveitarfélögin eru
orðin eitt atvinnusvæði og hafa í
sívaxandi mæli tekið upp samstarf sín
á milli, eftir því, sem þörfin hefur
kallað á í hverju tilviki. Þetta er nú
hugmyndin, sem liggur að baki
stofnun þessara samtaka“, sagði
Stefán Jónsson, forseti bæjarstjórnar í
Hafnarfirði og formaður Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu,
en þau voru stofnuð á fundi sveitar-
stjórnarmanna úr 9 sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu, sem haldinn
var að Hlégarði í Mosfellshreppi
þriðjudaginn 4. apríl 1976.
„Það, sem einkum var haft í huga í
þessu sambandi, voru skipulagsmál
höfuðborgarsvæðisins, en þau verða
ekki leyst svo vel sé, nema í nánu
samstarfi allra þessara sveitarfélaga.
Einnig má nefna samgönguæðarnar
og samgöngumálin yfirleitt og annað
það, sem skipt getur máli varðandi
hagkvæmustu þróun þessa fjölmenna
byggðasvæðis. 1 framhaldi af þessu
umtali, sem lengi hefur verið uppi
meðal sveitarstjórnarmanna, var
síðan boðað til fundarins í apríl-
mánuði, eins og áður segir. Á fundin-
um voru flestir sveitarstjórnarmenn í
niu sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu, og þeir samþykktu einróma
að stofna til samtakanna. Á fundín-
um var gengið frá samþykktum fyrir
samtökin og þeim kosin níu manna
stjórn. Heiti þeirra er Samtök
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu."
Áður hafði bæjarstjórn Kópavogs
einróma gert ályktun, þar sem hvatt
var til stofnunar slíkra samtaka
sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu.
Stefán Jónsson,
formaður samtakanna.
I samþykktum hinna nýju samtaka
segir svo í 2. grein, að tilgangur þeirra
sé að beita sér fyrir samstarfi um
skipulag og þróun byggðarinnar á
höfuðborgarsvæðinu og að vinna að
öðrum sameiginlegum hagsmunum
sveitarfélaganna.
Að stofnun samtakanna stóðu
Bessastaðahreppur, Garðabær,
Hafnarfjörður, Kjalarneshreppur,
Kópavogur, Mosfellshreppur,
Reykjavíkurborg, Seltjarnarneskaup-
staður og Kjósarhreppur.
Fyrstu stjórn samtakanna skipa:
Stefán Jónsson, bæjarfulltrúi i
Hafnarfirði, formaður,
Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi í
Kópavogi, varaform,
Markús örn Antonsson, borg-
arfulltrúi i Reykjavík, ritari,
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri,
Seltjarnarnesi, vararitari,
Kristján Benediktsson, borgar-
fulltrúi í Reykjavík, gjaldkeri,
dr. Kjartan Jóhannsson, bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði, varagjaldkeri
og aðrir í stjórn
Richard Björgvinsson, bæjarfull-
trúi í Kópavogi,
Þorbjöm Broddason, borgar-
fulltrúi i Reykjavík og
Jón Guðmundsson, oddviti
Mosfellshrepps.
1 varastjórn samtakanna eiga sæti:
Elín Pálmadóttir, Reykjavík, Vil-
hjálmur G. Skúlason, Hafnarfirði,
Einar Ólafsson, Bessastaðahreppi,
Ágúst Þorsteinsson, Garðabæ, Bjarni
Þorvarðarson, Kjalarneshreppi,
Hilmar Ingólfsson, Garðabæ, Jóhann
H. Jónsson, Kópavogi, Ægir Sigur-
geirsson, Hafnarfirði og Ólafur
Haraldsson, Kópavogi.
Stjómin hefur ákveðið, að sveitar-
félögin greiði samtökunum árgjald,
sem nemur 5 krónum á hvern íbúa
sveitarfélaganna á þessu ári.
Fyrsta umræðuefni stjórnarinnar
var bundið skipulagsmálum höfuð-
borgarsvæðisins, að sögn Stefáns
Jónssonar, og hefur stjórnin nú gert
tillögu að samningi milli sveitar-
félaganna um skipulagsmál. Uppkast
þetta hefur nú verið sent sveitar-
stjórnunum til athugunar.“
SVF-ITARSTJÓRNARMÁL