Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Side 45
GUÐMUNDUR JÓNSSON, Kópsvatni:
VERKEFNI OG SKIPULAG pöst-
LANDSHLUTASAMTAKA holfinu
Undanfarin ár hefur talsvert verið rætt um sam-
einingu sveitarfélaga, og hafa verið færð veigamikil
rök fyrir því, að slík sameining geti víða orðið til
hagsbóta fyrir íbúa hinna dreifðu byggða. Samt sem
áður hafa þessar sameiningartilraunir sem næst
engan árangur borið, og er nauðsynlegt að finna
orsökina til þess.
Lýður Björnsson heldur fram þeirri skoðun í bók
sinni, Saga sveitarstjórna á íslandi, að öllu landinu
hafi verið skipt í hreppa um leið og Alþingi var
stofnað um 930. Það eru miklar líkur til þess, að þessi
skoðun sé rétt, og um leið fæst nokkur skýring á
fastheldni manna í hreppaskipunina. Menn vilja
halda í gamla siði og venjur, sem reynzt hafa vel um
langan tíma, jafnvel þótt breyttar þjóðfélagsástæður
kalli á annað skipulag.
Þess vegna er ekki tímabært að knýja á með sam-
einingu sveitarfélaga nema e. t. v. í þeim tilfellum,
þar sem hreppum hefur áður verið skipt.
Landshlutasamtökin
Reynslan hefur samt sýnt, að menn hafa fundið
nauðsynina fyrir aukið samstarf sveitarfélaga í ein-
stökum landshlutum, og þess vegna hafa lands-
hlutasamtökin verið stofnuð. Enn hafa þau þó ekki
fengið lagalegan grundvöll til að byggja á, og þau
hafa heldur ekki fengið ákveðin verkefni til að vinna
að. Úr þessu þarf að bæta, og þess vegna verða hér
settar fram nokkrar tillögur um verkefni þeirra og
skipulag.
Landshlutasamtökin skulu vera a. m. k. sex að
tölu:
1. Reykjanes og Reykjavík., 2. Vesturland. 3.
Vestfirðir. 4. Norðurland, 5. Austurland, 6. Suður-
land.
Fulltrúar á þing samtakanna skulu kosnir í al-
mennum kosningum samtímis sveitarstjórnarkosn-
ingum. Fulltrúafjöldi hvers sveitarfélags skal ákveð-
inn þannig:
Sveitarfélag með 400 íbúa eða færri 1 fulltrúi,
sveitarfélag með 401—900 ibúa 2 fulltrúar,
sveitarfélag með 901—1600 íbúa 3 fulltrúar,
sveitarfélag með 1601—2500 íbúa 4 fulltrúar,
sveitarfélag með 2501—3600 íbúa 5 fulltrúar, o. s.
frv.
Héraðsþing og héraðsstjórn
Þing samtakanna, sem nefna má héraðsþing skulu
haldin árlega, og einnig skulu nýkjörin þing koma
saman til fundar innan mánaðar til þess að:
a. kjósa stjórn samtakanna, héraðsstjórn, til næstu
fjögurra ára.
b. kjósa menn í dóm, héraðsdóm, til næstu fjög-
urra ára.
c. kjósa endurskoðendur sveitarreikninga í hverju
sveitarfélagi til næstu fjögurra ára.
Hlutverk landshlutasamtakanna skal vera:
a. að starfrækja stjórnsýslu- og upplýsingastofnun
fyrir héraðið, sem íbúar þess og sveitarstjórnir
hafi aðgang að.
b. að vinna að sameiginlegum hagsmunum hér-
aðsins og áætlanagerð í samráði við Fram-
kvæmdastofnun ríkisins.
c. að annast eftirlit með öllum fjárreiðum allra
sveitarfélaga innan samtakanna, endurskoðun
og úrskurðun ársreikninga þeirra svo og allra
fyrirtækja, sem rekin eru á vegum sveitarfélag-
anna.
d. að hafa umsjón með því, að sveitarstjórnirnar
starfi samkvæmt gildandi lögum og reglu-
gerðum. 243
SVEITARSTJÓRNARMÁL