Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Síða 50
Jöfnunarsjóðs má nú áætla rúmlega
3.100 m. kr. 1976. Þegar útgjöld
sjóðsins (þ. m. t. beinn hluti sveitar-
félaga af landsútsvörum, framlög til
Innheimtustofnunar og Lánasjóðs
sveitarfélaga) hafa verið dregin frá,
má áætla, að framlag sjóðsins verði
nær 11.000 krónur á íbúa. Miðað við
áætlun fjárlagafrumvarps um tekjur
Jöfnunarsjóðs af söluskatti og
aðflutningsgjöldum og lauslega
áætlun um landsútsvör 1977, má
búast við, að tekjur sjóðsins verði nær
3.800 m. kr. Sérstök útgjöld og auka-
framlög, þ. m. t. 25% óskiptur hluti af
landsútsvari, framlag til Innheimtu-
stofnunar og 5% framlag til Lánasjóðs
sveitarfélaga, gætu að viðbættum
tekjuafgangi numið um 1.000 m. kr.
þannig, að um 2.800 m. kr. yrðu til
skipta, eða um 12.700 kránur á íbúa.
5. Þéttbýlisfé
Þéttbýlisfé til sveitarfélaga skv. 32.
grein vegalaga verður 1.158 krónur á
hvern íbúa á árinu 1976. I fjárlögum
fyrir 1977 er þéttbýlisfé áætlað 1.340
krónur á íbúa.
GJÖLD
1. Laun
Samkvæmt kjarasamningum
hækka kauptaxtar allra launþega um
5% 1. febrúar nk., en um áramót
verða ýmsar flokkatilfærslur o. þ. h.
hjá opinberum starfsmönnum. I
febrúarbyrjun verður einnig reiknað
síðasta rauða strikið samkvæmt al-
mennum kjarasamningum, og skal
kaup hækka 1. marz, ef vlsitala
framfærslukostnaðar samkvæmt
nánari ákvæðum samninga hækkar
um meira en 4,4% milli október 1976
og 1. febrúar 1977. Enn er óljóst, hve
þessi hækkun gæti orðið mikil. 1. júlí
1977 hækka laun opinberra starfs-
manna um rúmlega 4% samkvæmt
samningum. Sé tekið tillit til
framangreindra hækkana og gert ráð
fyrir svipaðri hækkun 1. júli hjá
verkafólki og iðnaðarmönnum og
verður hjá opinberum starfsmönn-
um, er hækkun kauptaxta á árinu
1977 eftirfarandi:
búvöru er hækkunin nokkru minni,
eða 26—27%.
Á sex mánaða tímabilinu 1. maí til
1. nóvember 1976 hækkaði vísitala
framfærslukostnaðar um 14%, sem
svarar til 30% hækkunar á heilu ári. Á
síðari helmingi þessa árs hefur því
heldur dregið úr verðbólgu frá því,
sem verið hefur að undanförnu. Afar
lausleg hugmynd um verðlagsþróun-
ina fram undir mitt næsta ár bendir
til þess, að enn gæti hægt á verð-
hækkunum á fyrstu mánuðum næsta
árs, ef ekki koma ný tilefni verulegra
verðhækkana. Um verðlagsþróun á
næsta ári verður hins vegar engu
frekar spáð hér.
Af einstökum útgjaldaliðum má
nefna, að rafmagn hefur hækkað um
nálægt 18% frá desember 1975. Verð
á olíu til húsakyndingar var í nóvem-
ber 1976 krónur 27,05 hver líter, en
var krónur 24,30 í desember í fyrra.
Hækkun frá dcs. 1975 Hækkun Hækkun
til ársmcðalt. 1977 frá ársmeðalt. 1976 frá dcs. 1976
til ársmcðalt. 1977 til ársmcðalt. 1977
% % %
Verkamenn 39 21 7
Iðnaðarmenn 36,5 20 7
Opinb. starfsmenn 45 26,5 10
Allir launþegar 40 22,5 7,5
Á árinu 1976 munu kauptaxtar
launþega sennilega hækka um 26%
að meðaltali frá árinu áður, og er
hækkunin svipuð eftir starfsstéttum,
en þó nokkru meiri hjá verkamönn-
um eða 27%. Kauptaxtar opinberra
starfsmanna hækka um 26% milli ára,
og er þá miðað við rikisstarfsmenn, en
hækkunin er nokkuð misjöfn hjá
einstökum hópum ríkisstarfsmanna.
Hinn 1. nóvember s. 1. höfðu
kauptaxtar hækkað um 30% að
meðaltali frá desember 1975 og voru
jafnframt 14% hærri en þeir verða að
meðaltali á árinu 1976. Á þessu
tímabili hafa kauptaxtar verkafólks
hækkað um 30%, kauptaxtar
iðnaðarmanna um 28% og kaup-
taxtar opinberra starfsmanna um
248 32—33%.
Á árinu 1976 virðist hafa orðið
talsvert launaskrið, þ. e. hækkun
greiddra dagvinnulauna umfram
hækkun kauptaxta, en ekkert tillit er
tekið til þess í ofangreindum tölum.
2. Önnur útgjöld
Nú er áætlað, að verðlag á vörum
og þjónustu verði að meðaltali rúm-
lega 30% hærra á árinu 1976 en árið
1975, og frá 1. nóvember 1975 til 1.
nóvember 1976 hefur vísitala vöru og
þjónustu (A-liður framfærsluvísitölu)
hækkað um 32%. Er vlsitalan 1
nóvember 1976 um 10% hærri en hún
verður að meðaltali á árinu 1976.
Verðhækkun búvöru vegur allþungt í
hækkun vísitölúnnar 1976, og án
Gjaldskrá Pósts og síma hefur
hækkað að meðaltali um 24% á árinu,
akstur um 16%, og ýmis annar
rekstrarkostnaður er talinn hafa
hækkað um 20—25%.
Vísitala byggingarkostnaðar
verður sennilega 25% hærri að
meðaltali 1976 en 1975, og frá nóv-
ember 1975 til nóvember 1976
hækkaði vísitalan um 23% og var þá
7% hærri en hún var að meðaltali á
árinu. Viðhaldskostnaður hefur
sennilega hækkað svipað og vísitala
byggingarkostnaðar.
SVEITARSTJÓRNARMÁL